Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir Agnar Már Másson skrifar 24. mars 2026 20:09 „Ég hef aldrei veið neinn lestrarhestur,“ segir Haaland. Um er að ræða sérstaka þýðingu af Heimskringlu frá 1594. Norski knattspyrnumaðurinn Erling Haaland, stjörnuleikmaður Manchester City, keypti sérstaka útgáfu af Heimskringlu Snorra Sturlusonar á 1,3 milljónir norskra króna og gaf bókasafninu í heimabæ sínum eintakið. Bókin er sú dýrasta sem selst hefur í Noregi.
Það rataði í norsku blöðin í desember þegar bók seldist á 1,3 milljónir norskra króna (17 milljónir íslenskra króna) við uppboð úr safni viðskiptajöfursins Johans Fredrik Odfjell. Finansavisen greindi frá því á sínum tíma að engin norsk bók hefði selst svo dýru verði. En ekki hefur legið fyrir hver keypti ritið, fyrr en nú. Norskir fjölmiðlar, fyrst Stavanger Aftenbladet, greindu nefnilega frá því í morgun að Haaland hefði keypt bókina og gefið hana bókasafninu á sínum heimaslóðum, en hann er alinn upp í Bryne í sveitarfélaginu Time. Útgáfa Matti Størssøns af Heimskringlu er sú dýrasta sem til er í einkaeigu.hSveitarfélagið Time Um var að ræða sérstaka norsk-danska þýðingu af Heimskringlu Snorra Sturlusonar sem gefin var út árið 1594. Í Heimskringlu eru ættir Noregskonunga raktar alla leið til Óðins og sagt af sögu konungsætta alveg fram til 12. aldar. Upprunalegur titill Heimskringlu er fallinn í gleymskunnar dá – elsta dæmi um titilinn „Heimskringlu“ er frá 17. öld – en í útgáfunni sem hér um ræðir nefnist ritið „Sögur og afrek Noregskonunga fram að tíð hins unga Hákons konungar, sem lést hið Herrans ár 1263“ nema á bara norsku. Þetta er raunar útdráttur úr Heimskringlu þýddur á dönsku af Mattis Størssøn í Björgvin í Noregi um miðja 16. öld en prentaður í Kaupmannahöfn árið 1594 enda engar prentsmiðjur í Noregi á þessum tíma. Jens Mortensen, fyrrverandi rektor í Herlufsholm, annaðist útgáfuna að undirlagi Arild Hvitfeldt. Sveitarfélagið Time í Noregi greinir nú frá því í fréttatilkynningu að Haaland hafi keypt bókina ásamt föður sínum, Alfie Haaland, sem einnig var knattspyrnumaður. Nánar tiltekið er það bókasafnið í Time sem fær eintakið gegn því skilyrði að það sé ávallt aðgengilegt á almenningsbókasafninu. Haaland og sveitarstjóri Time heilsast með olnbogunum.Time „Ég hef aldrei verið neinn lestrarhestur, en ég vil að bókin liggi alltaf opin svo að hægt sé að lesa um þá sem komu frá mínum heimaslóðum, frá Bryne og Jæren,“ er haft eftir Haaland í tilkynningu. „Þá er auðveldara að fá löngun til þess að lesa þegar maður getur samsamað sig með þeim sem skrifað er um.“ Þá segir í Stavanger Aftenbladet að Haaland hafi enn fremur boðað til sérstakrar keppni vegna gjafarinnar.
Noregur Manchester City Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Erlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Veður Fleiri fréttir Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Listamaður reyndi að kaupa atkvæði Gengst nú við að gaspra í Rússa Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Á rúntinum með andefni Danir ganga að kjörborðinu í afar spennandi kosningum Gervigreindarmyndskeiðum af barnaníði fjölgar gífurlega Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Sakar Orbán og félaga um landráð Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Eigandi OnlyFans látinn Gerir hlé á árásum á Íran Lionel Jospin er látinn Kveikt í sjúkrabílum Gyðinga í London Ungverjar út í kuldann vegna leka til Rússa LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Sósíalistinn Grégoire nýr borgarstjóri Parísar Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Sögðu líf Breta í hættu og skutu að breskri herstöð Robert Mueller er látinn Sjá meira