Erlent

Úkraínuforseti hvetur Vestur­lönd til ein­beittari stuðnings

Heimir Már Pétursson skrifar
Rússar gerðu öflugustu árásir sínar á Úkraínu í fyrrinótt þegar þeir skutu samanlagt rúmlega tvö hundruð eldflaugum og drónum á borgir og bæi víðs vegar um landið.
Rússar gerðu öflugustu árásir sínar á Úkraínu í fyrrinótt þegar þeir skutu samanlagt rúmlega tvö hundruð eldflaugum og drónum á borgir og bæi víðs vegar um landið. AP/Efrem Lukatsky

Forseti Úkraínu segir bandamenn ekki mega óttast að ganga lengra í stuðningi þeirra og varnir gegn innrás Rússa sem nú hefur staðið yfir í þúsund daga. Allar tilslakanir væru vatn á myllu Rússlandsforseta sem yrði ekki stoppaður öðruvísi en með valdi.

Volodomyr Zelenskyy forseti Úkraínu ávarpaði þing Evrópusambandsins í dag í tilefni þess að þúsund dagar eru liðnir frá allherjar innrás Rússa hinn 22. febrúar 2022. Hann hvatti bandamenn til að hætta að hika í stuðningi þeirra við Úkraínu.

Volodomyr Zelenskyy forseti Úkraínu ávarpaði þing Evrópusambandsins í gegnum fjarfundabúnað í dag.AP/Dursun Aydemir

„Sameignlega höfum við áorkað mjög miklu en við megum ekki óttast að gera jafnvel enn meira,“ sagði Zelenskyy í ávarpi sínu. Valdimir Putin forseti Rússlands hefði nú þegar fengið liðsauka upp á tíu þúsund hermenn við landamærin að Úkraínu frá norður Kóreu. Þeim gæti auðveldlega fjölgað í hundrað þúsund.

„Á meðan sumir leiðtogar Evrópu eru með hugann við kosningar og annað þess háttar á kostnað Úkraínu er Putin einbeittur í að vinna stríðið. Hann mun ekki láta staðar numið að sjálfsdáðun. Því meiri tíma sem honum er gefinn versna aðstæðurnar,“ sagði forseti Úkraínu. Án tiltekinna lykilþátta í stuðningi Vestulanda væri dregið úr vilja Putins til raunverulegra friðarviðræðna.

Skref í þessa átt var stigið í gær þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti heimilaði Úkraínumönnum loksins að beita langdrægum bandarískum ATACAMS eldflaugum innan landamæra Rússlands. En þó aðeins til að verjast árásum Rússa á herlið Úkraínumanna í Kurskhéraði í Rússlandi.

Vladimir Putin forseti Rússlands staðfest uppfærða kjarnorkuvopnaáætlun Rússlands í dag.AP

Rússlandsforseti undirritaði í dag uppfærða kjarnorkuvopnaáætlun sem heimilar notkun kjarnorkuvopna ef ríki án slíkra vopna ógnaði öryggi Rússlands.

Mark Rutte aðalframkvæmdastjóri NATO sagði í dag að bandalgsríkin ræddu nú enn frekari stuðning við Úkraínu. „Sérstaklega núna eftir að norður Kórea hefur blandað sér í stríðið. Við vitum að Kínverjar veita Rússum aðstoð við stríðsreksturinn og við vitum að Íranir gera það einnig,“ sagði Rutte.

Mark Rutte aðalframkvæmdastjóri NATO segir bandalagsríkin nú ræða aukinn stuðning við Úkraínu.AP/Nicolas Tuca

Rússar greiddu greiddu meðal annars fyrir þessa aðstoð með tæknilegum upplýsingum um eldflaugasmíði.

„Sem er bein ógn. Ekki aðeins við okkur heldur einnig við suður Kóreu, Japan og jafvel meginland Bandaríkjanna,” sagði Mark Rutte í dag.


Tengdar fréttir

Þúsund dagar af grimmd og eyðileggingu

Í dag eru þúsund dagar liðnir frá allsherjar innrás Rússa í Úkraínu hinn 24. febrúar 2022. Milljónir manna hafa flúið landið og talið er að fimm milljónir íbúa landsins búi við fæðuskort. Helmingur allra orkuinnviða landsins hefur verið eyðilagður í árásum Rússa.

Segir Biden „hella olíu á eldinn“

Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sakaði Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, í morgun um að „hella olíu á eldinn“ með því að veita Úkraínumönnum leyfi til að nota bandarískar eldflaugar til árása í Rússlandi.

Scholz ver sím­tal sitt við Pútín

Enga hugarfarsbreytingu var að merkja hjá Vladímír Pútín gagnvart stríðsrekstri hans í Úkraínu í símtali við Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, fyrir helgi. Scholz á í vök að verjast vegna símtalsins og er sakaður um að rjúfa samstöðu með Úkraínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×