Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Birgir Olgeirsson skrifar 29. júní 2026 12:54 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir Ísland standa sterkar að vígi nú en þegar síðast var rætt um aðild að Evrópusambandinu í kjölfar bankahrunsins. Vilhelm Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra varar Evrópusambandið við hugmyndum um að ný aðildarríki þurfi að bíða eftir fullum atkvæðis- og neitunarvaldsrétti eftir inngöngu í sambandið.
Þetta kemur fram í viðtali Þorgerðar við Euractiv, evrópskan fréttamiðil sem sérhæfir sig í umfjöllun um Evrópusambandið, stjórnmál í Brussel og stefnumótun í Evrópu. Greinina skrifar Magnus Lund Nielsen, stjórnmálablaðamaður Euractiv í Brussel. Í greininni er fjallað um vaxandi umræðu innan Evrópusambandsins um hvort ný aðildarríki eigi að sæta eins konar reynslutíma áður en þau fá full réttindi innan sambandsins. Slíkt gæti til dæmis takmarkað möguleika nýrra ríkja til að beita neitunarvaldi í viðkvæmum málum, svo sem skattamálum og utanríkismálum. Þorgerður segir Evrópusambandið þurfa að fara varlega í þeim efnum. Slíkir skilmálar gætu gert aðild að sambandinu minna aðlaðandi fyrir ríki sem íhuga inngöngu. Hún segist þó skilja af hverju umræðan sé komin upp innan sambandsins. Þar vegi þungt reynslan af Ungverjalandi, sem hefur ítrekað beitt neitunarvaldi sínu í viðkvæmum málum, meðal annars vegna stuðnings við Úkraínu. Þorgerður Katrín segir efnahagsmálin meðal sterkustu raka fyrir því að Ísland ræði aðild að Evrópusambandinu að nýju. Hún segir háa vexti og verðbólgu vega þungt í þeirri umræðu.Vísir/Lýður Valberg Ísland gengur til þjóðaratkvæðis 29. ágúst um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Verði samið um aðild yrði sá samningur svo borinn sérstaklega undir þjóðina síðar. Þorgerður segir stöðu Íslands nú aðra en þegar síðast var reynt að semja um aðild, í kjölfar bankahrunsins. Ísland standi sterkar að vígi og Evrópusambandið hafi sjálft ríka hagsmuni af því að sýna að stækkun sambandsins snúist ekki aðeins um austur- og suðausturhluta Evrópu. Í viðtalinu segir Þorgerður efnahagsmálin vera meðal sterkustu raka fyrir aðild. Ísland búi við háa vexti og verðbólgu og að aðild að Evrópusambandinu, og síðar upptaka evru, gæti aukið efnahagslegan stöðugleika fyrir íslensk heimili. Hún leggur jafnframt áherslu á að aukinn áhugi Íslands á Evrópusambandinu þýði ekki að Ísland sé að snúa baki við Bandaríkjunum. Bandaríkin verði áfram mikilvægur bandamaður Íslands, en íslensk stjórnvöld séu, líkt og önnur ríki, að styrkja fleiri stoðir í utanríkis- og öryggismálum.
Utanríkismál Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira