Það var mikið líf og fjör í opnunarteitinu og Ásdís Þula, eigandi gallerísins, fagnaði afmæli sínu samdægurs.
Sýningarrýmið er staðsett á Hafnartorgi við Bryggjugötu og var Þula þar að opna vettvang sem sameinar sýningarrými og faglega ráðgjöf. Aðalrými Þulu er enn staðsett í Marshallhúsinu í Reykjavík.
Kristín Helga Ríkharðsdóttir tók BA gráðu sína við myndlist í Listaháskóla Íslands og fór þaðan í meistaranám í New York University Steinhardt. Hún hefur sömuleiðis verið búsett í Berlín og sækir innblásturinn víða.

Sýninguna Data gígar vann hún að miklu leiti í vinnustofudvöl sinni í ISCP í New York sumarið 2024 og færir áhorfendum inn í stafrænan heim neonlita og jarðhræringa.
„Við gerð málverkanna nota ég þrívíddarforrit til að skapa myndir sem eru svo ofnar stafrænt og strekktar á ramma. Ég nota akríl-resínmálningu til að bæta við þrívídd í verkunum ásamt fundnum textíl og hlutum.“
Hún byrjaði á þessari málverkaröð í meistaranáminu í New York 2021.
„Þá hófst eldgos á Reykjanesi og ég heillaðist af því að fylgjast með því í beinu streymi og fréttum. Þegar ég sá gosið loks í eigin persónu varð ég vitni að litríkum, neonlituðum hraunstrókum sem sprungu úr jörðinni og mynduðu nýtt fjall.
Sú óraunverulega tilfinning sem ég upplifði við þennan dýnamíska og umbreytandi náttúruatburð varð innblástur fyrir málverkin. Eldgosið minnti mig á stafræna heima, þar sem stöðug sköpun og eyðing eiga sér stað, líkt og hraunflæði sem endurskrifar landslagið.
Síðan þá hef ég unnið að seríunni með hléum, þar sem eldgos virðast hafa orðið að hluta af íslenskum hversdagsleika. Myndmál verkanna tekur meðal annars til iStock-mynda, stærðfræðitákna, lottókúla, tilvísana í landslagsmálverk og fjölfeldni.
Smáar manneskjur sjást oft í myndunum, horfandi á eldgosið með dýrkunarfullri forvitni, þar sem eldgosið táknar bæði sköpun og eyðingu,“ segir Kristín Helga um sýninguna.
Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni:














