Erlent

Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyl­dýpinu“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Blaðamenn safnast saman við byggingu sem varð fyrir árás Ísraelsmanna í einu af úthverfum Beirút.
Blaðamenn safnast saman við byggingu sem varð fyrir árás Ísraelsmanna í einu af úthverfum Beirút. AP/Hassan Ammar

Ísraelsher hélt árásum sínum á skotmörk í suðurhluta Líbanon áfram í nótt og í morgun en 569 eru sagðir hafa látið lífið í aðgerðunum hingað til, þar á meðal 50 börn.

Herinn segir árásirnar beinast gegn Hezbollah-samtökunum, sem hafa svarað með eldflaugaskotum inn í Ísrael. Ísraelsmönnum virðist hins vegar ganga vel að verjast og var ein flaug skotin niður yfir Tel Aviv.

Um 500 þúsund manns eru sagðir hafa yfirgefið heimili sín í suðurhluta Líbanon frá því að árásir Ísraelsmanna hófust um helgina.

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur heitið því að halda aðgerðum áfram og ásakað leiðtoga Hezbollah, Hassan Nasrallah, um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“. Ísraelsmenn segja árásunum ætlað að þvinga forsvarsmenn Hezbollah til að samþykkja diplómatíska lausn og láta af árásum á Ísrael.

Íbúar fara í gegnum rústirnar.AP/Hassan Ammar

Varnarmálaráðherrann Yoav Gallant sagði Hezbollah þegar hafa mátt þola þung högg en nokkrir leiðtoga samtakanna hafa verið drepnir. Daniel Hagari, talsmaður hersins, sagði á blaðamannafundi að Ísraelsmenn vildu að aðgerðirnar stæðu eins stutt og mögulegt væri en menn væru undir það búnir að þær myndu taka tíma.

Á yfirborðinu stendur deilan um það hvort íbúum í norðurhluta Ísrael sé hætt að snúa heim á ný. Stjórnvöld í Ísrael segja árásirnar munu standa þar til að það sé tryggt en talsmenn Hezbollah segjast ekki munu sýna þeim grið.

AFP hefur greint frá því að utanríkisráðherra Líbanon, Abdallah Bou Habib, hafi harmað að ræða Joe Biden Bandaríkjaforseta á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hafi ekki veirð nógu afdráttarlaus.

„Við höldum enn í vonina. Bandaríkin eru eina ríkið sem getur skipt sköpum í Mið-Austurlöndum og í tengslum við Líbanon,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×