Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Samúel Karl Ólason skrifar 29. apríl 2026 09:50 Bandarískir þingmenn tóku mjög vel í ræðu Karls þriðja, Bretlandskonungs á þingi í gær. AP/Kylie Cooper Karl þriðji, konungur Bretlands, ávarpaði í gær sameinaðar deildir bandaríska þingsins. Það gerði hann fyrstur breskra kónga en móðir hans var fyrsta drottningin til að ávarpa þingmenn með þessum hætti, árið 1991.Bandaríkjamenn fagna um þessar mundir því að 250 ár eru liðin frá því að þeir lýstu yfir sjálfstæði frá Bretlandi. Í ræðu sinni ítrekaði konungurinn menningarleg tengsl Bretlands og Bandaríkjanna, þó samskipti ríkjanna hafi beðið hnekki að undanförnu.
Í ræðu sinni reyndi Karl að brúa bilið milli Breta og Bandaríkjamanna og virðist sem það hafi borið einhvern árangur, ef miða má við það að hann þurfti ítrekað að stöðva ræðu sína vegna lófaklapps þingmanna í salnum. Það voru þó ekki þingmenn sem Karl þurfti að ná til heldur Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sem hefur ítrekað verið harðorður í garð Breta að undanförnu. Það hefur að miklu leyti verið vegna þess að Keir Starmer, forsætisráðherra, vildi ekki aðstoða Bandaríkjamenn í átökunum við Íran þegar Trump kallaði eftir aðstoð, sem hann sagðist í senn ekki þurfa á að halda. Sjá einnig: Með lista yfir góða og slæma bandamenn Þó konungurinn hafi slegið á létta strengi og reynt að sjarma þingmenn, skaut hann á stjórnaraðferðir Trumps og kom stjórnvöldum í Bretlandi til varnar. Karl sagði meðal annars að orð Bandaríkjamanna hefðu áhrif, eins og þau hefðu gert frá því Bandaríkin öðluðust sjálfstæði. Aðgerðir Bandaríkjanna skiptu enn meira máli. Hann sagði að samband Bretlands og Bandaríkjanna hefði hafist á átökum en það kæmi ekki niður á sambandinu. Bretar og Bandaríkjamenn hefðu ítrekað í gegnum árin getað tengst gegnum sameiginleg gildi, hefðir og venjur. Þegar þjóðirnar hefðu verið sammála hefði það ítrekað haft mjög jákvæðar afleiðingar fyrir þær báðar, og allan heiminn. „Þetta, tel ég vera hið sérstaka hráefni í okkar sambandi,“ sagði Karl. Varaði við einangrun Á sama tíma og hann ítrekaði mikilvægi bandalags Bandaríkjanna og Bretlands varði Karl tíma í að vara bandaríska leiðtoga við því að einangrast ekki frá alþjóðasviðinu og vinna áfram með öðrum ríkjum. Hann talaði með jákvæðum nótum um Atlantshafsbandalagið og kallaði einnig eftir stuðningi við Úkraínumenn í baráttunni gegn innrás Rússa. Frá því Trump tók aftur við embætti forseta hefur hann svo gott sem hætt þeim stuðningi. Bandaríska þingið samþykkti til að mynda fjögur hundruð milljóna dala aðstoðarpakka til Úkraínu sem varnarmálaráðuneytið hefur ekki viljað senda. Mitch McConnell, fyrrverandi leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni og núverandi formaður mikilvægrar nefndar um varnarmál, skrifaði í gærkvöldi grein á vef Washington Post þar sem hann gagnrýndi ráðuneytið harðlega vegna þessa. Milljónunum var ætlað að fjármagna bandaríska framleiðslu á hergögnum handa Úkraínumönnum en ráðuneytið hefur staðið í vegi þess að peningarnir hafi verið notaðir til þess sem þeir voru ætlaðir og forsvarsmenn ráðuneytisins hafa neitað að svara spurningum þingmanna um málið. Forðaðist ekki umdeild mál Trump hefur verið harðlega gagnrýninn á ástand varnamála í Bretlandi og hefur farið ófögrum orðum um breska sjóherinn. Meðal annars hefur hann sagt flotann vanmáttugan og skipin léleg. Karl, sem þjónaði í breska sjóhernum á sínum tíma, sagðist stoltur af sjóhernum en sagði Breta þurfa að verja meiri peningum í varnarmál og taka aukna ábyrgð á eigin vörnum og vörnum Evrópu. Á einum tímapunkti vísaði konungurinn til máls Jeffreys Epstein, barnaníðingsins látna sem tengdist nokkrum breskum embættismönnum vinaböndum og þar á meðal Andrew, bróður Karls. Þá sagði Karl að mikilvægt væri að styðja fórnarlömb. Áhugasamir geta horft á ræðu Karls í spilaranum hér að neðan. Þar neðar má svo sjá hluta úr ávörpum bæði Karls og Trumps á kvöldverði í Hvíta húsinu, seinna í gærkvöldi.
Bandaríkin Bretland Karl III Bretakonungur Kóngafólk Donald Trump NATO Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Fjögurra daga opinber heimsókn Karls III Bretakonungs og Kamillu drottningar til Bandaríkjanna hófst í gær. Öryggisgæsla er sérstaklega mikil vegna banatilræðisins við Bandaríkjaforseta um helgina. 28. apríl 2026 07:42 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Sjá meira
Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Fjögurra daga opinber heimsókn Karls III Bretakonungs og Kamillu drottningar til Bandaríkjanna hófst í gær. Öryggisgæsla er sérstaklega mikil vegna banatilræðisins við Bandaríkjaforseta um helgina. 28. apríl 2026 07:42