Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Samúel Karl Ólason skrifar 14. febrúar 2026 09:29 Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin verði ávallt afkvæmi Evrópu. AP/Alex Brandon Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Evrópu tilheyra hvort öðru og eiga samleið. Í ræðu sem hann hélt í morgun á öryggisráðstefnunni í München gagnrýndi hann þó Evrópu vegna aðgerða gegn veðurfarsbreytingum, stefnu í orkumálum og þess hvernig haldið er á spöðunum varðandi málefni innflytjenda, svo eitthvað sé nefnt.
Ræðan var nokkuð frábrugðin þeirri sem JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hélt á sama viðburði fyrir ári síðan. Í það minnsta hvað varðar tón ræðnanna, þó í rauninni hafi ekki verið mikill munur á innihaldinu. Rauði þráðurinn í gegnum ræður bæði Rubios og Vances var að Evrópa væri hnignandi og huglaus heimsálfa sem þyrfti að girða sig í brók og finna styrk sinn á nýjan leik í breyttum heimi. Sjá einnig: Húðskammaði ráðamenn í Evrópu Þeir Rubio og Vance, sem þykja líklegir til að keppast um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar 2028, virðast sammála um að hið svokallaða alþjóðakerfi sem Bandaríkjamenn byggðu í kjölfar kalda stríðsins heyri sögunni til. Rubio sagði Bandaríkjamenn og Evrópumenn hafa gert sömu mistökin og nú þyrfti að lagfæra þau. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði tekið sér leiðandi hlutverk í þeirri vinnu. „Þess vegna göngum við Bandaríkjamenn stundum fram með beinskeittum og brýnum hætti. Þess vegna krefst Trump forseti alvarleika og gagnkvæmni frá vinum okkar hér í Evrópu.“ Í ræðu sinni talaði Rubio um að Bandaríkin vildu vinna með bandamönnum sínum í Evrópu en bandalagið þyrfti að breytast. Bandaríkjamenn vildu ekki veikburða bandamenn sem væru „hlekkjaðir af sektarkennd og skömm“. „Við höfum engan áhuga á því að vera kurteisir umsjónarmenn falls vestursins,“ sagði Rubio. Sagði Bandaríkin vilja vinasamband við Evrópu Rubio sagði einnig að á tímum fyrirsagna þar sem endalok vinasambandsins yfir Atlantshafið væru boðuð, vildi hann koma því skýrt á framfæri að það væri ekki ósk Bandaríkjamanna. Heimili þeirra væri á vesturhveli jarðarinnar en Bandaríkin yrðu alltaf afkvæmi Evrópu. Óhætt er að segja að þetta vinasamband yfir Atlantshafsbandalagið hafi beðið mikla hnekki á undanförnu ári. Ráðamenn í Evrópu hafa flýtt ætlunum sínum um að gera heimsálfuna sjálfstæðari frá Bandaríkjunum og spyrja sig nú sífellt meira að því hvort hægt sé að reiða á Bandaríkjamenn. Að miklu leyti má rekja það til ræðu Vances í fyrra, nýjar þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna þar sem farið er hörðum orðum um Evrópu, hótana Bandaríkjamanna í garð Grænlendinga og Dana og til þess að Trump hefur ítrekað beitt bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu tollum. Rubio tók fram í ræðu sinni að Bandaríkjamenn og Evrópumenn hefðu deilt og náð síðan sáttum í gegnum aldirnar og að þeir hefðu barist saman frá Kapyong í Kóreu til Kandahar í Afganistan. „Ég er hér í dag til að gera ljóst að Bandaríkin eru að leggja línurnar að nýrri öld velmegunar og að, enn og aftur, viljum við gera það í sameiningu með ykkur, virtum bandamönnum okkar og okkar elstu vinum.“ Hlusta má á ræðu Rubios í spilaranum hér að neðan. WATCH: Secretary Rubio Delivers Remarks to the Munich Security Conference in Munich, Germany. https://t.co/MSnxmlRf2w— Department of State (@StateDept) February 14, 2026
Bandaríkin Donald Trump Evrópusambandið Þýskaland Öryggis- og varnarmál Tengdar fréttir Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það. 10. febrúar 2026 07:24 Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. 30. janúar 2026 09:07 Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Forsætisráðherra Slóvakía og ein helsta klappstýra Donalds Trump í Evrópu er sagður hafa verið sleginn yfir því hvernig bandaríski forsetinn talaði til hans og sálarástandi hans á dögunum. Trump hafi virst „hættulegur“. Ráðherrann hafnar fréttum af meintum ummælum hans. 28. janúar 2026 13:42 Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01 Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. 24. janúar 2026 16:07 „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót. 24. janúar 2026 11:58 Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. 23. janúar 2026 06:48 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira
Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það. 10. febrúar 2026 07:24
Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það væri „afar hættulegt“ fyrir Breta að leitast eftir því að eiga í auknum og nánari samskiptum við Kína. Ummælin lét forsetinn falla eftir að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, átti þriggja tíma fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Pekíng. 30. janúar 2026 09:07
Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Forsætisráðherra Slóvakía og ein helsta klappstýra Donalds Trump í Evrópu er sagður hafa verið sleginn yfir því hvernig bandaríski forsetinn talaði til hans og sálarástandi hans á dögunum. Trump hafi virst „hættulegur“. Ráðherrann hafnar fréttum af meintum ummælum hans. 28. janúar 2026 13:42
Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að Evrópa geti ekki varið sig án Bandaríkjanna. Segja má að Rutte hafi látið Evrópuþingmenn heyra það á fundi varnar- og utanríkismálanefndar Evrópuþingsins í dag. 26. janúar 2026 23:01
Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að setja hundrað prósenta toll á vörur frá Kanada ef forsætisráðherra Kanada undirritar viðskiptasamning við Kína. 24. janúar 2026 16:07
„Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót. 24. janúar 2026 11:58
Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. 23. janúar 2026 06:48