Upp­gjörið: Þór/KA 0 - 2 Breiða­blik | Blikar með öruggan sigur

Árni Gísli Magnússon skrifar
Birta Georgsdóttir skoraði bæði mörk Blika
Birta Georgsdóttir skoraði bæði mörk Blika Vísir/Hulda Margrét

Breiðablik hafði betur gegn Þór/KA í Boganum á Akureyri í 9. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Lokatölur 0-2 þar sem Birta Georgsdóttir skoraði bæði mörk leiksins.

Gestirnir hófu leikinn af miklum krafti og fékk Birta Georgsdóttir sannkallað dauðafæri á fjórðu mínútu leiksins en á einhvern ótrúlegan hátt setti hún boltann fram hjá markinu, en hún var alein gegn Jessicu í marki Þór/KA.

Birta bætti upp fyrir klúðrið með því að koma Blikum í forystu eftir stundarfjórðung. Agla María þræddi þá boltann í gegnum vörn heimakvenna með langri sendingu í hlaupið hjá Birtu sem gerði vel í að klára færið.

Blikar héldu mun meira í boltann og Þór/KA komst lítið áleiðis en nálgun þeirra á leikinn var nokkuð áhugaverð þar sem liðið reyndi að spila út frá markmanni og reyna svo að setja háan bolta inn fyrir vörnina þegar komið var lengra upp völlinn. Blikar pressuðu heimakonur vel og gerðu þeim erfitt fyrir.

Birta Georgsdóttir tvöfaldaði forystu Breiðabliks á 35. mínútu eftir frábæran undirbúning frá Samönthu Smith sem geystist upp allan hægri kantinn áður en hún gaf boltann á Birtu inn á teignum, sem sneri og setti boltann laglega í netið.

Þór/KA byrjaði seinni hálfleik vel og var Ellie Moreno óheppinn að minnka ekki muninn þegar Telma Ívarsdóttir í marki Blika varði vel frá henni eftir undirbúning frá Söndru Maríu.

Síðari hálfleikur var mun betri að hálfu Þór/KA sem voru nokkrum sinnum nálægt því að minnka muninn en allt kom fyrir ekki. Næst komst Sandra María í uppbótatíma þegar hún þrumaði boltanum í slána og niður.

Breiðablik fór því með sterkan 2-0 útisigur af hólmi og tyllir sér á topp deildarinnar með betri markatölu en Þróttur. Þór/KA áfram í fimmta sæti.

Atvik leiksins

Fyrsta mark leiksins. Frábær sending frá Öglu Maríu inn fyrir á Birtu sem klárar færið sitt vel. Kannski ekki með sjálfstraustið alveg í botni eftir að hafa klúðrað svakalegu færi stuttu áður en þarna gerði hún vel.

Stjörnur og skúrkar

Birta Georgsdóttir hefði hæglega getað skorað þrennu í dag. Var mjög ógnandi og alltaf til í að fá boltann og annað hvort sækja á sjálf eða búa til fyrir liðsfélaga sína.

Kristín Dís tapaði vart návígi í leiknum og var sem klettur í vörninni.

Agla María Albertsdóttir lagði upp mark og hefði hæglega getað skorað líka.

Hjá Þór/KA varði Jessica Berlin nokkrum sinnum vel og gat ekkert gert í mörkum Blika.

Margrét Árnadóttir hafði alveg ofboðslega mikið að gera á miðjunni gegn sterkri miðju Blika og á hrós skilið.

Dómarinn

Engin stór atriði sem hægt er að setja út á og heilt yfir vel dæmdur leikur.

Stemning og umgjörð

Umgjörðin eins góð og hún getur eflaust orðið í Boganum.

Sérstakt hrós fá krakkar sem börðu á trommur og sungu allan leikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira