„Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Samúel Karl Ólason skrifar 28. apríl 2026 15:48 Donald Trump og Karl konungur fyrir utan Hvíta húsið í dag, þegar Trump sagði að móðir sín hefði verið skotin í Karli á árum áður. AP/Alex Brandon Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók í dag á móti Karli Bretakonungi og Kamillu drottningu í Hvíta húsinu í Washington DC. Konungshjónin hófu í dag fjögurra daga opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og ávarpaði Trump þau fyrir utan Hvíta húsið. Þar sagði Trump meðal annars frá því að móðir hans hefði verið skotin í Karli konungi á árum áður.
Í upphafi ávarps síns talaði Trump fallega um samskipti Bandaríkjanna og Bretlands. Þó að hann hafi sjálfur ítrekað verið mjög gagnrýninn á Bretland á undanförnum vikum, sagðist Trump sannfærður um að gott samband ríkjanna myndi vara um ókomna framtíð. Þá lofaði hann Elísabetu drottningu sem dó árið 2022. Trump sagðist þakklátur fyrir að hafa kynnst henni og talaði um tréð sem hún gróðursetti fyrir utan Hvíta húsið á árum áður. Tréð væri ekki ósvipað bandarísku þjóðinni að því leyti að henni hefði verið sáð með breskum höndum í bandarískri jörðu. .@POTUS on His Majesty King Charles III's address to Congress: "There, the direct descendant of King George III will speak to the direct successor of the very body that gathered in Independence Hall on July 4th, 1776. If John Adams and George Washington or the King’s fifth… pic.twitter.com/yYHzwJznBc— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) April 28, 2026 Þá talaði Trump einnig fallega um Karl sjálfan og vék orðum sínum einnig að móður sinni, sem fæddist í Skotlandi. Forsetinn sagði að hún hefði verið mjög hrifin af bresku konungsfjölskyldunni og sérstaklega Elísabetu. Þá hefði hún verið sérstaklega hrifin af ungum Karli. Hann hefði verið svo sætur. „Móðir mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ .@POTUS: "I also remember her saying very clearly look, young Charles, he's so cute. My mother, had a crush on Charles. Can you believe it? I wonder what she's thinking right now." 🤣🤣🤣 pic.twitter.com/3bh6pHC7OM— Trump War Room (@TrumpWarRoom) April 28, 2026 Karl mun svo seinna í dag ávarpa báðar deildir bandaríska þingsins, fyrstur breskra konunga eða drottninga. Með því að spóla aftur í spilaranum má finna ávarp Trumps.
Bandaríkin Bretland Kóngafólk Karl III Bretakonungur Donald Trump Tengdar fréttir Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Fjögurra daga opinber heimsókn Karls III Bretakonungs og Kamillu drottningar til Bandaríkjanna hófst í gær. Öryggisgæsla er sérstaklega mikil vegna banatilræðisins við Bandaríkjaforseta um helgina. 28. apríl 2026 07:42 Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Uppgjafarhermaður sem særðist alvarlega í Falklandseyjastríðinu árið 1982 vonar að Karli Bretakonungi takist að lægja öldurnar í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Lekinn tölvupóstur úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna lagði til að endurmeta viðurkenningu á tilkalli Breta til eyjanna. 25. apríl 2026 18:43 Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Breska ríkisstjórnin ítrekar að Bretland muni ekki láta Falklandseyjar af hendi. Í leknum tölvupósti úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er því velt upp að endurskoða stuðning við tilkall Bretlands til eyjanna vegna meints skeytingarleysis Breta í stríðinu við Íran. 24. apríl 2026 23:39 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira
Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Fjögurra daga opinber heimsókn Karls III Bretakonungs og Kamillu drottningar til Bandaríkjanna hófst í gær. Öryggisgæsla er sérstaklega mikil vegna banatilræðisins við Bandaríkjaforseta um helgina. 28. apríl 2026 07:42
Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Uppgjafarhermaður sem særðist alvarlega í Falklandseyjastríðinu árið 1982 vonar að Karli Bretakonungi takist að lægja öldurnar í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Lekinn tölvupóstur úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna lagði til að endurmeta viðurkenningu á tilkalli Breta til eyjanna. 25. apríl 2026 18:43
Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Breska ríkisstjórnin ítrekar að Bretland muni ekki láta Falklandseyjar af hendi. Í leknum tölvupósti úr varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna er því velt upp að endurskoða stuðning við tilkall Bretlands til eyjanna vegna meints skeytingarleysis Breta í stríðinu við Íran. 24. apríl 2026 23:39