Játaði meira og meira eftir því sem á leið Jón Þór Stefánsson skrifar 23. janúar 2026 09:56 Meint brot mannsins voru framin á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík. Vísir/Anton Brink Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu.
Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurðum Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu. Úrskurðirnir eru frá október og nóvember á síðasta ári, en hafa nú verið birtir á vef Landsréttar. Í þeim eru atvik málsins rakin. Þar kemur fram að þriðjudaginn 12. ágúst hafi móðir umrædds barns, sem er stúlka, haft samband við lögreglu vegna málsins. Fyrr um daginn hafði móðirin sótt dóttur sína á leikskólann, sem hafi sagt henni frá því að „svolítið skrýtið“ hefði átt sér stað á leikskólanum. Dóttirin greindi þá móður sinni frá því að tiltekinn starfsmaður leikskólans hefði sett „punginn í píkuna hennar í leikskólanum“. Handtekinn samdægurs Síðar sama dag, rétt áður en klukkan sló níu að kvöldi til, var maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöð. Þar var tekin skýrsla af honum þar sem hann játaði meira og meira eftir því sem á leið. Maðurinn var í fyrstu spurður út í samskipti sín við stúlkuna og sagðist hann hafa hjálpað henni á salerninu þennan dag. Svo sagði hann að hún hafi séð hann pissa á starfsmannasalerninu nokkrum sinnum þegar hann hafi gleymt að læsa að sér. Aðspurður frekar út í málið játaði hann að hafa tekið stúlkuna upp, meðan hún var buxnalaus, „snúið henni við þannig hún sneri rassinum að klofi hans og hafi hann gert „hump“ hreyfingar í nokkrar sekúndur.“ Breytt frásögn Hann breytti síðar þeirri frásögn sinni, og viðurkenndi að hafa sett getnaðarlim sinn milli læra stúlkunnar og viðhaft samfarahreyfingar. Að mati lögreglu er þessi frásögn hans talin í samræmi við frásögn brotaþola í Barnahúsi. Jafnframt játaði maðurinn í seinni skýrslutöku að hafa brotið áður gegn stúlkunni. Þegar stúlkan hafi verið sofandi í hvíldarherbergi leikskólans hafi hann dregið niður um hana buxurnar og „sett getnaðarlim sinn á milli læra hennar og viðhaft samfarahreyfingar“. Styttist í dóm Líkt og áður segir hefur maðurinn verið ákærður fyrir þessi meintu brot. Hann er ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot, en hann er sagður hafa haft önnur kynferðismök en samræði við stúlku. Þinghöld í málinu eru hafin, en þau eru háð fyrir luktum dyrum. Búast má við því að dómur gangi í málinu á næstu vikum. Þess má geta að foreldrar þrettán barna á leikskólanum kærðu meint brot starfsmannsins, rannsókn var hætt hjá tíu þeirra og þrjú send til héraðssaksóknara. Aðeins var ákært í einu máli. Foreldrar eins barns hafa kært niðurstöðu lögreglu um að loka málinu.
Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Dómsmál Lögreglumál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Leikskólar Reykjavík Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira