Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó Anton Kári Halldórsson skrifar 14. júlí 2026 10:00 Fyrirhugaðar breytingar og þjónustuskerðingar Vegagerðarinnar á leiðakerfi landsbyggðastrætó, sem taka gildi núna í haust, valda stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og íbúum öllum á Suðurlandi þungum áhyggjum. Rekstrarskerðingarnar hitta vaxandi svæði beint fyrir og bera vott um alvarlegt ósamræmi á milli yfirlýstra markmiða stjórnvalda og raunverulegra fjárveitinga. Á sama tíma og nýsamþykkt samgönguáætlun kveður á um að efla eigi almenningssamgöngur til að bæta þjónustu, er Vegagerðinni gert að mæta 660 milljóna króna vanfjármögnun með því að skera niður í almenningssamgöngum, sem eru forsenda atvinnuþátttöku, náms og þjónustusóknar fyrir fjölmarga íbúa landsbyggðarinnar. Skerðingar á vaxandi svæði þvert á hagsmuni íbúa Niðurskurðurinn bitnar þungt á Sunnlendingum. Suðurland hefur verið í fararbroddi meðal landshluta þegar kemur að íbúafjölgun og uppbyggingu undanfarin ár með tilheyrandi áskorunum, m.a. í samgöngum. Breytingarnar fela í sér að ferðum á leið 51 á milli Selfoss og Reykjavíkur fækkar úr sextán niður í fjórtán á dag, þrátt fyrir að samkvæmt tölfræði Vegagerðarinnar sé þetta langfjölfarnasta leið kerfisins á Suðurlandi með yfir 57 þúsund farþega á ári. Þá fækkar ferðum á leið 71 á milli Þorlákshafnar og Hveragerðis úr fimm niður í fjórar, þrátt fyrir að rúmur fimmtungur íbúa á þessum slóðum sæki vinnu og þjónustu yfir á höfuðborgarsvæðið eða á Selfoss. Mest bitnar þessi niðurskurður þó á Uppsveitum Árnessýslu þar sem leið 73 á milli Selfoss og Reykholts leggst hreinlega af. Sveitarstjórnir í Uppsveitum Árnessýslu hafa þegar mótmælt þessum áformum kröftuglega og undrast stórum ákvörðunartöku þar sem ekkert samráð var haft við sveitarfélögin. Aksturinn á þessari leið kom á sínum tíma í stað skólaaksturs fyrir nemendur við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU) og er með öllu óásættanlegt að fella hann niður. Aðgengi að almenningssamgöngum á að jafna stöðu íbúa óháð aldri og efnahag en með niðurfellingunni skerðast möguleikar ungmenna í Uppsveitum til að stunda nám heiman frá sér og taka virkan þátt í félagslífi, íþróttum og öðru tómstundastarfi. Þá má geta þess að í síðustu breytingum á svæðinu var stoppistöðin við gatnamót Þjórsárdalsvegar og Skeiðavegar felld út, sem var eina tenging íbúa í Árnesi við kerfið, og með niðurfellingu leiðar 73 standa Uppsveitir Árnessýslu því eftir nánast án almenningssamgangna, sem er með öllu óboðlegt. Grafa undan framsæknum fyrirtækjum og orkuskiptum Þessi skammsýni bitnar ekki aðeins á skólafólki og almennum íbúum, heldur refsar hún einnig framsæknum sunnlenskum fyrirtækjum sem hafa sýnt mikið frumkvæði og fjárfest ómælt í vistvænum lausnum. Fyrirtækið Guðmundur Tyrfingsson (GTS) á Selfossi er skýrt dæmi um aðila sem svaraði kalli stjórnvalda um orkuskipti með því að byggja upp öfluga hleðsluinnviði og rafvæða bifreiðaflota sinn sérstaklega í tengslum við þjónustuhlutverk sitt í almenningssamgöngum á Suðurlandi. Þessir frumkvöðlar standa nú frammi fyrir rýrari samningum í haust vegna niðurskurðar Vegagerðarinnar. Ef við viljum raunverulegan árangur í umhverfismálum og umferðaröryggi á fjölsóttum ferðamannasvæðum verðum við að sýna úthald, skapa stöðugleika og tryggja að fjármálaáætlun, samgönguáætlun og framkvæmdaraðilar vinni í takti til langs tíma. Ný könnun sýnir mikla eftirspurn íbúa eftir strætó Ný fýsileikakönnun SASS og Háskólafélags Suðurlands frá vorinu 2026 sýnir svart á hvítu að brýn þörf er á öflugra samgöngukerfi og samnýtingu aksturs í Árnessýslu. Þar sýna niðurstöður að þótt 91% svarenda hafi daglegan aðgang að einkabíl, þá myndu heil 58,2% íbúa nýta almenningssamgöngur vikulega eða oftar ef tímasetningar og tengingar mættu raunverulegum ferðaþörfum þeirra. Stærsta þjónustugatið og mesta eftirspurnin er síðdegis á milli klukkan 15:00 og 18:00, þar sem 41,4% svarenda bentu á að ferðir vantaði sárlega þegar skóla- og vinnudegi lýkur. Í Flóahreppi, sem stendur utan hefðbundins strætókerfis, sögðust yfir 60% heimila tilbúin að nýta sér sérstakan frístundaakstur fyrir börn og ungmenni. Þessi hrópandi eftirspurn sýnir svart á hvítu að vandinn liggur ekki í áhugaleysi íbúa, heldur í skorti á hentugum ferðum á þeim tímum þar sem þörfin er mest. Tækifæri til að bregðast við í september Íbúar og atvinnulíf á landsbyggðinni eiga ekki að þurfa að búa við skerta þjónustu og ófyrirsjáanleika á sama tíma og framlög til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu hækka í samgönguáætlun. Það virðist vera að stjórnvöld líti á almenningssamgöngur á landsbyggðinni sem lúxus en ekki nauðsynlega innviði sem héldi samfélögum svæðisins gangandi. Það tekur langan tíma að byggja upp traust og vana hjá farþegum en það tekur örskamma stund að glata þeim árangri með sífelldum skerðingum. Ríkisstjórnin fær tækifæri til að leiðrétta þessa vanfjármögnun og sýna yfirlýstum markmiðum sínum stuðning í verki þegar fjárlagafrumvarp næsta árs verður lagt fram í september næstkomandi. Stjórn SASS skorar á stjórnvöld að nýta það tækifæri vel og tryggja íbúum og þeim fjölmörgu ferðamönnum á Suðurlandi öruggar og fjármagnaðar almenningssamgöngur. Höfundur er formaður stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Strætó Byggðamál Samgöngumál Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun