„Þá er Ísland kannski næsti biti“ Agnar Már Másson skrifar 13. febrúar 2026 20:47 „Um leið og Bandaríkin ásælast Grænland þá er Ísland kannski næsti biti,“ segir Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði. Vísir Sagnfræðiprófessor segir Íslendinga mega vænta þess að stjórnvöld verji meira fé í vopnakaup. Komið sé upp kapphlaup milli Kína og Bandaríkjanna og að nýlega Grænlandsdeilan sé ein birtingamynd þess.
Í gær tilkynnti utanríkisráðuneytið um milljarðs framlag til vopnakaupa handa Úkraínumönnum, sem hafa í tæplega fjögur ár varist innrás Rússahers. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, segir að alveg frá valdatíð Baracks Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hafi verið mikill þrýstingur frá Bandaríkjunum um að Evrópubúar verji meiri fjármunum í vopnakaup, varnauppbyggingu og hernaðaruppbyggngu. Sá þrýstingur hafi aukist enn fremur eftir að Donald Trump tók til valda. „Ísland hefur auðvitað verið stikkfrí í þesu öllu saman af því að við eigum engan her,“ sagði Guðmundur í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. „Við höfum svo sem flotið í NATO á því að vera ísland. Landið er það sem við höfum lagt fram. Það er grenilega ekki nóg lengur lengur.“ Þess megi einnig vænta að Íslendingar verji enn meira fé á ári í varnarmál enda hafi Atlanthafsbandalagið (NATO) samþykkt að aðildarríki vörðu um fimm prósentum af landsframleiðslu í hernað. „Það er auðvitað meira en milljarður,“ bendir Guðmundur á. Fram kom í máli Friedrich Merz kanslara Þýskalands á öryggisráðstefnu sem í München í gær að gjörbreytt heimsmynd blasti nú við og baráttutímabil stórveldanna væri runnið upp. „Það sem er greinilega að gerast,“ segir Guðmundur, „er að Bandaríkjamenn eru í raun að draga sig úr NATO.“ Hann nefnir að Bandaríkin hafi verið ráðandi afl í bandalaginu, en nú virðist áhuginn farinn. Á sama tíma fari Kína vaxandi.„Það er komið upp kapphlaup,“ bætir hann við. Ein birtingamynd þessa kapphlaup birtist í ásæld Trump-stjórnarinnar í Grænland. Hann segir að hernaðarátök milli Kína og Bandaríkjana séu þó ekki í myndinni, eða vonandi ekki. Samt sem áður reyni stórveldin að skapa sér stöðu á svæðum víða um heim. „Við erum að sigla inn í nýja tíma,“ segir hann og dregur svo fram ummæli Merz kannslara um að hin reglufasta heimskipan sé á hverfanda hveli. „Við getum haft áhyggjur af því. Og séstaklega, vopnlaus þjóð eins og Íslendingar hlýtur að óttast það. Við erum á viðkvæmum stað, sterkur að vissu leyti þar sem Ísland er mjög mikilvægt í öllu eftirliti á þessu svæði,“ heldur hann áfram og bætir við að lokum: „En um leið og Bandaríkin ásælast Grænland þá er Ísland kannski næsti biti.“ Fjallað var um málið í sjónvarpsfréttum Sýnar.
Öryggis- og varnarmál NATO Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Kína Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira