Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-0 | Meistararnir með markaveislu í sólinni Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 3. maí 2025 15:50 vísir/Diego Breiðablik vann 4-0 sigur gegn Víkingi í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Veðrið lék hreinlega við leikmenn Breiðabliks sem skoruðu fjögur mörk í leiknum. Blikar á toppi deildarinnar eins og er með tíu stig. Það tók Blika einungis tíu mínútur að skora fyrsta mark leiksins sem kom eftir hornspyrnu Öglu Maríu. Heiða Ragney Viðarsdóttir kom boltanum yfir línuna. Birta Georgsdóttir var að sleppa inn fyrir vörn Víkings á 16.mínútu en var tekin niður af Áslaugu Dóru Sigurbjörnsdóttir sem fékk gult spjald fyrir. Agla María Albertsdóttir skoraði örugglega af punktinum og smellti boltanum í vinstra hornið. Blikar héldu áfram að sækja á Víkinga í leit að þriðja markinu sem lá hreinlega í loftinu. Á 39. mínútu skoraði Agla María Albertsdóttir laglegt mark fyrir utan vítateig og boltinn hreinlega steinlá í markinu. Tvö mörk og stoðsending hjá Öglu Maríu Albertsdóttur í dag. Seinni hálfleikur byrjaði af krafti hjá Víkingi sem voru duglegir að sækja á mark Breiðabliks en engin alvöru hætta á ferð. Á 81. mínútu skorar varamaður Blika Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir mark eftir frábæra sendingu frá Birtu Georgsdóttir sem var lífleg í seinni hálfleik og átti nokkur marktækifæri sem enduðu því miður ekki í netinu. 3 stig fyrir Breiðablik og komnar með 19 mörk eftir fjóra leiki. Stjörnur og skúrkar Agla María Albertsdóttir fyrirliði Blika sigldi sigrinum heim fyrir Blika með þátttöku sinni í þremur og fjórum mörkum dagsins. Birta Georgsdóttir var virkilega góð í dag og hefði mátt skora úr eitthverjum af marktækifærunum sem hún fékk en stoðsending dugir í dag. Linda Líf Boama, Bergþóra Sól Ásmundsdóttir og Bergdís Sveinsdóttir leikmenn Víkings eiga skilið hrós fyrir frammistöðu sína í leiknum í dag þrátt fyrir tap. Dómararnir Brynjar Þór Elvarsson með flautuna í dag og með honum var Guðmundur Valgeirsson og Eydís Ragna Einarsdóttir. Engar erfiðar ákvarðanir í dag fyrir utan kannski vítið á 10. mínútu annars fóru dómararnir nokkuð þægilega í gegnum þennan leik. Stemning og umgjörð 175 manns í stúkunni en ég hefði viljað sjá fleiri. Ákall á stuðningsmenn beggja liða að mæta á völlinn og styðja sitt lið áfram. Kannski voru allir bara í sundi hérna í höfuðborginni. Fjölmiðlamenn sammældust um að það vantaði mat og drykk í fjölmiðlastúkuna. Besta deild kvenna Breiðablik Víkingur Reykjavík