Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 11:00 Leikmenn íranska fótboltalandsliðsins fagna eftir að hafa tryggt sér sæti á HM. Nú, þegar þrír mánuðir eru þar til heimsmeistaramótið hefst, ríkir mikil óvissa um þátttöku Írana á mótinu. getty/Fatemeh Bahrami Leikmenn íranska karlalandsliðsins í fótbolta hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að enginn geti bannað þeim að keppa á HM 2026. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að ef til vill væri betra að Íranir héldu sig heima þegar HM fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar.
Í fyrradag sagði Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, að affarsælast væri ef Íranir myndu ekki taka þátt á HM. „Íranska landsliðið í fótbolta er velkomið á heimsmeistaramótið, en ég tel það í raun ekki viðeigandi að það sé þar, lífs þeirra og öryggis vegna. Þakka ykkur fyrir að veita þessu máli athygli!“ skrifaði Trump. Íþróttamálaráðherra Írans hefur einnig látið hafa eftir sér að íranska fótboltalandsliðið gæti alls ekki tekið þátt á HM sem hefst 11. júní og lýkur 19. júlí. Í yfirlýsingu sem birtist á Instagram-síðu íranska landsliðsins segja leikmenn þess að enginn gæti bannað þeim að keppa á HM. Ef einhverju landi ætti að vera meinað að taka þátt á HM væru það Bandaríkin. Um síðustu mánaðamót réðust Bandaríkin og Ísrael inn í Íran og réðu æðstaklerkinn Ali Khamenei af dögum. „Heimsmeistaramótið er söguleg og alþjóðleg keppni sem FIFA stjórnar, ekki einhver einstaklingur eða land. Íranska liðið, með styrk og afgerandi sigrum sem hinir hugrökku synir landsins unnu, var meðal þeirra fyrstu til að tryggja sér sæti á mótinu,“ segir í yfirlýsingu íranska landsliðsins. „Enginn getur bannað íranska liðinu að keppa á HM. Eina landið sem ætti að vera útilokað eru hinir svokölluðu gestgjafar sem geta ekki tryggt öryggi liðanna sem taka þátt á mótinu.“ Gianni Infantino, forseti FIFA, fundaði með Trump fyrr í vikunni. Þar á Bandaríkjaforseti að hafa tjáð honum að Íranir væru velkomnir á HM. Á fimmtudaginn var hins vegar annað hljóð komið í strokkinn. Íran er í G-riðli heimsmeistaramótsins ásamt Belgíu, Egyptalandi og Nýja-Sjálandi. Allir leikir Írana í riðlinum eiga að fara fram í Bandaríkjunum. Fyrstu tveir í Los Angeles og sá síðasti í Seattle.
HM 2026 í fótbolta Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Donald Trump FIFA Tengdar fréttir Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúlu 1 keppnirnar í Barein og Sádi-Arabíu munu ekki fara fram í næsta mánuði. Tímabilið verður stytt niður í 22 keppnir. 13. mars 2026 23:02 Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. 11. mars 2026 11:30 Vilja fresta og freista þess að komast á HM viku fyrir mót Írakar vonast til þess að komast inn á HM í fótbolta í sumar í fyrsta sinn í 40 ár en óöldin í Mið-Austurlöndum gerir þeim erfitt fyrir. Landsliðsþjálfarinn hefur beðið FIFA um frest. 9. mars 2026 14:46 Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Útlit er fyrir að í fyrsta sinn í 76 ár muni lið draga sig úr keppni á HM í fótbolta í sumar. Íþróttamálaráðherra Írans segir ekki koma til greina að mæta á mót í Bandaríkjunum eftir að Bandaríkjamenn réðu æðstaklerkinn Ali Khamenei af dögum. 11. mars 2026 18:07 Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA. 7. mars 2026 11:03 Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir í samtali við vefmiðilinn Politico að honum sé alveg sama hvort Íran taki þátt í heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar eða ekki. 4. mars 2026 09:33 „Ólíklegt“ að Íran fari á HM vegna árásarinnar Tafarlaust hlé hefur verið gert á öllum fótboltakeppnum í Íran í skugga árásar Bandaríkjanna og Ísraels á ríkið í gær. Forseti knattspyrnusambands landsins segir ólíklegt að íranska landsliðið keppi á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. FIFA fundar um málið. 1. mars 2026 08:01 Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Lúxemborg - Ísland | Hvernig svara menn fyrir sig? Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Sjá meira
Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúlu 1 keppnirnar í Barein og Sádi-Arabíu munu ekki fara fram í næsta mánuði. Tímabilið verður stytt niður í 22 keppnir. 13. mars 2026 23:02
Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. 11. mars 2026 11:30
Vilja fresta og freista þess að komast á HM viku fyrir mót Írakar vonast til þess að komast inn á HM í fótbolta í sumar í fyrsta sinn í 40 ár en óöldin í Mið-Austurlöndum gerir þeim erfitt fyrir. Landsliðsþjálfarinn hefur beðið FIFA um frest. 9. mars 2026 14:46
Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Útlit er fyrir að í fyrsta sinn í 76 ár muni lið draga sig úr keppni á HM í fótbolta í sumar. Íþróttamálaráðherra Írans segir ekki koma til greina að mæta á mót í Bandaríkjunum eftir að Bandaríkjamenn réðu æðstaklerkinn Ali Khamenei af dögum. 11. mars 2026 18:07
Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA. 7. mars 2026 11:03
Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir í samtali við vefmiðilinn Politico að honum sé alveg sama hvort Íran taki þátt í heimsmeistaramótinu í fótbolta í sumar eða ekki. 4. mars 2026 09:33
„Ólíklegt“ að Íran fari á HM vegna árásarinnar Tafarlaust hlé hefur verið gert á öllum fótboltakeppnum í Íran í skugga árásar Bandaríkjanna og Ísraels á ríkið í gær. Forseti knattspyrnusambands landsins segir ólíklegt að íranska landsliðið keppi á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. FIFA fundar um málið. 1. mars 2026 08:01