Þetta hefur New York Times eftir þremur heimildarmönnum sínum, sem sagðir eru tengjast tilboðinu. Donald Trump Bandaríkjaforseti frestaði banni forvera síns í starfi á TikTok um 75 daga í janúar síðastliðnum og sá frestur rennur út á sunnudag.
Reyna að koma samfélagsmiðlinum í var
Í frétt New York Times segir að Hvíta húsið rói nú að því öllum árum að koma sölu á Tiktok í kring áður en bannið tekur gildi á ný. Þar hafi meðal annars verið reynt að koma saman hópi bandarískra fjárfesta í Tiktok, þar á meðal tæknirisanum Oracle og sjóðsstýringafélaginu Blackrock, sem myndi koma að samfélagsmiðlinum án þess að formleg sala færi fram.
Þó liggi ekki fyrir hvort slíkt samkomulag myndi uppfylla skilyrði laga þeirra sem banna Tiktok í Bandaríkjunum.
Amazon hefur reynt að komast inn á markaðinn
Í fréttinni segir að Amazon hafi skilað tilboði í Tiktok til J.D Vance, varaforseta Bandaríkjanna, og Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna. Amazon hafi neitað að tjá sig um málið og eigendur Tiktok hafi ekki svarað fyrirspurn um málið. Haft er eftir heimildarmönnum að tilboðinu hafi ekki verið tekið sérstaklega alvarlega.
Þó skyldi engan furða að Amazon hefði áhuga á að eignast Tiktok enda tengist samfélagsmiðilinn verlsunarrisanum nánum böndum. Áhrifavaldar á miðlinum hafa verið duglegir að auglýsa hinar ýmsu vörur sem fást á Amazon, gegn söluþóknun.
Þá hefur Amazon reynt að koma sér inn á sama markað og Tiktok starfar á með Inspire, eins konar smáforriti innan smáforrits Amazon. Verkefnið vakti talsverða athygli en gekk illa og hefur nú verið fjarlægt úr forritinu.