Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 9. júlí 2026 12:01 Ég er kannski einfaldur, en ég hélt að við værum bara að fara að kjósa um að taka aftur upp viðræður við ESB. Framhald á þeim samningaviðræðum sem farið var í eftir hrunið og við fengum ekki einu sinni að kjósa um. Eða þó, áframhaldi viðræðna var víst lofað af þeim flokkum sem komust til valda 2013, þannig að mögulega fengu þeir nú einhver atkvæði fyrir það loforð. En það ferli endaði, eins og frægt er, með hrútskýringunni merkilegu: „pólitískur ómöguleiki“. Í þá vegferð var lagt af stað til að gera samning sem síðan yrði lagður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu. Þá fengjum við að sjá, svart á hvítu, hvort það væri þess virði fyrir okkur að ganga alla leið inn í sambandið. Því jú, við erum víst, í gegnum EES, að stórum hluta inn í ESB nú þegar. Núna var einfaldlega ekki lagt af stað aftur í samningaviðræður. Það er verið að spyrja okkur hvort við viljum, sem þjóð, hefja það ferli aftur og síðan meta það, hvert og eitt okkar, hvort það sé þess virði að ganga inn. Kostir og gallar. Já eða nei þegar samningur liggur fyrir. En svo fór bara allt í háaloft hér á Íslandi. Sérstaklega á Facebook, í skoðanagreinum og á hinum ýmsu stöðum þar sem fólk kemur saman. Sumir virðast halda að við séum að kjósa um að taka upp evru strax. Aðrir að við séum að gefa frá okkur fiskimiðin. Sumir að við séum að leggja niður íslenskan landbúnað. Aðrir að við séum að taka á okkur skuldir annarra ríkja. Enn aðrir að við séum að ganga í hernaðarbandalag, afsala okkur fullveldinu, eða samþykkja allt sem ESB hefur nokkurn tímann gert í utanríkismálum. Það er líka merkilegt, jafnvel spaugilegt ef þetta væri ekki svona sorglegt, að fylgjast með fólki ræða já eða nei á netinu. Margir virðast löngu búnir að ákveða sig. Rök skipta minnstu máli. Heimildir enn minna. Hræðslan ræður för. Svo er bara leitað að næstu fyrirsögn, næsta hálfsannleik, næstu Facebook-færslu eða næsta reiða eða hrædda manni til að staðfesta það sem fólk var búið að ákveða fyrirfram. Við höfum heyrt þessa umræðu áður, við sem eldri erum. Þegar EES-samningurinn var ræddur á sínum tíma var líka talað um endalok hins íslenska lýðveldis, afsal sjálfstæðis og valdframsal. Almenningur var hræddur með gífuryrðum og skoðanakannanir sýndu á köflum mikla andstöðu við samninginn. Alþingi samþykkti hann hins vegar án þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem betur fer, má kannski segja í dag, því nú eru fáir sem vilja segja sig frá EES. Þvert á móti eru flestir orðnir sammála um að EES-samningurinn hafi verið mikið heillaskref fyrir þjóðina. Þá fékk þjóðin ekki að samþykkja eða hafna samningnum sjálf. Alþingi gerði það fyrir okkur. Og merkilegt nokk, þrátt fyrir allan hræðsluáróðurinn, varð niðurstaðan góð fyrir okkur öll. Því liggur sú spurning í loftinu hvort okkur, hverju og einu, sé yfirhöfuð treystandi sem vitiborinni manneskju til að taka ákvörðun. Eða hvort það sé bara of auðvelt að villa um fyrir okkur með áróðri og misvísandi upplýsingum frá fólki sem sjaldnast tiltekur heimildir fyrir skrifum sínum. Og hverjir eru það sem vilja hræða okkur frá því að fá bara að sjá hvað samningur fæli í sér? Er það fólkið sem fær 8 milljónir í vexti á ári af 100 milljónum króna inni á bankareikningi, en myndi fá nær 2 milljónum miðað við evruvexti? Eða þeir sem lána út 100 milljónir og fá vexti upp á 10 milljónir á ári, í stað 3,3 milljóna miðað við evruvexti? Eru það þeir sem selja okkur bílatryggingu fyrir einn bíl á verði sem myndi nægja til að tryggja tvo til þrjá bíla í Evrópu? Eða smásölukeðjurnar okkar, sem skila methagnaði á meðan matarverð hér er það hæsta í Evrópu, meira að segja með teknu tilliti til hárra launa? Já, það er fólkið sem græðir á okkur sem vill hræða okkur. Það er nokkuð ljóst. En með þeim í liði eru framámenn vinstri framboða. Þið vitið, fólkið sem setur úreltar hugmyndir og gamla pólitíska kreddutrú ofar hag almennings.. Ofar hag kjósenda sinna, sem vilja einfaldlega fá að sjá hvað hægt sé að gera til að afnema hér okurvexti, verðtryggingu og fákeppni. Og svo auðvitað sumir verkalýðsforkólfar, sem halda enn, þvert á reynslu okkar sjálfra, að gengisfellingar séu góðar fyrir almenning. Eins og við fáum ekki alltaf reikninginn í formi hærra vöruverðs, verðbólgu, vaxta og lakari kaupmáttar. Á meðan við hin, vonandi flest, viljum bara fá að sjá hvað það felur í sér að ganga alla leið inn í ESB. Ekki bara hálfa leið með EES, þar sem fyrirtækin og fjármagnið eru fullgildir meðlimir ESB, en almenningur ekki. Því það er nefnilega það sem er verið að kjósa um. Ef samningurinn verður vondur, segjum við nei. Ef hann verður góður, getum við sagt já. En að segja nei núna er ekki að hafna vondum samningi. Það er að hafna því að fá að sjá samninginn yfirhöfuð. Höfundur er jákvæður stafrænn hönnuður og áhugamaður um betri samfélagsumræðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar