Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar 16. maí 2026 10:45 Við lifum á tímum einnar mestu tæknibyltingar veraldarsögunnar. Við erum komin með vélar sem lesa og skrifa og hver og einn getur auðveldlega lesið fyrir og textinn birtist í áheyranlegu formi sem allir geta meðtekið. Við erum komin með gervigreind sem getur sagt okkur nánast allt sem okkur langar að vita og getur velt hlutum fyrir sér með þér. Það eina sem þú þarft að kunna er að geta spurt gervigreindina. Um leið hefur öll forritun orðið miklu auðveldari og augljóslega er svo margt að koma með gervigreindinni sem við eigum erfitt með að skilja. Við erum rétt byrjuð að sjá toppinn á ísjakanum. Sumt í þessari breytingaþróun á sér hliðstæðu. Við skulum fara ennþá lengra aftur eða allt til upphafs 20. aldar þegar prentverkið springur í raun út og við fáum almenn dagblöð og hægt var að lesa alls konar hluti um hvaðeina sem varð þar með tiltækt almenningi. Þar með var þessi gamla tækninýjung, prentverkið, búin að skapa grundvöll fyrir almennri neyslu á ritmáli. Við erum í raun og veru búin að fara í gegnum þá byltingu. Endalausar samskiptabyltingar Hraði breytinganna verður sífellt meiri. Það var mikil tæknibylting að fá ritverkið og ekki löngu seinna á tuttugustu öldinni fengum við útvarpið. Það dró meðal annars táningana að sér og skapaði nýjan samskiptaheim fyrir þá. Þeir hlustuðu á músík og urðu villtir eins og var stundum sagt í gamla daga! Þetta var gríðarleg breyting og menn töluðu um að útvarpið myndi drepa dagblöðin. Það varð nú ekki. Ekki löngu síðar kemur önnur bylting sem er sjónvarpið og menn töluðu um það að sjónvarpið myndi drepa útvarpið og auðvitað líka dagblöðin. En það varð nú ekki. Svo kom tölvubyltingin og menn á mínum aldri muna vel eftir Sinclair Spectrum, Commodore, Atari og hvað þetta hét nú allt saman. Þetta er ekki svo þekkt í dag. En þessi tæknibreyting varð heldur ekki til þess að drepa prentverkið. Menn héldu áfram að lesa og skólakerfið hefur haldið mjög fast í þessa tæknibyltingu sem prentverkið var. Skólinn er allur harðkóðaður inn á þessa ákveðnu tækni, prenttæknina, enda mjög góð tækni og hentar fyrir flesta en ekki alla. Lesblindir sátu eftir Þeir sem horfa á allar þessar tæknibyltingar og hafa alltaf orðið undir eru þeir sem eru lesblindir. Þeir hafa átt dálítið bágt í ferðalaginu með prenttækninni vegna þess að þeir geta ekki af einhverjum ástæðum notað þessa tækni, sem er augljóslega mjög erfitt fyrir þá. Þessi hópur, þeir lesblindu, hefur orðið undir í skólakerfinu og stundum í lífinu. Margir hafa fundið leiðirnar fram hjá textaþjóðfélaginu og hafa oft náð mjög mikilli færni í því að gera það sem þeir taka sér fyrir hendur og varðveitt með sér ákveðinn frumkvöðulsanda. Í dag er að ryðja sér til rúms ný tæknibylting og á síðasta áratug hafa verið að myndast mállíkön sem hafa gert mönnum kleift að búa til raddgreina og talvélar. Þessar vélar hafa í raun og veru verið ákveðin opinberun fyrir lesblinda námsmenn sem hafa getað notað sér þessa tækni, því hún hefur opnað fyrir þeim menntun. En tæknin hefur ekki stoppað við það, heldur er líka komin gervigreind og nú blasir við að skólakerfið var alls ekki búið undir allar þessar tæknibyltingar. Lesblindir gátu hins vegar ekki látið sig dreyma um slíka byltingu í sínum villtustu draumum. Skólakerfið hangir á gömlu tækninni En þá bregður svo við að skólakerfið byggir enn að stórum hluta á nítjándualdartækni, textanum. Það byggir á bóknámi þar sem náminu er miðlað með bókum. Þetta verður til þess að bókin er í raun og veru enn þá þungamiðja kennslu og miðlunar upplýsinga í skólakerfinu. Þrátt fyrir útvarp, sjónvarp, tölvur, farsíma og spjaldtölvur þá er þessi nítjándualdar tækni, textinn, enn þungamiðja kennslu. Það veldur því að stór hluti nemenda, allavega um 20% nemenda samkvæmt rannsókn Félagsvísindastofnunar, er í raun skilinn út undan. Það er töluverð fórn að mínu mati og í raun og veru algjörlega óþörf fórn vegna þess að sú tækni sem nú er tiltæk ætti í raun og veru að vera nægileg til þess að lesblindir gætu staðið jafnfætis öðrum nemendum með því að nota tölvutæknina. Skemmdaverk og tæknibreytingar En í staðinn eru menn farnir að henda klossunum í vélarnar, skemmdaverk (sabotage) eins og það var kallað í Frakklandi iðnbyltingarinnar. Það gerðu verkamenn vegna þess að þeir vildu ekki vélarnar. Enn finnst mér þessa viðhorfs gæta í skólakerfinu, að það eigi að kasta klossum í vélarnar þannig að þær hætti að virka. Slík skemmdaverk sjást víða þegar menn standa gegn tæknibreytingum í þágu lesblindra. Ég er einnig þeirrar skoðunar að tæknin sem við notum til þess að mennta okkur eigi ekki að skipta máli svo lengi sem við náum markmiðum menntunar, að auka færni og skilning nemenda. Við verðum að læra að lifa með tækninni, hún er hluti af þjóðfélagi nútímans og við getum ekki horft fram hjá því að hún er komin til að vera. Við verðum að horfast í augu við það. Við þurfum að lifa með þessari tækni og það er það sem við eigum að finna út úr í skólakerfinu og koma því inn í 21. öldina og sleppa takinu á 19. öldinni sem skólakerfið rígheldur ennþá í. Höfundur er formaður Félags lesblindra á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tækni Guðmundur S. Johnsen Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar