Uppgjörið: Noregur - Ísland 1-1 | Dýrt sjálfsmark kostaði sigurinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. maí 2025 17:18 Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði mark Íslands. vísir/Anton Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta gerði 1-1 jafntefli er liðið heimsótti Noreg í Þjóðadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Norska liðið byrjaði betur og hafði yfirhöndina á fyrstu mínútum. Heimakonur náðu hins vegar ekki að skapa sér opin marktækifæri. Íslensku stelpurnar tóku við sér þegar um stundarfjórðungur var liðinn af leiknum. Á 16. mínútu tók Sandra María Jessen vel við boltanum og lagði hann á Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur. Karólína kom boltanum fram þar sem Sveindís Jane Jónsdóttir tók við honum, keyrði inn á teiginn, köttaði á hægri og lagði boltann snyrtilega í nærhornið. Stöngin inn, takk fyrir. Bæði lið fengu svo tækifæri til að koma boltanum í netið það sem eftir lifði hálfleiks. Fleiri urðu mörkin þó ekki fyrir hlé og staðan því 0-1, Íslandi í vil, þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Þær norsku höfðu svo yfirhöndina stærstan hluta seinni hálfleiks. Besta færi liðsins fékk Caroline Graham Hansen strax á þriðju mínútu seinni hálfleiks eftir klaufagang í vörn Íslands, en skot hennar framhjá og íslensku stelpurnar sluppu með skrekkinn. Eftir því sem leið á leikinn komst meira jafnvægi á hlutina. Norska liðið var áfram meira með boltann, en íslenska vörnin hélt vel. Það var svo ekki fyrr en á 83. mínútu sem þær norsku náðu loksins að koma boltanum í netið. Það voru reyndar ekki þær norsku sem komu boltanum yfir línuna því fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir vel útfærða sókn Norðmanna. Norska liðið sótti þungt það sem eftir lifði leiks, en tókst ekki að finna sigurmarkið. Niðurstaðan því 1-1 jafntefli og liðin skipta stigunum á milli sín. Norðmenn sitja því enn í öðru sæti riðilsins, nú með 5 stig , einu stigi meira en íslenska liðið sem situr í þriðja sæti. Atvik leiksins Jöfnunarmark Noregs er atvik leiksins í kvöld. Íslensku stelpurnar höfðu varist vel stærstan hluta leiksins, en að fá á sig sjálfsmark undir lokin er súrt. Stjörnur og skúrkar Sveindís Jane er alltaf hættuleg þegar hún kemst í boltann. Hún komst því miður ekki nógu oft í boltann í kvöld, en skilaði liðinu marki í fyrri hálfleik sem sá til þess að íslensku stelpurnar tóku stig. Það er hins vegar ekki oft sem við fáum tækifæri til að velja Glódísi Perlu sem skúrk, en við nýtum það tækifæri í kvöld. Í raun lítið sem Glódís gat gert annað en að setja löppina í boltann og hún var óheppin að setja boltann í eigið net. Dómarinn Spænska dómarateymið með Olatz Rivera Olmedo í fararbroddi átti fínan dag í dag. Vissulega lítið um vafaatriði, en Spánverjarnir voru með allt á hreinu. Stemning og umgjörð Það var heldur róleg stemning á Lerkendal í kvöld. Ágætlega mætt á völlinn, en það er ekki hægt að segja að það hafi verið mikil læti í stúkunni. Þjóðadeild kvenna í fótbolta Landslið kvenna í fótbolta