Hjartaljósin ekki sloppin Bjarki Sigurðsson skrifar 19. júní 2026 12:40 Umferðarljós Akureyrar vekja oftast lukku meðal ferðamanna. Mögulega of mikla lukku að mati Vegagerðarinnar. Vísir/Viktor Freyr Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað verður um hjartalaga umferðarljós Akureyrarbæjar. Málið er komið aftur á borð Vegagerðarinnar eftir ósk innviðaráðuneytisins um heimild til notkunar hjartalaga ljósops í rauðum umferðarljósum í reglugerð.
Í júní í fyrra óskaði Vegagerðin eftir því við skipulagsráð Akureyrarbæjar að hjartalaga rauð umferðarljós sem logað hafa í bænum um árabil verði fjarlægð. Hjörtun ógni umferðaröryggi meðal annars vegna þess hve oft ferðamenn taka myndir og sjálfur með ljósunum, jafnvel á miðeyjum fjölfarinna gatnamóta. Málið vakti mikla athygli og kepptust Akureyringar við að lýsa yfir afdráttarlausum stuðningi við hjörtun og sögðu ómögulegt að verða við beiðninni. Halla Tómasdóttir blandaði sér í leikinn og gerði skoðanakönnun meðal fylgjenda sinna á Instagram þar sem hún kannaði ást fólks á ljósunum. Þá hló þingheimur þegar Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra reyndi að mynda hjarta með höndunum í þingsal þegar málið var rætt í þingsal. Í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn fréttastofu um hver staðan sé á málinu tæpu ári síðar segir að það sé enn í vinnslu. Fyrr á árinu hafi innviðaráðuneytið óskað eftir umsögn Vegagerðarinnar um tillögu að breytingu á reglugerð um umferðarmerki. Vegagerðin gerði athugasemdir við tillöguna og í framhaldi af því óskaði ráðuneytið eftir því að Vegagerðin útfærði heimild til notkunar hjartalaga ljósops í rauðum umferðarljósum í reglugerð. Nú sé unnið að þeirri yfirferð en næstu skref ráðist af niðurstöðu þeirrar vinnu og áframhaldandi meðferð málsins hjá stjórnvöldum.
Akureyri Samgöngumál Samgönguslys Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Umferðaröryggi Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira