Ísland fyrst Norðurlanda með EMotorad rafmagnshjól BSON 24. júlí 2025 10:04 „Ég held að styrkleikar okkar felist að mörgu leyti í hvað við eigum persónulegt samband við stofnendur EMotorad og það gerir okkur kleift að aðlaga hjólin sérstaklega að íslenskum neytendum,“ segir Bergur Sverrisson, framkvæmdastjóri BSON á Akureyri. EMotorad er nýtt og spennandi vörumerki á rafmagnshjólamarkaði sem hefur nú rutt sér til rúms á hér á landi. Ísland var sérstaklega valið til þess að kynna vörurnar fyrir Norðurlandamarkaði því neytendur hérlendis eru þekktir fyrir að vera kröfuharðir á gæði. Þessi alþjóðlega vaxandi framleiðandi hefur náð fótfestu á mörkuðum eins og Bandaríkjunum, Suður Evrópu, Ástralíu og Mið-Austurlöndum. „
Ég held að það skipti öllu máli fyrir lítil markaðssvæði eins og Ísland að eiga í góðum og beinum samskiptum við þá sem búa til vöruna. Það er erfitt fyrir íslenska endursöluaðila að vera ofarlega í forgangi þegar þeir versla við stór og mikil vörumerki, þetta er ókosturinn við að vera með lítinn markað. Ég held að styrkleiki okkar felist að mörgu leyti í hvað við eigum persónulegt samband við stofnendur EMotorad og það gerir okkur kleift að aðlaga hjólin sérstaklega að íslenskum neytendum,“ segir Bergur Sverrisson, framkvæmdastjóri BSON á Akureyri. Þétt tengsl við nýsköpunarhugsun í hjólabransanum EMotorad var stofnað á Indlandi í miðjum heimsfaraldri af fjórum vinum með brennandi áhuga á vistvænum samgöngum, heilsusamlegum lífsstíl og tækninýjungum. Tengsl Bergs við þessa frumkvöðla eiga rætur að rekja til námsára hans í Barcelona en Bergur lauk BA og MBA í námi í viðskiptum frá EU Business School haustið 2023. Höfuðstöðvar EMotorad í Pune á Indlandi eru í glænýju 10.000 fm húsnæði með öllum þeim tækjum og tólum sem þarf til þess að framleiða vörur í hæsta gæðaflokki. Höfuðstöðvar EMotorad fyrir Evrópumarkað eru í Barcelona og þar kynnist Bergur indverskum bræðrum sem sjá um rekstur félagsins í Evrópu. Þessi tengsl leiddu til þess að Ísland varð fyrsta skref EMotorad inn á Norðurlandamarkað. „Þeir eru miklir Íslandsvinir og eru heillaðir af náttúru landsins – og þeir skilja mikilvægi þess að bjóða upp á gæði sem standast kröfur Íslendinga.Þetta er búið að vera ótrúlega spennandi verkefni og magnað á sjá hvað þeim hefur tekist að vaxa á skömmum tíma. Við heimsóttum höfuðstöðvar EMotorad í Pune á Indlandi í desember 2023. Þá voru höfuðstöðvarnar í lágstemmdu 1500 fm húsi. Það var gaman að sjá hvað starfsfólkið var þéttur hópur og það var mikil sprotafyrirtækisstemning. Mikil hugmyndavinna og almennt góður andi. Ári seinna, eða núna í ársbyrjun 2025, þá eru höfuðstöðvarnar komnar í glænýtt 10.000 fm húsnæði með öllum þeim tækjum og tólum sem þarf til þess að framleiða vörur í hæsta gæðaflokki.” Tindur er vel útbúið fulldempað rafmagns fjallahjól ætlað þeim sem vilja geta hjólað í brautum og á krefjandi slóðum. Hjólin sérstaklega hönnuð fyrir íslenska neytendur Til þess að mynda sér sérstöðu á íslenskum markaði var tekin ákvörðun um að hanna þrjú hjól sérstaklega með íslenska neytendur í huga. „Við fengum tækifæri til þess að raða saman þremur hjólum og velja íhluti og liti með íslenska neytendur í huga. Ég hef hjólað mikið allt mitt líf. Ég ólst upp í Grafarvoginum og hjólaði mikið á fjallahjólum þar í kring og í Öskjuhlíðinni. Svo fluttum við til Akureyrar og ég hélt áfram að hjóla mikið í nærumhverfinu hér. Ég er líka búinn að kynnast því að búa í stórborg og hjóla til og frá skóla alla daga. Við byggðum á þessari reynslu og völdum íhlutina í þessi þrjú hjól fyrst og fremst með ætlað notagildi í huga. Ég upplifi að það sé allt of algengt að fólk kaupi sér vörur sem henta ekki endilega ætlaðri notkun. Okkur langar að gera þennan fararskjóta aðgengilegan fyrir alla og við viljum að fólkið okkar finni að það fái mikið fyrir peninginn sinn.“ Dalur er fulldempað rafmagns fjallahjól sem er hannað fyrir þá sem vilja hjóla á stígum og slóðum sem og á bundnu slitlagi. Úr þessu samstarfi fæddust þrjú hjól: Tindur – Vel útbúið fulldempað rafmagns fjallahjól ætlað þeim sem vilja geta hjólað í brautum og á krefjandi slóðum. Dalur – Fulldempað rafmagns fjallahjól hannað fyrir þá sem vilja hjóla á stígum og slóðum sem og á bundnu slitlagi. Frábært alhliða hjól með mikla drægni og áherslu á notagildi. Dögun – Stílhreint, áreiðanlegt og þægilegt borgarhjól með mikilli drægni og klassískri hönnun fyrir daglegar samgöngur. Dögun er stílhreint, áreiðanlegt og þægilegt borgarhjól með mikilli drægni og klassískri hönnun fyrir daglegar samgöngur. Græn framtíð – hagkvæmur kostur í umhverfisvænum samgöngum Rafmagnshjól eru í mikilli sókn og hafa sannað gildi sitt sem vistvænn, hagkvæmur og þægilegur ferðamáti. „Mér finnst gaman að sjá hvað við erum oft harðgerð hér á landi. Ég sé fólk á rafmagnshjólum allan ársins hring hérna á Akureyri. Fólk setur bara nagladekk undir og klæðir sig vel. Með aukinni áherslu á grænar samgöngur verða rafmagnshjól sífellt mikilvægari þáttur í framtíðarsýn Íslands,“ segir Bergur. EMotorad hjólin eru fáanleg í verslunum BSON á Akureyri og BSport í Reykjavík. Nánari upplýsingar má finna á vef BSON eða í verslun.
Hjólreiðar Heilsa Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Fleiri fréttir Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Sjá meira