Uppgjörið: Afturelding 0 - 1 Fram | Fram síðasta liðið áfram í undanúrslit Hinrik Wöhler skrifar 19. júní 2025 19:16 Fred Saraiva kom inn í liðið í dag Guðmundur Þórlaugsson/Vísir Fram varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta. Leikurinn fór fram á Malbikstöðinni að Varmá og sigruðu gestirnir 1-0. Það var jafnræði með liðunum í upphafi leiks og náðu bæði lið ágætis sóknum án þess þó að ógna marki andstæðingana almennilega. Framarar voru nálægt því að brjóta ísinn á 20. mínútu þegar Vuk Oskar Dimitrijevic átti sprett upp völlinn sem endaði með föstu skoti á nærstönginni. Jökull Andrésson, markvörður Aftureldingar, var snöggur til og náði að blaka boltanum frá og kom í veg fyrir mark. Gestirnir fengu aragrúa af hornspyrnum í fyrri hálfleik en varnarmenn Aftureldingar stóðu þéttir fyrir og náðu Framarar ekki að nýta föstu leikatriðin. Þórður Gunnar Hafþórsson var ógnandi á hægri kantinum í fyrri hálfleik og á 45. mínútu fékk Aron Jónsson færi inn í vítateignum eftir góðan undirbúning Þórðar. Aron var hársbreidd frá því að koma boltanum í netið en skotið endaði í þverslánni. Fleira markvert gerðist ekki í fyrri hálfleik og var markalaust í hálfleik í Mosfellsbæ. Jökull Andrésson varði vel á köflum en það dugði ekki til.vísir/Diego Jökull Andrésson bjargaði samherja sínum, Aroni Elí Sævarssyni, í upphafi seinni hálfleiks þegar fyrirgjöf Kennie Chopart fór í Aron Elí og breytti um stefnu. Boltinn var á leið í netið en Jökull bjargaði Mosfellingum á elleftu stundu. Framarar héldu uppi góðri pressu í upphafi seinni hálfleiks og fékk Róbert Hauksson nokkur skallafæri með skömmu millibili en náði ekki að hitta rammann. Gestirnir brutu loks ísinn á 68. mínútu þegar Freyr Sigurðsson stangaði boltann í netið af stuttu færi. Vuk Oskar Dimitrijevic gaf hnitmiðaða sendingu inn í vítateiginn og þar kom Freyr á mikilli siglingu og kom Fram yfir. Framarar þéttu vörnina í kjölfarið en Mosfellingar náðu ekki að skapa sér hættuleg færi. Leikurinn fjaraði hægt og rólega út og hrósuðu gestirnir sigri undir lok leiks. Framarar eiga krefjandi verkefni fyrir höndum í undanúrslitum en liðið dróst á móti Vestra á útivelli. Atvik leiksins Skipting Fram á 53. mínútu skipti sköpum. Inn á völlinn kom Freyr Sigurðsson sem þakkaði fyrir sig skömmu síðar með laglegu skallamarki og tryggði Frömurum farseðilinn í undanúrslit. Stjörnur og skúrkar Framarar voru afar þéttir fyrir og gáfu Mosfellingum fá tækifæri, sér í lagi í seinni hálfleik og er hægt að telja upp marga í liði Fram sem áttu prýðis leik. Kyle McLagan, Israel Moreno og Sigurjón Rúnarsson stigu ekki feilspor í öftustu línu. Vuk Oskar Dimitrijevic og Freyr Sigurðsson eiga síðan heiðurinn af sigurmarki Fram. Vuk Oskar var sprækur að vanda í liði Fram. Það vantaði neista í sóknarleik Aftureldingar í seinni hálfleik en erfitt er að benda á ákveðna leikmenn. Það hefði þó verið forvitnilegt að sjá hvort Elmar Kári Cogic hefði getað breytt einhverju í seinni hálfleik ef hann hefði ekki verið í leikbanni. Dómarar Ívar Orri Kristjánsson var með flautuna í kvöld og er óhætt að gefa honum fyrstu einkunn fyrir hans frammistöðu. Hélt mjög vel utan um leikinn og litu enginn vafaatriði dagsins ljós. Stemning og umgjörð Tæplega 700 manns létu sjá sig í Mosfellsbænum og var ljómandi góð bikarstemning. Geiramenn, stuðningsmannahópur Framara, settu skemmtilegan blæ á leikinn en hópurinn söng hátt og snjallt allan leikinn. Aðrir létu fara vel um sig í heita pottinum sem var staðsettur við hliðarlínuna, sannarlega besta sætið á vellinum. Viðtöl Mjólkurbikar karla Afturelding Fram