Efling þekkingar í sjávarútvegi skilar árangri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 4. febrúar 2026 09:00 Fátt hefur mótað íslenskt samfélag jafn djúpt og nálægð okkar við hafið. Við erum fiskveiðiþjóð og vitum að sjálfbær nýting auðlinda er forsenda velsældar og fæðuöryggis til framtíðar. Við Íslendingar búum yfir dýrmætri þekkingu á öllum lykilþáttum virðiskeðju sjávarútvegs – frá veiðum til vinnslu og meðferðar sjávarfangs. Það er engin tilviljun að verndun og sjálfbær nýting auðlinda hafs og vatna er meðal lykiláherslna í þróunarsamvinnu Íslands. Við gleymum oft að sjálf vorum við skilgreind sem þróunarland og þáðum slíka aðstoð, allt fram til ársins 1976 fyrir sléttum 50 árum. Að ná stjórn yfir hafinu umhverfis landið og tryggja sjálfbæra nýtingu fiskveiðiauðlinda var forsenda framfara og þeirrar velsældar sem við nú búum við á Íslandi. Miðlum því sem við kunnum Allt frá því Ísland tók sín fyrstu skref sem veitandi í þróunarsamvinnu höfum við lagt áherslu á miðlun þekkingar á sviðum þar sem Ísland býr yfir sérþekkingu, ekki síst þeirri sem lagði grunninn að þeim lífskjörum sem við búum við. GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfrækir, undir merkjum UNESCO, fjóra skóla á sviði jarðhita, sjávarútvegs, landgræðslu og jafnréttis. Skólarnir eru hýstir hjá íslenskum sérfræðistofnunum og þar er unnið að því að efla þekkingu og styðja við stofnanir í þróunarlöndunum á umræddum sviðum. Árlega er sérfræðingum sem starfa fyrir lykilstofnanir í þróunarlöndum boðið til 5-6 mánaða dvalar á Íslandi til að efla þekkingu sína. Frá upphafi hafa rúmlega 1.900 sérfræðingar komið hingað í 5-6 mánaða þjálfun. Þá hafa 117 þeirra lokið meistaragráðu og 28 doktorsprófi frá íslenskum háskólum með skólastyrk sem veittur hefur verið í gegnum íslenska þróunarsamvinnu. Fjárfesting í fólki skilar árangri Með því að efla þekkingu, hæfni og leiðtogagetu fagfólks sem starfar í lykilstöðum í heimalöndum sínum skapast forsendur til að efla stofnanir, bæta stjórnsýslu og leggja traustan grunn að langtímaáhrifum á stofnanir og samfélag. Þetta á sérstaklega við á sviði sjávarútvegs, þar sem góð stjórnun og ábyrg nýting geta skipt sköpum fyrir lífsafkomu heilu samfélaganna og tryggt fæðuöryggi til framtíðar. Hverju hefur starf GRÓ skólanna skilað? Þeirri spurningu er velt upp á fjórum opnum viðburðum sem haldnir verða í vetur um hvern GRÓ skólanna fjögurra. Eftir viðburð um Jarðhitaskólann, er nú röðin komin að Sjávarútvegsskólanum, sem stofnaður var árið 1997 og hefur útskrifað fleiri en 500 sérfræðinga frá 68 löndum um heim allan. Á viðburðinum, sem fer fram þann 4. febrúar á Akureyri, munu nemendurnir sjálfir segja frá því hvernig þekkingin sem þau hafa aflað sér í gegnum dvöl við skólann átt þátt í að stuðla að framgangi sjálfbærs sjávarútvegs í sínum heimalöndum. Áhrif sem ná víða Sem dæmi má nefna að Sjávarútvegsskólinn, sem starfræktur er af Hafrannsóknastofnun, hefur frá upphafi unnið með löndunum þremur sem deila nýtingu Viktoríuvatns, sem er stærsta fiskveiðivatn Afríku, en heildarafli er á ári hverju tæplega ein milljón tonna. Það er ekki svo fjarri þeim heildarafla sem dreginn er úr sjó við Íslandsstrendur á hverju ári. Fiskveiðistjórnun vatnsins hefur verið áskorun, en með því að vinna með stofnunum sem leika þar lykilhlutverk er stuðlað að sjálfbærri nýtingu auðlinda vatnsins. Áhrifin ná víðar. Útskrifaðir nemendur skólans sem hlotið hafa doktorsstyrk, eru sumir hverjir í leiðandi hlutverki innan fræðasamfélagsins í sínum löndum. Þannig er háskóladeildum í fiskifræði í Líberíu, Úganda og Kína til að mynda stjórnað af fyrrverandi doktorsstyrkþegum Sjávarútvegsskólans. Þeir eru í lykilaðstöðu við að koma þekkingu sinni áfram í sínum heimalöndum. Hlustum á sögurnar Dæmin um árangurinn sem starfið hefur skilað eru fjölmörg, eflaust jafnmörg og nemendurnir sjálfir, en á viðburðinum um Sjávarútvegsskólann gefst einstakt tækifæri til að heyra beint frá þátttakendum um hvernig þjálfunin á Íslandi hefur nýst heima fyrir. Fjölmargir sérfræðingar og fagfólk hafa stutt við starf skólans í gegnum tíðina, þ.á m. íslensk fiskvinnslufyrirtæki sem hafa opnað dyr sínar fyrir fróðleiksfúsum nemendum Sjávarútvegsskólans ár eftir ár og gefið þeim þannig dýrmæta sýn inn í íslenskan sjávarútveg. Ég vil hvetja allt áhugafólk um alþjóðamál, þróunarsamvinnu, sjálfbærni og sjávarútvegsmál til að mæta eða fylgjast með í streymi. Ég hlakka til að hitta ykkur á Akureyri. Höfundur er utanríkisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Sjávarútvegur Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar