„Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Kjartan Kjartansson skrifar 18. maí 2026 08:02 Rauð veður viðvörun á öllu landinu. Grótta Seltjarnarnes, öldur, sjór Vísir/Vilhelm Vísbendingar um að lykilhringrás í hafinu í kringum Ísland sé að veikjast vegna hnattrænnar hlýnunar eru svo afgerandi að stórauka þarf aðgerðir til að draga úr losun, að mati ráðgjafa íslenskra stjórnvalda. Of seint verði að koma í veg fyrir hrun hringrásarinnar þegar fullvissa um þróun hennar liggur fyrir. Mikið hefur verið rætt um veikingu og mögulegt hrun svonefndrar veltihringrásar Norður-Atlantshafsins (AMOC) vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Hringrásin bar hlýjan sjá suður úr höfum norður á bóginn og gerir aðstæður við Norður-Atlantshafs vistlegri en þær væru ella. Hryndi hringrásin, eins og þekkt er að gerst hefur í jarðsögunni, hefði það gríðarleg áhrif á loftslag og veðurfar á Íslandi og víðar við Norður-Atlantshafið. Talað hefur verið um að meðalhiti á Íslandi gæti lækkað um allt að níu gráður. Loftslagsráð, sem veitir íslenskum stjórnvöldum ráð um loftslagsmál, segir nýjar og nýlegar rannsóknar hafa dregið úr óvissu á mati á veikingu AMOC á þessari öld. Þær bendi til þess að hringrásin gæti veikst um helming fyrir aldamót. Óvíst sé hversu mikið hún geti veikst áður en hún stöðvist alveg. Halldór Þorgeirsson er formaður Loftslagsráðs. Það sendi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra minnisblað um AMOC í byrjun maí.Vísir/Vilhelm „Þær vísbendingar sem fram hafa komið um veikingu veltihringrásarinnar eru það afgerandi að þegar þarf að bregðast við með stórauknum aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda,“ segir ráðið í minnisblaði til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Eina lausinin að draga hratt úr losun Mögulegt er einnig talið að nokkru áður en til hruns hringrásarinnar komi verði farið yfir vendipunkt þar sem hrun verður mjög líklegt eða jafnvel óumflýjanlegt. Viðvörunarkerfi, sem rætt hefur verið um að koma upp, muni því líklega vara við breytingum sem verð þá þegar of seint að stöðva. „Þegar endanleg fullvissa liggur fyrir um að farið hafi verið yfir vendipunkt yrði of seint að koma í veg fyrir hrun,“ segir í minnisblaðinu. Eina raunhæfa leiðin til þess að draga úr áhættunni á að AMOC veikist frekar að hrynji er að standa vörð um ýtrustu markmið Parísarsamningsins, að mati Loftslagsráðs. Draga þurfi hratt og markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda og auk samhliða bindingu kolefnis. „Þar þarf bæði að nýta náttúrulegar lausnir til kolefnisbindingar og viðurkenndar tæknilegar aðferðir við föngun, geymslu og hagnýtingu kolefnis.“ Þurfa að vinna áhættumat og meta áhrif frekar Ríkisstjórnin setti mögulegt hrun AMOC á dagskrá þjóðaröryggisráðs í haust. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipaði starfshóp um vendipunkta sem tengjast loftslagi með sérstaka áherslu á örlög AMOC. Starfshópurinn á meðal annars að taka saman vísindalega þekkingum um mögulegrar breytingar á AMOC og áhrif á Ísland í minnisblaði til ráðherra og móta sýn á viðbrögð stjórnvalda. Í hópnum eiga meðal annars sérfrðingar frá Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og Hafrannsóknastofnun sæti. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur talað um mögulegt hrun AMOC sem þjóðaröryggismál.Vísir/Ívar Fannar Loftslagsráð segir brýnt að stjórnvöld geri skýra grein fyrir þeim afleiðingum sem það hefur að skilgreina hrun AMOC sem þjóðaröryggismál. „Þessi ákvörðun hefur vakið alþjóðlega athygli og er mikilvægt að Ísland sýni með afgerandi hætti þýðingu þess að setja veikingu eða hrun AMOC í þetta samhengi.“ Nauðsynlegt sé að meta áhrif veikingar og hruns AMOC með ítarlegri hætti en gert hafi verið hingað til. Gera þurfi áhættumat og meta hagræn og samfélagsleg áhrif, til dæmis á fjárfestinar og hagþróun ef líkur á veikingu og hruni aukist enn frekar. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti og stofnandi Hringborðs Norðurslóða, vakti nýlega athygli með ummælum um að mögulegt hrun AMOC ætti að vera helsta áhyggjuefni Íslendinga. Furðaði sig hann á því hversu takmarkaða athygli mögulegt hrun fengi á meðal stjórnmálamanna og fjölmiðla. Veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) er hluti af þeim meginhafstraumum sem dreifa varma um jörðina frá miðbaugi og í átt að pólunum. Hlýr og saltur yfirborðssjór streymir frá hitabeltinu norður Atlantshaf þar sem hann kólnar og sekkur og myndar svonefndan djúpsjó. Hann streymir svo í hyldýpinu suður á bóginn þar sem hann vellur upp og hringrásin heldur áfram. Áhyggjur af veikingu AMOC snúast meðal annars um gríðarlegt innflæði ferskvatns vegna bráðnunar Grænlandsjökul og aukinnar úrkomu. Bráðnunarvatnið gerir sjóinn minna saltan og eðlisléttari þannig að hann sekkur síður. Þannig hægist á hringrásinni. Dæmi eru úr jarðsögunni um að hringrásin stöðvist alveg á hlýskeiðum. Loftslagsmál Hafið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Jarðefnaeldsneyti Tengdar fréttir Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að vísbendingar um mögulegt hrun veltihringrásarinnar í Atlantshafi eigi að vera efst á áhyggjulistanum. 26. apríl 2026 21:55 Stöðugleiki norðlægrar hringrásar skammgóður vermir fyrir Ísland Ísland gæti orðið fyrir miklum áhrifum af veikingu lykilhringrásar í hafinu af völdum hnattrænnar hlýnunar jafnvel þó að nyrsti hluti hennar héldist stöðugur líkt og ný rannsókn gefur vísbendingar um. Misvísandi fréttir hafa verið sagðar af niðurstöðum rannsóknar og þýðingu hennar á undanförnum dögum. 23. október 2025 07:00 Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29. ágúst 2025 09:35 Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast Sumir fremstu loftslagsvísindamanna heims eru á meðal þeirra sem vara norræna ráðherra við alvarlegri ógn við mikilvæga hringrás í Norður-Atlantshafi sem gæti haft hörmungar í för með sér fyrir Norðurlöndin. Fjórir íslenskir fræðimenn eru á meðal þeirra sem skrifa undir opið bréf þess efnis. 19. október 2024 16:16 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Erlent Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Erlent Fleiri fréttir Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Sjá meira
Mikið hefur verið rætt um veikingu og mögulegt hrun svonefndrar veltihringrásar Norður-Atlantshafsins (AMOC) vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Hringrásin bar hlýjan sjá suður úr höfum norður á bóginn og gerir aðstæður við Norður-Atlantshafs vistlegri en þær væru ella. Hryndi hringrásin, eins og þekkt er að gerst hefur í jarðsögunni, hefði það gríðarleg áhrif á loftslag og veðurfar á Íslandi og víðar við Norður-Atlantshafið. Talað hefur verið um að meðalhiti á Íslandi gæti lækkað um allt að níu gráður. Loftslagsráð, sem veitir íslenskum stjórnvöldum ráð um loftslagsmál, segir nýjar og nýlegar rannsóknar hafa dregið úr óvissu á mati á veikingu AMOC á þessari öld. Þær bendi til þess að hringrásin gæti veikst um helming fyrir aldamót. Óvíst sé hversu mikið hún geti veikst áður en hún stöðvist alveg. Halldór Þorgeirsson er formaður Loftslagsráðs. Það sendi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra minnisblað um AMOC í byrjun maí.Vísir/Vilhelm „Þær vísbendingar sem fram hafa komið um veikingu veltihringrásarinnar eru það afgerandi að þegar þarf að bregðast við með stórauknum aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda,“ segir ráðið í minnisblaði til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Eina lausinin að draga hratt úr losun Mögulegt er einnig talið að nokkru áður en til hruns hringrásarinnar komi verði farið yfir vendipunkt þar sem hrun verður mjög líklegt eða jafnvel óumflýjanlegt. Viðvörunarkerfi, sem rætt hefur verið um að koma upp, muni því líklega vara við breytingum sem verð þá þegar of seint að stöðva. „Þegar endanleg fullvissa liggur fyrir um að farið hafi verið yfir vendipunkt yrði of seint að koma í veg fyrir hrun,“ segir í minnisblaðinu. Eina raunhæfa leiðin til þess að draga úr áhættunni á að AMOC veikist frekar að hrynji er að standa vörð um ýtrustu markmið Parísarsamningsins, að mati Loftslagsráðs. Draga þurfi hratt og markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda og auk samhliða bindingu kolefnis. „Þar þarf bæði að nýta náttúrulegar lausnir til kolefnisbindingar og viðurkenndar tæknilegar aðferðir við föngun, geymslu og hagnýtingu kolefnis.“ Þurfa að vinna áhættumat og meta áhrif frekar Ríkisstjórnin setti mögulegt hrun AMOC á dagskrá þjóðaröryggisráðs í haust. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipaði starfshóp um vendipunkta sem tengjast loftslagi með sérstaka áherslu á örlög AMOC. Starfshópurinn á meðal annars að taka saman vísindalega þekkingum um mögulegrar breytingar á AMOC og áhrif á Ísland í minnisblaði til ráðherra og móta sýn á viðbrögð stjórnvalda. Í hópnum eiga meðal annars sérfrðingar frá Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og Hafrannsóknastofnun sæti. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur talað um mögulegt hrun AMOC sem þjóðaröryggismál.Vísir/Ívar Fannar Loftslagsráð segir brýnt að stjórnvöld geri skýra grein fyrir þeim afleiðingum sem það hefur að skilgreina hrun AMOC sem þjóðaröryggismál. „Þessi ákvörðun hefur vakið alþjóðlega athygli og er mikilvægt að Ísland sýni með afgerandi hætti þýðingu þess að setja veikingu eða hrun AMOC í þetta samhengi.“ Nauðsynlegt sé að meta áhrif veikingar og hruns AMOC með ítarlegri hætti en gert hafi verið hingað til. Gera þurfi áhættumat og meta hagræn og samfélagsleg áhrif, til dæmis á fjárfestinar og hagþróun ef líkur á veikingu og hruni aukist enn frekar. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti og stofnandi Hringborðs Norðurslóða, vakti nýlega athygli með ummælum um að mögulegt hrun AMOC ætti að vera helsta áhyggjuefni Íslendinga. Furðaði sig hann á því hversu takmarkaða athygli mögulegt hrun fengi á meðal stjórnmálamanna og fjölmiðla. Veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) er hluti af þeim meginhafstraumum sem dreifa varma um jörðina frá miðbaugi og í átt að pólunum. Hlýr og saltur yfirborðssjór streymir frá hitabeltinu norður Atlantshaf þar sem hann kólnar og sekkur og myndar svonefndan djúpsjó. Hann streymir svo í hyldýpinu suður á bóginn þar sem hann vellur upp og hringrásin heldur áfram. Áhyggjur af veikingu AMOC snúast meðal annars um gríðarlegt innflæði ferskvatns vegna bráðnunar Grænlandsjökul og aukinnar úrkomu. Bráðnunarvatnið gerir sjóinn minna saltan og eðlisléttari þannig að hann sekkur síður. Þannig hægist á hringrásinni. Dæmi eru úr jarðsögunni um að hringrásin stöðvist alveg á hlýskeiðum.
Veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) er hluti af þeim meginhafstraumum sem dreifa varma um jörðina frá miðbaugi og í átt að pólunum. Hlýr og saltur yfirborðssjór streymir frá hitabeltinu norður Atlantshaf þar sem hann kólnar og sekkur og myndar svonefndan djúpsjó. Hann streymir svo í hyldýpinu suður á bóginn þar sem hann vellur upp og hringrásin heldur áfram. Áhyggjur af veikingu AMOC snúast meðal annars um gríðarlegt innflæði ferskvatns vegna bráðnunar Grænlandsjökul og aukinnar úrkomu. Bráðnunarvatnið gerir sjóinn minna saltan og eðlisléttari þannig að hann sekkur síður. Þannig hægist á hringrásinni. Dæmi eru úr jarðsögunni um að hringrásin stöðvist alveg á hlýskeiðum.
Loftslagsmál Hafið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Jarðefnaeldsneyti Tengdar fréttir Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að vísbendingar um mögulegt hrun veltihringrásarinnar í Atlantshafi eigi að vera efst á áhyggjulistanum. 26. apríl 2026 21:55 Stöðugleiki norðlægrar hringrásar skammgóður vermir fyrir Ísland Ísland gæti orðið fyrir miklum áhrifum af veikingu lykilhringrásar í hafinu af völdum hnattrænnar hlýnunar jafnvel þó að nyrsti hluti hennar héldist stöðugur líkt og ný rannsókn gefur vísbendingar um. Misvísandi fréttir hafa verið sagðar af niðurstöðum rannsóknar og þýðingu hennar á undanförnum dögum. 23. október 2025 07:00 Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29. ágúst 2025 09:35 Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast Sumir fremstu loftslagsvísindamanna heims eru á meðal þeirra sem vara norræna ráðherra við alvarlegri ógn við mikilvæga hringrás í Norður-Atlantshafi sem gæti haft hörmungar í för með sér fyrir Norðurlöndin. Fjórir íslenskir fræðimenn eru á meðal þeirra sem skrifa undir opið bréf þess efnis. 19. október 2024 16:16 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Erlent Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Erlent Fleiri fréttir Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Sjá meira
Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að vísbendingar um mögulegt hrun veltihringrásarinnar í Atlantshafi eigi að vera efst á áhyggjulistanum. 26. apríl 2026 21:55
Stöðugleiki norðlægrar hringrásar skammgóður vermir fyrir Ísland Ísland gæti orðið fyrir miklum áhrifum af veikingu lykilhringrásar í hafinu af völdum hnattrænnar hlýnunar jafnvel þó að nyrsti hluti hennar héldist stöðugur líkt og ný rannsókn gefur vísbendingar um. Misvísandi fréttir hafa verið sagðar af niðurstöðum rannsóknar og þýðingu hennar á undanförnum dögum. 23. október 2025 07:00
Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29. ágúst 2025 09:35
Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast Sumir fremstu loftslagsvísindamanna heims eru á meðal þeirra sem vara norræna ráðherra við alvarlegri ógn við mikilvæga hringrás í Norður-Atlantshafi sem gæti haft hörmungar í för með sér fyrir Norðurlöndin. Fjórir íslenskir fræðimenn eru á meðal þeirra sem skrifa undir opið bréf þess efnis. 19. október 2024 16:16
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent