Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Bjarki Sigurðsson skrifar 16. desember 2025 13:27 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra. Vísir/Ívar Fannar Ísland skrifaði í morgun undir samkomulag við þrjú önnur ríki um skiptingu og stjórn makrílsstofnsins. Lengi vel hafa önnur ríki ekki viðurkennd stöðu Íslands sem strandríki í makríl. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samkomulagið halla á íslensk fyrirtæki.
Yfirvöld á Íslandi, Noregi, Bretlandi og Færeyjum undirrituðu í morgun samkomulag um skiptingu og stjórn makrílsstofnsins. Strandríkjahlutdeild Íslands verður 12,5 prósent af heildaraflamarki og íslensk skip fá aðgang að lögsögu Noregs og Færeyja. Hafi fengið tilkynningu í gær Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, segir samkomulagið ósanngjarnt. Til að mynda hafi atvinnugreinin ekki tekið þátt í samningaviðræðum. „Okkur rekur ekki minni til þess að viðlíka háttur hafi verið hafður á í samningaviðræðum áður þar sem atvinnugreinin er útilokuð frá viðræðum. Þeir sem hafa bestu þekkinguna á því hvaða verðmæti er hægt að búa til með þessum veiðum, þeim er í raun haldið utan við þetta. Við fáum tilkynningu í gærmorgun um að þetta stæði til,“ segir Heiðrún. Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.Vísir/Ívar Fannar Norskar vinnslur með forskot Það skjóti skökku við að hlutdeild Færeyja sé meiri en Íslands. Þá sé alvarlegt að stóran hluta makrílsins sem veiddur verður í norskri lögsögu þurfi að bjóða upp í gegnum Norska síldarsölusamlagið. „Þá eru norskar fiskvinnslur með verulegt forskot í kaupum á þeim afla vegna nálægðar við norsku miðin. Við erum ekki bara að gefa eftir töluverðan hluta veiða okkar, heldur líka það sem við veiðum er líklegt til að fara til vinnslu í Noregi. Þannig verðmætasköpun verður minni hér á landi. Við megum búast við því að útflutningsverðmæti af makríl, sem hafa verið um 25 til þrjátíu milljarðar króna á undanförnum árum, þau verði verulega minni,“ segir Heiðrún. Þess ber að geta að hún situr í stjórn Sýnar og Bylgjan er í eigu Sýnar. Tryggja vöxt stofnsins Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir samkomulagið sögulegt. Það hafi verið erfitt að fá viðurkenningu vinaþjóða á að Ísland sé strandríki þegar kemur að makrílveiði. „Við erum að sýna þessa ábyrgð og ganga inn í samtal með nágrönnum okkar til þess að verja okkar hagsmuni. Okkar hagsmunir eru að byggja upp makrílstofninn til lengri tíma. Stofninn er hruninn, það þarf að ná stjórn á þessari ofveiði sem hefur átt sér stað og þetta er liður í því,“ segir Þorgerður. Sjávarútvegurinn hluti af samráði Allar þjóðir hafi gefið eftir við gerð samkomulagsins. En hvers vegna var atvinnugreinin ekki kölluð að borðinu eða til að veita ráðgjöf? „Það var haft samráð við hana. Við fengum að heyra hennar sjónarmið áður eins og við höfum gert áður í öðrum samningaviðræðum,“ segir Þorgerður.
Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Utanríkismál Noregur Færeyjar Bretland Viðreisn Makrílveiðar Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Sjá meira