Viljum við að fatlað fólk mennti sig? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar 7. maí 2026 10:00 Sveitarfélögin bera ábyrgð á því að fötluð börn og ungmenni eigi greiðan aðgang að leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi og fái þann stuðning í námi sem mætir þeirra þörfum. Fjöldi skóla hefur bætt aðgengi undanfarin ár, en við þurfum að setja markið enn hærra. Um hvað snýst aðgengi að menntun? Aðgengi að menntun er eitt mikilvægasta jafnréttismálið fyrir fatlað fólk þar sem menntunin leggur grunninn að sjálfstæðu lífi og þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Fjölmörg dæmi eru um að skert aðgengi að byggingum og kennslurýmum hamli aðgengi fatlaðs fólks að menntun á öllum stigum skólakerfisins. Aðgengi að skólabyggingum er víða ófullnægjandi, og aðstæður í skólastofum, fyrirlestrarsölum og íþróttaaðstöðu skólanna geta komið í veg fyrir að fötluð börn og ungmenni geti tekið fullan þátt í námi til jafns við ófötluð skólasystkini sín. Réttur fatlaðra barna og ungmenna til náms án aðgreiningar er ótvíræður í íslenskum lögum og í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Tryggja skal að öll fötluð börn fái nauðsynlega þjónustu svo að þau geti notið mannréttinda og mannhelgi til jafns við önnur börn, lifað sjálfstæðu lífi og tekið þátt í samfélaginu án aðgreiningar. Það er vart hægt að hugsa sér verðugri verkefni. Í þessu felst að öll fötluð börn eiga rétt á viðeigandi stuðningi og aðlögun í námi, allt eftir þörfum hvers og eins. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi þess að tryggja börnunum góða skólagöngu, og hér eru sveitarfélögin í lykilhlutverki. Þau sjá um rekstur flestra leikskóla og grunnskóla á landinu, og þeim ber jafnframt skylda til að sjá öllum börnum á grunnskólaaldri fyrir skólavist. Þar að auki er það í verkahring sveitarfélaganna að tryggja að yngstu börnunum standi til boða þátttaka í frístunda- og tómstundastarfi með það að markmiði að efla sjálfstraust þeirra og félagsfærni. Hægt er að veita stuðning í námi á ýmsan hátt, til dæmis með hjálpartækjum og tæknilausnum, persónulegri aðstoð á námstíma og sveigjanleika í námi og við próftöku. Ekki er síður mikilvægt að tryggja fötluðum börnum og ungmennum raunverulegan aðgang að íþróttum, frístunda- og tómstundastarfi. Eitt helsta áherslumálið í nýrri stefnu Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra, er einmitt að fatlað fólk fái stuðning til kaupa á hjálpartækjum sem gera þeim kleift að stunda hreyfingu, tómstundir og útivist. Það er mikilvægt lýðheilsumál, ekki síst hvað varðar andlega og líkamlega vellíðan fatlaðra barna. Augljós þörf á úrbótum Þörfin á úrbótum í aðgengismálum í skólum landsins hefur komið berlega í ljós síðustu ár. Fjöldi skóla hefur notið góðs af átaki Römpum upp Ísland og sveitarfélög um land allt hafa bætt aðgengi að skólum og frístundastarfi með aðkomu Jöfnunarsjóðs. Þetta er mjög jákvæð þróun, en það er full ástæða til að setja markið enn hærra. Römpum upp Ísland hófst upphaflega handa við að rampa upp þjónustu á vegum einkaaðila, en á síðari stigum verkefnisins voru einnig gerðar úrbætur á aðgengi við ýmsar stofnanir ríkis og sveitarfélaga. Lausleg yfirferð sýnir að rétt tæplega 500 rampar voru gerðir við leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðvar og framhaldsskóla. Við það bætist nokkur fjöldi rampa við æðstu menntastofnanir landsins, háskólana okkar. Allar þessar framkvæmdir eru fagnaðarefni. En þær sýna líka ótvírætt að aðgengismál í skólum landsins hafa ekki verið í lagi og eru ekki enn. Framkvæmdaþörfin er sannarlega enn til staðar, og við í Sjálfsbjörg hvetjum sveitarfélögin til að bregðast við af fullum krafti. Og á hverju byggjum við þessa fullyrðingu? Jú, ramparnir sem um ræðir voru reistir við 73 leikskóla og 40 grunnskóla, sjö frístundamiðstöðvar og sex framhaldsskóla. Leikskólar landsins eru hins vegar um 260 talsins, grunnskólarnir 175 og framhaldsskólarnir um 30. Hér er því einungis um að ræða rétt rúmlega fjórðung þeirra menntastofnana sem eru á forræði sveitarfélaganna. Það væri afskaplega ljúft ef gera mætti ráð fyrir því að aðgengi við alla hina leikskólana, skólana og frístundamiðstöðvarnar væri í góðu lagi. Því miður sýnir reynslan að svo er ekki, og því er mikilvægt að halda verkinu áfram. Úrbætur með stuðningi ríkisins Sveitarfélögin eiga einnig kost á að sækja sér styrki til Jöfnunarsjóðs, sem greiðir allt að helmingi framkvæmdakostnaðar vegna úrbóta í aðgengismálum. Það er ánægjulegt að sjá að skólar, leikskólar og frístundaþjónusta eru áberandi á listanum yfir framkvæmdir. Að minnsta kosti 26 sveitarfélög hafa sótt sér styrki til úrbóta á aðgengi í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum. Nokkur sveitarfélög til viðbótar hafa nýtt styrkina til að bæta aðgengi að íþróttamiðstöðvum og tónlistarskólum, svo dæmi séu nefnd. Úrbæturnar eru fjölbreyttar en miða allar að bættu aðgengi fatlaðs fólks að mannvirkjum og umhverfi. Sveitarfélögin hafa meðal annars sett upp rampa, lyftur, hjólastólalyftur, sjálfvirkar rafmagnshurðir og útileiktæki fyrir fötluð börn, lagt hjólastólavæna göngustíga og gert ýmiss konar úrbætur á útisvæðum og bílastæðum við skóla og leikskóla. Allt eru þetta framkvæmdir sem hafa bein áhrif á möguleika barna til fullrar þátttöku í skóla- og frístundastarfi. Ríkið leggur til styrki allt að 464 milljónum króna til úrbóta í aðgengismálum á tímabilinu 2025-2026. Einungis 111 milljónum verið úthlutað til þessa, og því eru rúmlega 350 milljónir enn í pottinum. Þörfin á bættu aðgengi er augljós og fjármagnið er til staðar. Við í Sjálfsbjörg hvetjum því sveitarfélög landsins til að ráðast í markvissar úrbætur á aðgengi að mannvirkjum og umhverfi á þeirra vegum. Ekki síst í þeim mikilvægu menntastofnunum sem leggja grunninn að framtíð barnanna okkar. Höfundur er formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þuríður Harpa Sigurðardóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun