Innlent

Senda vopnaða menn á svæðið

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Vopnaðir lögreglumenn voru sendir á staðinn með bolvíska björgunarbátnum Kobba Láka. Þá eru sérþjálfaðir menn á vegum Landhelgisgæslunnar á leið á vettvang með þyrlu.
Vopnaðir lögreglumenn voru sendir á staðinn með bolvíska björgunarbátnum Kobba Láka. Þá eru sérþjálfaðir menn á vegum Landhelgisgæslunnar á leið á vettvang með þyrlu. Landsbjörg

Sá sem tilkynnti um að hvítabjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var staddur í sumarhúsi á svæðinu, og er einn eftir því sem lögregla kemst næst. Ekki hefur náðst aftur í viðkomandi. Lögreglumenn eru á leið á svæðið ásamt mönnum frá Landhelgisgæslunni sem eru sérþjálfaðir í meðferð skotvopna.

Þetta segir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, í samtali við fréttastofu. 

„Tilkynningin barst rétt fyrir klukkan tvö frá einstaklingi sem er þarna í sumarhúsi. Við teljum upplýsingarnar réttar, en við höfum ekki náð aftur í viðkomandi. En reiknum með því að þetta sé rétt þar til annað kemur í ljós“ segir Helgi. Samkvæmt upplýsingum lögreglu sé viðkomandi einn í húsinu.

Senda vopnaða menn á sjó og í lofti

Tveir lögreglumenn frá Ísafirði hafa verið sendir á svæðið með bolvískum björgunarbáti, auk þess sem sérþjálfaðir menn eru á leið á vettvang með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þeir eru, líkt og lögreglumennirnir, vopnaðir og við öllu búnir að sögn Helga.

Hann segir ekki ljóst á þessari stundu hvort sá sem tilkynnti um dýrið, né aðrir, séu í bráðri hættu.

„Við getum ekki svarað því. Vonandi ekki.“

Umhverfisstofnun gert viðvart

Helgi segir alltaf haft samband við Umhverfisstofnun þegar grunur kvikni um að hvítabirnir hafi gengið á land. 

„Hvort þeir geti gert ráðstafanir til að bjarga viðkomandi dýri. Í þessu tilfelli er það ekki hægt.“

Lögregla sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna málsins klukkan 14:13:

Tilkynning um hvítabjörn.

Nú fyrir skömmu síðan fékk lögreglan tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum.

Lögreglan á Vestfjörðum hefur, að höfðu samráði við Umhverfisstofnun, kallað út þyrlu LHG ásamt því að björgunarbáturinn Kobbi Láka er nú þegar farinn af stað með tvo lögreglumenn frá Ísafirði.

Ætlunin er að tryggja öryggi þess fólks sem kann að vera á svæðinu.

Fólk sem er á svæðinu er hvatt til þess að halda sig innandyra og hafa varann á sér þar til lögreglan gefur út frekari tilkynningar.

Lögreglan mun senda frá sér tilkynningu um framvindu málsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×