Tæplega 10% fatlaðra barna stunda íþróttir Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 07:48 Á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á inngildingu, í raun verið stórsókn, en hafa fatlaðir notið ávinningsins þeirrar vinnu? Fötluð börn þ.e. börn með þroskahömlun, einhverfu, hreyfihömlun eða aðra fötlun verða oft skilin útundan þegar kemur að skipulagðri íþróttaiðkun. Félagslegar og kerfislægar hindranir gera það að verkum að mörg börn fá ekki tækifæri til að prófa sig áfram í fjölbreyttu íþróttastarfi. Fötluð börn eru fjölbreyttur hópur Börn með fötlun eru ekki einsleit hópur. Sem dæmi þá eru þarfir barna með skerta sjón gjörólíkar þörfum hreyfihamlaðra barna eða barna með þroskahömlun. Lausnir þurfa því að vera fjölbreyttar og sveigjanlegar. Best er auðvitað að hlusta á börnin sjálf, foreldra þeirra og íþróttahreyfingarinnar þegar unnið er að þróun úrræða. Mikilvægt er einnig að horfa til þess hvernig íþróttir þessara hópa eru skilgreindar ólíkt í alþjóðlegu samhengi ekki höfum við tekið upp íslensk orð en nýtt okkur erlend orð því til fyrirmyndar. Þessir flokkar eru til dæmis Special olympics en þar keppa til dæmis einstaklingar með þroskahömlun og síðan Paralympics þar sem til dæmis hreyfihamlaðir keppa. En þar er stór munur á og lítil samleið fyrir þessa tvo hópa. Þá eru einnig alþjóðlegir keppnishópar heyrnalausra og fleira í þeim dúr þau þau falli sannarlega undir Paralympics í alþjóðlegu samhengi. Þrátt fyrir stefnu Reykjavíkurborgar um að öll börn eigi að fá tækifæri til að þroskast í aðgengilegu íþróttastarfi og fá sérstakan stuðning ef þörf krefur, er staðan þung. Bjartsýnasta matið er að aðeins um 10% fatlaðra barna í Reykjavík stunda skipulagðar íþróttir. Meðan að hátt í 70% barna án fötlunar stunda íþróttir og virka hreyfingu. Viljum við í Viðreisn að farið verði í að bæta verulega úr í þessum málum. Þessar tölur gefa vísbendingu um mjög slæma stöðu hóps barna með skerta færni. Ef við bregðumst ekki við mun það hafa áhrif á færni þeirra til alla lífstíð. Saman þurfum við að leita fjölbreyttari lausnum og vinna sérstaklega að því að þessi viðkvæmi og stóri hópur fái virka hreyfingu sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði þeirra til frambúðar. Tækifærin víða Borgin rekur fjölmörg íþróttamannvirki og hefur því raunverulegt tækifæri til að virkja eigin stefnu og skapa aðstæður fyrir fleiri æfingar og viðburði sérstaklega sniðna að þörfum fatlaðra barna. Fyrst mætti skoða styttri námskeið sem samræmast nýrri samþykkt með nýtingu frístundastyrkja sem gerð var á síðastliðnum borgarstjórnarfundi þann 17. febrúar og þannig bjóða þennan frábæra hóp inn í það góða starf sem rekið er hér víða um borg. Með styttri námskeiðum fá börnin, foreldrar þeirra og félögin tækifæri til að finna hvaða lausnir henta fyrir þennan fjölbreytta hóp. Aðeins örfá íþróttafélög bjóða í dag upp á þjálfun sem þessa. Tækifærin eru víðtæk, í dag er fjöldi lausna í boði fyrir börn og flest þeirra geta vel hentað fötluðum börnum án mikillar aðlögunar fyrir félögin. Til þess að ná þessum markmiðum tel ég að borgin eigi að hvetja félög, skóla og foreldra til samstarfs og veita einstaklings miðaðan stuðning, betra aðgengi úrbætur og fræðslu fyrir þjálfara. Það vakna spurningar um hve mikil fræðsla er í almennt í námi þjálfara og hvort það þurfi sérstakt átak í þeim efnum. Gildir það um fræðslu þvert yfir en þar er brotalöm sem við sem samfélag hljótum að sammælast um að laga. Þörf á virkum samráðsvettvangi Næstu skref ættu að fela í sér markvissari samráðsvettvang s.s. samtal borgaryfirvalda, íþróttafélaga, skóla, foreldra og sérfræðinga um hvernig best megi skapa aðgengilegar æfingar, þjálfun þjálfara og fjárhagslegan stuðning. Fræðslu þvert á menntastig, vinnu við aðgengismál í íþróttamannvirkjum og samstarf við samtök fatlaðra er nauðsynlegt. Með sameiginlegri vinnu getum við gert Reykjavík að fyrirmynd þar sem í boði eru raunveruleg tækifæri fyrir öll börn til að stunda íþróttir, þroskast og njóta félagslegra og heilsufarslegra ávinnings sem hreyfingin veitir. Höfundur er varaborgarfulltrúi Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar