Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Valur Páll Eiríksson skrifar 22. maí 2026 11:00 Arsenal tekur við bikarnum eftir að hafa tryggt sér langþráðan enskan meistaratitil. Vísir/Getty Líða fer að kveðjustund í enska boltanum þennan veturinn. Lokaumferð deildarinnar fer fram á sunnudag þar sem Arsenal mun lyfta langþráðum bikar og annað hvort Tottenham eða West Ham mun falla í B-deildina. Sýn Sport verður með puttann á púlsinum. Allir tíu leikirnir verða í beinni útsendingu á rásum Sýnar Sport. Þá er hægt að fylgjast með öllum tíu samtímis í Doc Zone á Sýn Sport þar sem skipt verður á milli valla og fylgst með hvaða áhrif staða hvers leiks fyrir sig hefur á stöðuna í deildinni. Leikur Manchester United við Brighton er undanskildur Sportrásunum. Hann verður sýndur á Sýn í opinni dagskrá á sunnudaginn klukkan 15:00. Hver er staðan í deildinni? Baráttunni um enska meistaratitilinn lauk í vikunni með misstigi Manchester City og titillinn Arsenal vís. Enn er þó barist á botni og í Evrópubaráttunni. Enn er ekki víst hvort fimm eða sex ensk lið fari í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Chelsea berst fyrir því að spila í Evrópu yfirhöfuð og Liverpool hefur ekki tryggt sæti sitt í Meistaradeildinni. Evrópubaráttan í enska boltanum Sæti Lið L +/- Stig 4. Aston Villa 37 +6 62 5. Liverpool 37 +10 59 6. Bournemouth 37 +4 56 7. Brighton 37 +9 53 8. Chelsea 37 +7 52 9. Brentford 37 +3 52 10. Sunderland 37 -7 51 Liverpool situr í fimmta sæti, neðsta Meistaradeildarsætinu, og til að fráfarandi Englandsmeistarar fari ekki í keppnina að ári þarf það að tapa stórt fyrir Brentford og Bournemouth að vinna stórt gegn Nottingham Forest. Um verður að ræða kveðjuleik Mohamed Salah á Anfield. Evrópusætin verða átta eða níu Vinni Liverpool sinn leik fer liðið upp fyrir Aston Villa í fjórða sæti deildarinnar, EF Aston Villa tapar fyrir Manchester City í það sem verður kveðjuleikur Pep Guardiola. Liverpool er þremur stigum frá Villa og með betri markatölu. Fari það svo að Aston Villa detti niður í fimmta sæti mun sjötta sæti deildarinnar verða Meistaradeildarsæti vegna sigurs Aston Villa í Evrópudeildinni. Þá fer annað hvort Bournemouth eða Brighton í Meistaradeildina. Brighton þarf að vinna Manchester United og treysta á tap Bournemouth fyrir Forest. Sigur Aston Villa í Evrópudeildinni gefur ensku úrvalsdeildinni sjötta Evrópusætið, en bara ef Villa hafnar í fimmta sæti deildarinnar. Aston Villa/Aston Villa FC via Getty Images Sem stendur eru sjötta og sjöunda sætið Evrópudeildarsæti og áttunda sætið fer í Sambandsdeild Evrópu. Chelsea situr sem stendur í áttunda sætinu með 52 stig, sama og Brentford í því níunda og Sunderland er með 51 í 10. sæti. Ef Aston Villa endar í fimmta sætinu færast þessi sæti niður; sjöunda og áttunda sæti fara í Evrópudeild og það níunda í Sambandsdeildina. Chelsea getur enn misst af því að spila yfirhöfuð í Evrópu á næsta ári, ef liðið tapar í sex stiga leik við Sunderland. Fellur Tottenham eða West Ham? Þá kemur í ljós hvort Tottenham eða West Ham fellur úr ensku úrvalsdeildinni. Tottenham er í vænlegri stöðu til að bjarga sér og fella West Ham.Richard Heathcote/Getty Images Tottenham dugar stig gegn Everton þó aðeins tvö stig aðskilji Spurs og West Ham þar sem Tottenham er með tólf mörkum betri markatölu. West Ham þyrfti því að vinna tólf marka sigur á Leeds United til að halda sæti sínu ef Tottenham fær stig. Sigur heldur Spurs uppi og fellir West Ham sama hvað en vinni West Ham Leeds og Tottenham tapi fyrir Everton fara þeir hvítklæddu í B-deildina. Líkt og segir að ofan verða allir tíu leikirnir í beinni á rásum Sýnar Sport og allir á sama tíma í Doc Zone. Niðurröðun þeirra má sjá að neðan. Lokaumferð enska boltans á sunnudag á Sýn Sport 14:40 Doc Zone (Sýn Sport) 15:00 Manchester City – Aston Villa (Sýn Sport 2) 15:00 Crystal Palace – Arsenal (Sýn Sport 3) 15:00 Liverpool – Brentford (Sýn Sport 4) 15:00 Tottenham – Everton (Sýn Sport 5) 15:00 Sunderland – Chelsea (Sýn Sport 6) 15:00 Manchester United – Brighton (Sýn) 15:00 Burnley – Wolves (Sýn Sport Ísland) 15:00 Fulham – Newcastle (Sýn Sport Ísland 2) 15:00 Nott. Forest – Bournemouth (Sýn Sport Ísland 3) 15:00 West Ham – Leeds (Sýn Sport Ísland 4) 20:00 Sunnudagsmessan (Sýn Sport) Enski boltinn Arsenal FC Aston Villa FC Brighton & Hove Albion AFC Bournemouth Brentford FC Manchester City Manchester United Liverpool FC Chelsea FC Sunderland AFC Newcastle United Everton FC Fulham FC Leeds United Crystal Palace FC Nottingham Forest Tottenham Hotspur West Ham United Burnley FC Wolverhampton Wanderers Sýn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira
Evrópubaráttan í enska boltanum Sæti Lið L +/- Stig 4. Aston Villa 37 +6 62 5. Liverpool 37 +10 59 6. Bournemouth 37 +4 56 7. Brighton 37 +9 53 8. Chelsea 37 +7 52 9. Brentford 37 +3 52 10. Sunderland 37 -7 51
Enski boltinn Arsenal FC Aston Villa FC Brighton & Hove Albion AFC Bournemouth Brentford FC Manchester City Manchester United Liverpool FC Chelsea FC Sunderland AFC Newcastle United Everton FC Fulham FC Leeds United Crystal Palace FC Nottingham Forest Tottenham Hotspur West Ham United Burnley FC Wolverhampton Wanderers Sýn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira