Innlent

Sögu­lega lítið fylgi Fram­sóknar, veiðigjöld og Íran

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju. Vísir

Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ræðir hvaða verkefni séu á stefnuskránni og hvernig ráðuneytinu gengur að standa undir markmiðunum að virkja kraftinn í þjóðinni. 

Svanur Guðmundsson, sjávarútvegsfræðingur og Arnar Atlason, formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda ræða veiðigjaldafrumvarpið og tengd mál nú þegar umræða stendur sem hæst á þinginu.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, ræðir framtíð sína og flokksins, fylgið er í sögulegu lágmarki og pólitískur slagkraftur flokksins lítill eftir miklar hrakfarir í kosningum.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og fyrrverandi utanríkisráðherra, ræðir utanríkismál, þar með talin átökin milli Ísraels og Írans, hernaðarvæðingu, átakamenningu og hlutverk sitt sem sér­stak­ur er­ind­reki fram­kvæmda­stjóra Evr­ópuráðsins gagn­vart úkraínsk­um börn­um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×