Margt ábótavant við byggingu Brákarborgar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. júní 2025 23:40 Leikskólinn Brákarborg hefur staðið tómur síðan mistök við framkvæmdir á húsnæðinu komu í ljós. Vísir/Vilhelm Ný skýrsla sem kynnt var fyrir borgarráði í dag um framkvæmdir í leikskólanum Brákarborg sýnir að margt hafi verið ábótavant við framkvæmdirnar. Til að mynda hófust framkvæmdir á þaki hússins áður en teikningar frá hönnuði og burðarvirkishönnuði lágu fyrir frá byggingarfulltrúa.
Starfsemi hófst í leikskólanum Brákarborg við Kleppsveg síðsumars 2022. Seinna meir kom í ljós að mistök höfðu verið gerð við byggingu hússins, álag ásteypulags og torf á þaki skólans hafi verið meira en tilgreint var á teikningum. Það olli meðal annars sprungum í veggjum byggingarinnar og ójöfnu gólfi. Sumarið 2024 voru öll börnin færð yfir í húsnæði við Ármúla 28-30 á meðan unnið væri að viðgerð. Í lok sumars 2024 fól borgarráð Innri endurskoðun og ráðgjöfum borgarinnar (IER) að framkvæma sjálfstæða heildarúttekt á framkvæmd leikskólans. Skýrsla IER var kynnt borgarráði í dag þar sem lagðar voru fram fjórtán tillögur að umbótum. Þar af eru þrjár tillögur um burðarvirkishönnun og burðarvirki, þrjár um ábendingar um hvernig megi bæti eftirlit með mannvirkjagerð, fimm ábendingar um hagkvæmari og skilvirkari framkvæmdir og þrjár um stjórnskipulag, gæðakerfi og mönnun. Þá kom fram að umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar ætti að meta hvort sækja eigi skaðabætur til verktaka og ráðgjafa vegna málsins. Nú hefur borgarráð samþykkt að skipa eigi starfshóp að vinna upp úr úttekt IER og „vinna að umbótum er varða eftirfylgni á hönnun, framkvæmdum og eftirliti með framkvæmdum á vegum borgarinnar.“ Alls komu sjö aðilar að hönnun Brákarborgar; Arkís ehf., Verkís ehf., Kanon ehf., Arkamon ehf., Teknik ehf., Liska ehf. og Cowi ehf. IER telur að þar hafi of margir komið að verkefninu. „Aðrar leiðir hefðu mögulega getað skilað öruggari tryggingum, skýrari ábyrgðarskiptingu og hagkvæmari innkaupum,“ stendur í skýrslunni. Vanhæfur burðarvirkishönnuður og óuppfylltir jarðskjálftastaðlar Í skýrslu IER kemur fram að við kaup Reykjavíkurborgar á húsnæðinu við Kleppsveg hafi verið framkvæmd ástandsskoðun en ekki sérstök skoðun á burðarvirki bygginganna. Það sé mikilvægt að þess konar skoðun fari fram þegar kaupendur hyggjast eiga í framkvæmdum. Eftir að sprungur í veggjunum fóru að myndast kom einnig í ljós að byggingar leikskólans uppfylltu ekki gildandi jarðskjálftastaðla. Burðarvirkishönnuðurinn sem var ráðinn í verkið á þeim grundvelli að hann bauð lægsta verðið er talinn hafa ekki uppfyllt hæfisskilyrði samkvæmt IER. Þá vantaði einnig mikilvæg gögn í útboð á verkefninu líkt og burðarvirkisuppdrætti og greinargerð um burðarhæfni byggingarinnar þar sem tekið er tillit til áætlaðrar notkunar. Að auki skilaði burðarvirkishönnuður ekki burðarvirkisuppdráttum. „IER óskaði eftir vinnugögnum og útreikningum frá burðarvirkishönnuði vegna burðarvirkis Brákarborgar. Engum vinnugögnum var skilað inn.“ Þá kemur fram að byggingarstjóri hefði átt að gera athugasemd við skort á gögnum í skýrslunum sínum. Benda á hvorn annan Í skýrslunni kemur fram að framkvæmdir á þakinu, þar sem álag ásteypulags og torfs var meira en tilgreint á teikningum, hófust „áður en stimplaðar og samræmdar teikningar frá aðalhönnuði og burðarvirkishönnuði lágu fyrir frá byggingarfulltrúa.“ Ekki liggur fyrir um hver sagði að framkvæmdir ættu að hefjast án teikninganna. Í skýrslunni segir að umsjónar- og eftirlitsaðilinn „sagði að rík krafa hefði verið frá fulltrúa verkkaupa um að verkið tefðist ekki.“ Hins vegar sagðist aðilinn ekki ábyrgur fyrir þessari ákvörðun heldur hafi skipunin komið frá fulltrúa verkkaupa í samráði við hönnuði. Skýrslu Innri endurskoðunar og ráðgjöfum borgarinnar má lesa hér.
Leikskólar Reykjavík Mest lesið Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Innlent Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Innlent Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Erlent Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Erlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Ásthildur Lóa skammar þingheim Innlent Framtíð kirkjunnar enn óráðin Innlent Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Innlent Fleiri fréttir Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Búa sig undir margmenni á Hengil Ultra Ásthildur Lóa skammar þingheim Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Launahækkanir ráðamanna og rifrildi Trumps og Musks í hádegisfréttum Aflýsa óvissustigi vegna norðanáhlaupsins Tveggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur konum og karli Aflamark þorsks lækkað og reiknað með að stofninn minnki áfram Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Neitaði að blása í áfengismæli Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Mörgu ábótavant við byggingu Brákarborgar Framtíð kirkjunnar enn óráðin Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“ Börn verði að fá þau skilaboð að ofbeldi gegn þeim sé aldrei réttlætanlegt Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu Inga Sæland segist vera allt of löt að hreyfa sig Fá Barnaverndarmál leiða til ákæru og Herkastalinn í nýjar hendur Ísland, þvert á flokka boðar til annarra mótmæla Parísarhjólið rís á ný Lögregla fann bakpoka fullan af skilríkjum Sjá meira