Mætti út með stálplötu í hálsinum: „Reyni að öskra eitthvað“ Valur Páll Eiríksson skrifar 3. september 2025 20:02 Haukur Helgi Pálsson er glaður að hafa komist út eftir vonbrigðin sem fylgdu meiðslunum. Hlutverk hans er á eilitlu reiki en hann nýtur þess vel. Vísir/Hulda Margrét Haukur Helgi Pálsson er stór hluti af hópi og starfsteymi íslenska karlalandsliðsins á EM í körfubolta þrátt fyrir að hafa hrökklast úr hópnum skömmu fyrir mót. Hlutverk hans er þó á reiki.
Haukur Helgi brákaðist á barka í aðdraganda mótsins og þurfti að undirgangast aðgerð á meðan strákarnir héldu út á mótið. „Aðgerðin gekk vel og ég er sáttur að þetta sé búið. Núna getur maður haldið áfram. Ég er með þennan myndarlega skurð og stálplötu og skrúfur sem að halda þessu öllu á sínum stað,“ segir Haukur sem hefur þó ekki lent í vandræðum með málmleitartæki hingað til. Röddin sé þá að koma til. „Það heyrist aðeins betur í mér. Maður er að reyna að öskra eitthvað á bekknum þarna en heyrist ekki alltaf nógu vel. Þetta er allt að koma,“ segir Haukur léttur. „Maður er hluti af þessu en bara í öðruvísi hlutverki. Ég er mjög sáttur að hafa fengið að koma og vera með strákunum í því.“ En er ekki erfitt að sitja á hliðarlínunni? Sér í lagi þegar illa gengur líkt og gegn Belgum? „Ég held að allt íþróttafólk og keppnisfólk heldur að það myndi gera meira gagn inni á vellinum heldur en ekki. En þeir voru bara geggjaðir. Þeir gerðu vel sem voru og erfitt að segja hvað hefði gerst. Þeir hafa verið í leik allan tímann gegn öllum liðunum. Maður er ekkert eðlilega stoltur af þeim,“ segir Haukur Helgi. Aðspurður um hlutverk sitt segir Haukur það vera á eilitlu reiki. „Þetta er öðruvísi. Ég veit það eiginlega ekki sjálfur. Maður er mitt á milli að vera aðstoðar, aðstoðar, aðstoðarþjálfari og aðstoðarleikmaður. Maður er brjálaður yfir einhverju þarna inni á en á sama tíma að reyna að halda haus og koma með punkta um það sem maður sér. Þetta er allt annað en venjulega,“ „Þetta hefur verið krefjandi en ótrúlega gaman á sama tíma,“ segir Haukur Helgi. Klippa: Haukur ræðir aðgerðina, stoltið og hlutverkið Töluvert fleira kemur fram í viðtalinu við Hauk sem má sjá í heild í spilaranum.
Landslið karla í körfubolta EM 2025 í körfubolta Körfubolti Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Maður dagsins á HM: Henti póstinum í ruslið en svaraði níu mánuðum síðar Fótbolti Sterkasti læknir landsins Sport Gylfi gerði nýjan samning við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Sjá meira