Þegar læknar snúa baki við þeim sem minnst mega sín Þuríður Jónsdóttir skrifar 7. mars 2026 18:02 Það vekur bæði furðu og reiði að Læknafélag Íslands skuli setja sig á móti því að öryrkjar í þessu landi fái leiðréttingu á kjörum sínum. Hér er verið að tala um fólk sem hefur enga möguleika á að bæta stöðu sína með vinnu og er algjörlega háð samfélaginu til að geta lifað mannsæmandi lífi. Í einfeldni minni hélt ég að læknar væru fyrst og fremst málsvarar þeirra sem eru veikir og fatlaðir. Það eru jú einmitt þessir hópar sem læknar sinna daglega og sem heilbrigðiskerfið á að standa vörð um. Því er það mér algjörlega óskiljanlegt að fagfélag lækna skuli beita sér gegn því að bæta kjör þeirra sem búa við alvarlega fötlun eða sjúkdóma. Dóttir mín er fötluð og hefur verið það frá fæðingu. Fötlun hennar er þess eðlis að hún hefur enga möguleika á að afla sér tekna með vinnu. Hún mun aldrei geta byggt upp lífeyrisrétt eða bætt afkomu sína með eigin vinnuafli. Hún verður alla sína ævi að treysta á örorkubætur til framfærslu. Í umræðunni hefur verið talað um að hækka frítekjumark þeirra sem eru á örorkubótum. Slík breyting hjálpar minni dóttur hins vegar ekkert – og ekki heldur þeim sem eru í svipaðri stöðu. Hún hefur einfaldlega ekki getu til að vinna meðfram bótum. Fyrir hana snýst málið ekki um frítekjumark. Fyrir hana snýst málið um það hvort samfélagið ætlar að tryggja henni mannsæmandi líf eða ekki. Þess vegna finnst mér það með öllu forkastanlegt að læknar – sem hún hefur þurft að leita til alla sína ævi og mun þurfa áfram – skuli standa gegn því að hún fái réttlátari kjör. Að fagstétt sem nýtur mikillar virðingar í samfélaginu skuli taka afstöðu sem í reynd viðheldur fátækt meðal þeirra sem eru veikastir og verst settir er einfaldlega siðferðilega rangt. Svo er því gjarnan haldið fram í þessari umræðu að ef bætur verði of háar muni fólk frekar velja að vera á bótum en að vinna. Þessi rök eru ekki aðeins veik – þau eru líka móðgandi. Þau gefa í skyn að fólk sem lifir á örorkubótum sé þar vegna einhvers konar þægindavals. Raunveruleikinn er sá að stór hópur fólks á einfaldlega ekkert val. Það er ekki á bótum vegna þess að það vill það – heldur vegna þess að það getur ekki annað. Samfélag sem lætur þá sem minnst mega sín lifa við fátækt á meðan aðrir njóta góðs af velferðarkerfinu hefur misst áttirnar. En þegar jafn áhrifamikil fagstétt og læknar leggst gegn því að bæta kjör þeirra sem eru algerlega óvinnufærir verður sú staða enn alvarlegri. Spurningin sem stendur eftir er einföld:Ef læknar standa ekki með þeim sem eru veikastir og veikburðastir í samfélaginu – hver á þá að gera það? Það er kominn tími til að hætta að ræða mannsæmandi kjör öryrkja eins og þau séu einhver lúxuskröfa. Þetta er spurning um réttlæti, virðingu og mannlega reisn. Og samfélag sem getur ekki tryggt það fyrir þá sem minnst mega sín ætti að líta alvarlega í eigin barm. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og móðir fatlaðs einstaklings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun