Vangaveltur Hörður Torfason skrifar 12. júlí 2026 19:32 Megas er dáinn. Á Facebook skrifaði myndlistarmaðurinn Jón Óskar orð sem vöktu mig til umhugsunar: „Hann hefur ekki verið spilaður í ca. tíu ár. Skyndilega skella á mig tvö lög í RÚV... þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Þessi spurning er stærri en Megas. Hún snýst um okkur öll. Hvernig bregst samfélag við listamönnum sem fara eigin leiðir? Hvenær er um eðlilega þróun að ræða og hvenær verður þögnin sjálf að félagslegri útilokun? Á síðustu árum hefur orðið slaufun fest sig í sessi. Það er oft notað þegar fólki finnst listamaður fá of litla athygli eða sé ekki lengur spilaður í útvarpi. En hér þarf að gæta að orðunum. Menningarlíf er síbreytilegt. Ný kynslóð tónlistarmanna kemur fram, nýtt útvarpsfólk tekur við og áherslur breytast. Enginn listamaður getur ætlast til þess að vera jafn sýnilegur alla ævi. Slaufun er því eitthvað annað en breyttur tíðarandi. Hún birtist þegar einstaklingur verður smám saman ósýnilegur af öðrum ástæðum en verkum sínum. Þegar hætt er að bjóða honum að koma fram, þegar fjölmiðlar hætta að leita til hans eða fólk kýs þögnina fremur en samtalið. Jafnvel að sporgöngufólk hans, áratugum yngra, ásaka hann um óheilindi. Oft gerist þetta án þess að nokkur taki meðvitaða ákvörðun. Hver og einn telur sig aðeins vera að forðast óþægindi. En saman verða þessar litlu ákvarðanir að útilokun sem enginn virðist bera ábyrgð á. Þetta fyrirbrigði er miklu eldra en orðið slaufun. Íslenskt samfélag hefur lengi þekkt aðferðir sem gera fólk ósýnilegt án þess að nokkurt bann sé lagt við því. Þögn getur verið áhrifaríkasta refsiaðferðin. Ég hef sjálfur kynnst þessu á löngum ferli. Ég nefni það ekki vegna þess að saga mín sé mikilvægari en annarra heldur vegna þess að hún spannar meira en hálfa öld. Ég varð fyrstur Íslendinga til að lýsa opinberlega yfir samkynhneigð minni árið 1975 og hef síðan starfað sem listamaður án þess að aðskilja verk mín og samfélagið sem þau spretta úr. Um þá reynslu hef ég skrifað ítarlega annars staðar. Hún hefur kennt mér að útilokun er sjaldnast hávær. Hún birtist frekar í sífellt færri tækifærum og minnkandi sýnileika. Ég hef alla tíð litið svo á að hlutverk mitt sem listamanns væri að hugsa upphátt um samfélag mitt og deila þeim hugsunum í verkum mínum. Ekki til að færa fólki endanleg svör heldur til að vekja spurningar, opna ný sjónarhorn og halda samtalinu gangandi. Þess vegna hef ég stundum farið óhefðbundnar leiðir. Ég hef litið á sýnileikann sem listrænt verkfæri, ekki síður en sönginn sjálfan. Hvort sem um var að ræða réttindabaráttu hinsegin fólks, friðsamleg mótmæli eða tónleikaferðir um landið var markmiðið hið sama: að skapa samtal þar sem áður ríkti þögn. En þá vaknar önnur spurning: Til hvers eru listamenn? Eiga þeir fyrst og fremst að staðfesta það sem samfélagið veit fyrir, eða eiga þeir stundum að ögra ríkjandi hugmyndum, benda á það sem fer úrskeiðis og færa okkur ný sjónarhorn? Ég held að samfélag sem umbunar aðeins þeim listamönnum sem staðfesta ríkjandi skoðanir verði smám saman fátækara. Saga listarinnar sýnir að þeir sem fara eigin leiðir eru oft umdeildir á meðan þeir eru að störfum en fá viðurkenningu síðar, þegar samfélagið hefur sjálft breyst, oft vegna framlags þeirra. Listamaður á ekki að vera hafinn yfir gagnrýni. Gagnrýni er hluti af lýðræðislegu samtali. En það er grundvallarmunur á gagnrýni og útilokun. Gagnrýni heldur samtalinu lifandi. Slaufun stöðvar það.Þess vegna finnst mér slaufun varasöm. Hún beinist ekki aðeins að einstaklingnum heldur rýfur hún samtalið sem listin á að eiga við samfélagið. Þegar samfélag hættir að hlusta á listamenn vegna þess að þeir vekja óþægilegar spurningar missir það jafnframt tækifæri til að skoða sjálft sig. Viðbrögðin við andláti Megasar urðu til þess að ég fór að velta þessu fyrir mér. Ekki vegna þess að ég telji sögu hans sambærilega við sögu annarra, heldur vegna þess að þau minna á hversu auðvelt samfélag á stundum með að heiðra listamenn þegar þeir geta ekki lengur svarað fyrir sig. Kannski ættum við síður að spyrja hvers vegna við uppgötvum suma listamenn á ný þegar þeir eru dánir. Frekar ættum við að spyrja hvers vegna við hættum stundum að hlusta á þá meðan þeir eru enn á lífi. Því réttlæti sem kemur fyrst eftir dauðann er ekki réttlæti. Og samfélag sem hættir að hlusta á þá sem hugsa upphátt um samtímann á á hættu að missa ekki aðeins rödd þeirra heldur einnig dýrmætt tækifæri til að skilja sjálft sig. Hafið það sem best. Höfundur er söngvaskáld og leiksviðslistamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun