Måns Zelmerlöw hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. Popparinn sem sigraði Eurovision árið 2015 með laginu „Heroes“ lenti í öðru sæti á eftir grínhljómsveitinni KAJ í Melodifestivalen í Svíþjóð á dögunum. Hann brást illa við ósigrinum og sagðist sérstaklega hissa á atkvæðum alþjóðlegra dómnefnda.
Hann hélt svo uppteknum hætti dagana á eftir og sendi gagnrýnendum sínum pillu á samfélagsmiðlum. Skömmu síðar kom í ljós að Måns hefði skilið við eiginkonu sína Ciöru skömmu fyrir tónleikana. Þau höfðu verið saman í tíu ár og eiga tvö börn saman.
Fyrrverandi eiginkona Måns, leikkonan Ciara Janson, opnaði sig í mars um skilnað þeirra hjóna og sagðist ekki geta þagað lengur yfir skilnaðinum og ástæðum hans.
„Ég get ekki lengur horft upp á fjölskyldu mína lifa í fjandsamlegu umhverfi þar sem þau verða vitni að fíkniefnamisnotkun, andlegu og líkamlegu ofbeldi og endalausu framhjáhaldi,“ skrifaði hún í tilkynningu sem hún birti á Instagram.
Måns neitaði þá öllum ásökunum Ciöru en á mánudag viðurkenndi hann í viðtali við sænska dagblaðið Göteborgs-Posten að hafa notað kókaín.
„Ég hef verið á móti fíkniefnum alla mína ævi, en fyrir tveimur árum birtist efnið í tónleikaferðalagarútunni. Allir hinir voru að nota það. Þetta er alvanalegt í mínum bransa þannig það var erfitt að prófa þetta ekki, sagði Måns við blaðið.
Þá sagði hann að hann hefði leitað sér aðstoðar og hefði unnið bug á fíkn sinni. Hann sagðist stoltur af því að hafa unnið bug á fíkninni og myndi aldrei snerta kókaín aftur. Hann áréttaði að hann hefði aldrei notað vímuefni fyrir framan börn sín og neyslan hefði einungis tengst djamminu.
Måns spilaði í Laugardalshöll á úrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2017 og tók þar tvö lög sem má heyra hér að neðan: