Upp­gjörið: Fram - FH 2-0 | Fram nýtti færin gegn FH í kvöld

Árni Jóhannsson skrifar
Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni sem þjálfari Fram 
Rúnar Kristinsson á hliðarlínunni sem þjálfari Fram  Vísir/Anton

Fram náði í góðan heimasigur gegn FH í 11. umferð Bestu deildar karla fyrr í kvöld. Það mætti tala um að frammistaðan hafi verið þroskuð en vörnin var þétt og færanýtingin góð. Leikar enduðu 2-0, Fram færist nær efri helmingnum en FH dettur niður í fallsæti.

FH byrjaði leikinn ögn betur og var meira með boltann upphafsmínútur hans og í fyrri hálfleiknum öllum en náðu ekki að nýta þau fáu færi sem þeir sköpuðu sér. Það gerðu Framarar hinsvegar og strax á 6. mínútu var boltinn kominn í netið og var Vuk Oskar Dimitrijevic þar að verki. 

Róbert Hauksson komst þá upp að endamörkum og negldi boltanum fyrir og Amid Faqa gætti ekki að sér á fjærstönginni og Vuk henti sér á boltann og setti hann í netið. Þetta var kjaftshögg fyrir FH sem náðu sér ekki á strik og Fram átti mun hættulegri færi í fyrri hálfleik en FH náðu ekki að hitta á rammann þegar þeir loksins náðu að koma sér í skotstöður.

Framarar voru duglegir að fara upp vinstri kantinn og gera usla en náðu ekki að bæta við marki sem mögulega hefði verið sanngjarnt þegar upp var staðið. Heimir þjálfari FH sagði í viðtali að honum fannst sitt lið vera heppið með að vera bara einu marki undir í hálfleik og það geta allir verið sammála því.

FH kom sterkt út í seinni hálfleik og átti skot strax á fyrstu mínútu sem hitti ekki rammann þó en eftir það datt leikurinn niður í gamla góða miðjumoðið. Harka færðist í leikinn og mörg spjöld fóru á loft og menn nýttu hin svokölluðu fagbrot vel. Fram fór svo að banka hressilega á dyrnar þegar líð tók á og það bar ávöxt loksins á 77. mínútu og geta heimamenn þakkað einbeitingarleysi Hafnfirðinga fyrir aftur. 

Haraldur Einar Ásgrímsson átti þá skot úr aukaspyrnu rétt utan við vítateiginn sem Matthias Rosenorn varði vel. Hann náði þó ekki að halda knettinum og sló hann til Sigurjóns Rúnarssonar sem var grunsamlega einn á markteig FH-inga. Sigurjón þakkaði pent fyrir sig og renndi boltanum í markið og eiginlega kláraði leikinn.

FH reyndu hvað þeir gátu en Viktor Freyr Sigurðsson í markinu varði oft og tíðum vel og greip inn í fyrirgjafirnar sem FH reyndi. Kjartan Kári átti skot í stöng og oft voru FH ekki að hitta á rammann. Því fór sem fór og sitja FH-ingar í 11. sæti þegar 11 umferðir eru búnar. Fram hoppaði upp í sjötta sæti en þurfa að bíða eftir úrslitum morgundagsins til að sjá hvort þeir verði þar eftir 11 umferðir.

Atvik leiksins

Fyrsta markið. Fyrir það fyrsta kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti en þetta var fyrsta sóknarlota heimamanna. Í annan stað þá skoraði Vuk Dimitrijevic markið en hann var að skora í fjórða leiknum í röð í Bestu deildinni og gegn sínum fyrra félagi. Þetta gaf liðinu einnig byr undir báða vægi sem bar þá yfir línuna.

Stjörnur og skúrkar

Það voru margar stjörnuframmistöður í dag hjá Fram. Viktor í markinu hjá heimamönnum gerði mjög vel í dag og er að vaxa í hlutverkið sem markvörður númer eitt hjá Fram. Vuk, Róbert og Már Ægisson voru stórt vandamál fyrir FH í dag. Varnarlínan var svo mjög þétt og eiginlega ekki veikan blett að finna á leik Framara.

FH-ingar þurfa að líta í eigin barm eins og Heimir kom að í viðtali. Margir sem voru út á túni og sérstaklega í varnarlínunni og á tímapunktum sem skiptu máli. Kjartan Kári Halldórsson og Björn Daníel Sverrisson sem geta labbað frá leiknum þokkalega sáttir með sig en aðrir ekki.

Umgjörð og stemmning

589 manns í blíðunni á Lambhagavellinum í dag. Framarar létu á köflum vel í sér heyra en ég veit ekki hvort einhver hafi komið úr Hafnarfirðinum. Umgjörðin hér í Úlfarsárdalnum er alltaf til fyrirmyndar.

Dómarinn

Helgi Mikael var með skrítnar ákvarðanir á köflum án þess þó að það skipti máli. Það hefði getað skipt máli þó. Á 66. mínútu var ekki dæmd augljós hendi á FH og Kjartan Kári Halldórsson komst í skyndisókn en náði ekki að nýta færið.

Viðtöl

Vuk: Ég er að skila mér betur í boxið og er nær markinu

„Bara samheldni sem skilaði þessu í dag fyrir okkur. FH er gott lið með góða einstaklinga og við þurftum að vinna sem lið í dag. Við tókum færin okkar vel í dag og hefðum getað skorað eitt eða tvö í viðbót jafnvel.“, sagði markaskorarinn Vuk Oskar Dimitrijevic þegar hann var spurður að því hvað skilaði frábærum sigri Fram í dag.

Vuk er að spila virkilega vel þessa dagana og er búinn að skora í fjórum leikjum í röð og er kominn með sex mörk í heildina í deildinni í sumar. Hvað hefur breyst hjá honum á milli tímabila.

„Ég veit ekki. Ég er að skila mér betur í boxið og er nær markinu. Svo er það bara sjálfstraust. Allt þetta saman er að skila þessu.“

Að lokum var Vuk spurður hvort það væri þjálfarinn sem skilaði sjálfstraustinu og svarið var stutt og laggott: „Eigum við ekki bara að segja já“, sagði Vuk og horfði yfir til Rúnars Kristinssonar sem var á leiðinni í viðtal á eftir honum.

Rúnar: Það er í mínum verkahring að ná í betri árangur en í fyrra

Rúnar Kristinsson var himinlifandi með sigur sinna manna í dag og fór um víðan völl eftir að hafa verið spurður að því hversu sætur sigurinn hefði verið.

„Ohh, hann var geggjaður. Þetta var frábær sigur og að byrja eftir fríið á góðum heimasigri á góðu FH liði var bara mikill léttir. Ég var mjög stressaður í allan dag fyrir leikinn og á meðan honum stóð var ég aldrei í rónni því ég þekki Heimi mjög vel og hans lið eru alltaf öflug og það er erfitt að eiga við þá. Þeir eru með flott upplegg og stóra stráka frammi í boxinu og í kringum teiginn. Stórir strákar og margar fyrirgjafir sem þeir náðu í dag og sköpuðu sér einhver færi og það sem fór á markið tók Viktor sem var frábær í dag. Þetta var liðssigur. Ég var kannski ósáttur við það hvað þeir náðu mörgum fyrirgjöfum en við ætluðum að stoppa þetta en við vorum betri í þessu í síðari hálfleik.“

Er hægt að tala um þroskaða frammistöðu?

„Að einhverju leyti. Það er allavega gríðarleg trú hjá mannskapnum og það hjálpar að komast yfir eftir að hafa tapað síðustu leikjum. Þá er gott að komast yfir og fá smá trú og sjálfstraust og halda þessu inn í hálfleikinn þar sem við getum rétt af hlutina og hvernig við getum brugðist við þeirra sóknarleik og stoppað þá betur. Annað markið gefur okkur mikið og á sama tíma kemur Fred inn á sem gefur okkur ró á boltann þannig að það er ekki amalegt að hafa hann og Simon Tibbling á miðjunni þegar við þurfum að passa boltann. Svo voru fleiri góðir sem geta brugðist við öllu og hjálpað okkur yfir línuna og ég er mjög ánægður með liðið í dag.“

Vuk Oska Dimitrijevic er að eiga mjög gott mót. Hvað sér Rúnar að sé öðruvísi í ár frá öðrum árum?

„Ég var kannski ekki að fylgjast neitt sérstaklega mikið með honum í öðrum liðum. Maður reynir bara að lesa í karakter og týpur af leikmönnum sem maður er að vinna með. Það er enginn eins við þurfum að lesa aðeins í hausinn á þeim til að finna hvað þeir þurfa til að kveikja á þeim. Við höfum fundið ágætis leiðir til að leyfa Vuk að blómstra og gefum honum frjálsræði, sjálfstraust og trú og hann uppsker því honum líður vel. Honum finnst gaman og mönnum þarf að finnast gaman að fara inn á völlinn og þannig þarf maður að leyfa öllum að njóta sín og dýrka sína styrkleika ef ég orða það þannig. Þannig fá allir smá frjálsræði innan ákveðinna marka að vísu.“

Fram verður í sjötta sæti yfir nótt og var Rúnar spurður að því hvert Framarar eigi að horfa núna.

„Við erum bara að horfa á topp sex, við erum ekki að horfa á neitt annað. Ég er ósáttur við fyrri hlutann okkar þó svo við séum komnir með 15 stig, sem er meira en á sama tíma í fyrra. Við erum að bæta okkur þar, við erum komnir jafn langt í bikarnum og í fyrra og við þurfum að bæta okkur þar líka og við viljum gera betur en í fyrra. Ég er að reyna að þróa eitthvað lið og er að fá mikinn stuðning frá stjórn að bæta við leikmönnum og að gera umgjörðina betri. Ég hef fengið það og það er í mínum verkahring að ná í betri árangur en í fyrra og það er algjörlega markmiðið. Við trúum á það.“

„Ég hef þjálfað það lengi í deildinni að ég sé og ég veit að ég er með það gott lið að við eigum að vera í topp sex. Og ef það gengur ekki upp þá eru það mistök hjá mér og ég tek það bara á mig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira