Innlent

Lág­marks lokanir í kringum Austur­völl á 17. júní

Auðun Georg Ólafsson skrifar
Stéttin fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni verður afgirt. Þar mun ríkisstjórnin, forseti Íslands, biskup Íslands og erlendir gestir sitja.
Stéttin fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni verður afgirt. Þar mun ríkisstjórnin, forseti Íslands, biskup Íslands og erlendir gestir sitja.

„Austurvöllur verður mun minna girtur af heldur en hefur verið undanfarin ár,“ segir Björg Jónsdóttir, verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavikurborg. Lögregla sér um öryggisgæslu en lokanir i kringum svæðið verða í lágmarki.

Athöfnin á Austurvelli á morgun verður með breyttu sniði í ár þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarpið sem allt fram til þessa hefur verið í höndum forsætisráðherra. Eftir að Kristrún leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar flytur fjallkonan ávarp en venju samkvæmt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til hún gengur út á völlinn. Þarna verða ráðherrar ríkisstjórnarinnar, biskup Íslands, erlendir gestir og fleiri fyrirmenni.

Athygli vekur að mun minna verður um lokanir í kringum Austurvöll en hefur verið undanfarin ár. Björg segir að fólk eigi ekki að finna mikið fyrir mikilli gæslu þó hún vissulega verði til staðar. „Stéttin sjálf, fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni verður afgirt. Þar mun ríkisstjórnin, forseti Íslands, biskup Íslands og erlendir gestir sitja. Almenningur kemst að á grasinu á milli stéttarinnar fyrir framan styttu Jóns Sigurðssonar og Alþingishúss til að geta fylgst með viðburðinum.“

Nóg um að vera í rigningu

Það er líklegt að margir verði blautir á fjölmörgum viðburðum á morgun og því gott að græja sig með regnfatnaði og regnhlílf. Spáð er rigningu eða súld með köflum. Hiti verður á bilinu 7 til 13 stig. Vestlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu. 

Fjöldi viðburða er út um allt land:

17. júní í Reykjavík

17. júní í Kópavogi

17. júní í Hafnarfirði

17. júní á Akureyri

17. júní í Múlaþingi

17. júní á Ísafirði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×