Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar 14. júlí 2026 12:31 Þann 29. ágúst næstkomandi verður kosið um hvort hefja eigi á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Við erum því ekki að greiða atkvæði um fullmótaðan samning eða endanlega inngöngu. Engu að síður er mikilvægt að ræða strax hvert við viljum stefna og hvaða væntingar við gerum okkur til aðildar. Í umræðunni er oft talað eins og innganga í Evrópusambandið og upptaka evru séu einföld leið að lægri vöxtum, stöðugra verðlagi og betri lífskjörum. Ég skil vel hvers vegna þessi fyrirheit höfða til fólks. Íslensk heimili hafa þurft að glíma við háa vexti, verðbólgu og ófyrirsjáanlegar afborganir. En lægri vextir eru ekki það sama og betra eða öruggara líf. Ég hef búið í Svíþjóð og séð hvernig lífið í Evrópusambandsríki lítur út frá sjónarhóli venjulegs fólks. Þar kynntist ég fólki sem þurfti að leggja saman fjármuni með tvennum vinahjónum til þess að eiga möguleika á að kaupa fasteign. Í stórborgunum dreymdi marga ekki lengur um að eignast eigið heimili. Stóra markmiðið var að komast inn á svokallaðan förstahandskontrakt - langtímaleigusamning þar sem hægt er að leigja íbúð á þokkalegum kjörum og með nokkru öryggi. Það getur vissulega verið góður kostur. En þú eignast aldrei neitt. Þú greiðir húsnæðiskostnað ár eftir ár án þess að byggja upp eigið fé, eign eða öryggi til framtíðar. Fyrir suma er slíkt kerfi val. Fyrir aðra er það einfaldlega eina leiðin til að hafa þak yfir höfuðið, og ég á erfitt með að trúa því að það sé framtíð sem við á Íslandi óskum okkur. Þetta er ekki aðeins mín upplifun. Evrópusambandið viðurkennir sjálft að alvarleg húsnæðiskreppa ríki víða í Evrópu. Ungt fólk sem býr sjálfstætt glímir við húsnæðisbyrði í um tvöfalt meiri mæli en eldri kynslóðir og sums staðar finnst varla nokkur íbúð sem telst viðráðanleg fyrir ungt fólk á miðlungslaunum. Nýlegar evrópskar rannsóknir sýna jafnframt að hlutfall 25 - 35 ára fólks sem á eigið húsnæði hefur lækkað verulega frá árinu 2007. Vaxtaprósentan segir ekki alla söguna Það er auðvelt að bera saman stýrivexti á Íslandi og á evrusvæðinu og komast að þeirri niðurstöðu að lífið hljóti sjálfkrafa að vera auðveldara þar sem vextirnir eru lægri. En heimilisbókhald samanstendur ekki aðeins af húsnæðisláni. Þegar ég bjó erlendis fór stór hluti launanna í kostnað sem íslensk heimili finna oft minna fyrir. Húshitun, rafmagn, tryggingar, sími, internet, samgöngur og ýmis þjónustugjöld tóku stóran skerf af ráðstöfunartekjunum. Launin voru á sama tíma töluvert lægri fyrir sambærileg störf á Íslandi. Þess vegna skiptir ekki aðeins máli hvað ein kílóvattstund kostar eða hver vaxtaprósentan er. Spurningin er hversu mikið er eftir af laununum þegar búið er að greiða fyrir húsnæði, hita, orku, samgöngur, barnagæslu og aðrar grunnþarfir fjölskyldunnar. Við vitum líka að Evrópusambandið er heldur ekki eitt samræmt lágverðssvæði. Verðlag er mjög mismunandi milli ríkja. Árið 2025 var almennt verðlag í Danmörku til dæmis um 40% yfir meðaltali Evrópusambandsins. Raforkuverð til heimila er einnig afar ólíkt eftir löndum og hefur hækkað í mörgum aðildarríkjum. Það er alveg á hreinu að innganga í ESB færir íslenskum heimilum ekki sjálfkrafalægri heildarútgjöld, því þrátt fyrir að vextir gætu á einhverjum tíma lækkað myndi annar fastur kostnaður að öllum líkindum hækka. Evran er ekki töfrasproti Því er einnig stundum haldið fram að með inngöngu í Evrópusambandið getum við nánast samstundis tekið upp evru og fengið sömu vexti og stærstu hagkerfi álfunnar. Raunin er flóknari. Ný aðildarríki taka ekki sjálfkrafa upp evru við inngöngu. Þau þurfa fyrst að uppfylla sérstök skilyrði um meðal annars verðstöðugleika, ríkisfjármál, skuldir, langtímavexti og gengisstöðugleika. Þótt nýjum aðildarríkjum sé almennt ætlað að taka evruna upp síðar er engin fyrirfram ákveðin dagsetning tryggð. Sameiginleg mynt þýðir jafnframt sameiginlega peningastefnu. Vextir eru þá ákveðnir með hliðsjón af stöðu evrusvæðisins í heild, ekki sérstaklega aðstæðum á Íslandi. Hagkerfi sem byggist í ríkum mæli á sjávarútvegi, ferðaþjónustu og sveiflum tengdum náttúru og alþjóðamörkuðum getur þurft að bregðast við öðrum aðstæðum en stærstu iðnríki Evrópu. Auðvitað er krónan okkar ekki gallalaus. Langt því frá. En við getum ekki látið eins og upptaka evru sé áhættulaus leið að varanlega lágum vöxtum, og við þurfum að skilja hvað það raunverulega þýðir að gefa eftir sjálfstæða peningastefnu. Ísland stendur ekki utan Evrópu. Í gegnum EES-samninginn höfum við aðgang að innri markaði Evrópu og njótum meðal annars frjálsrar farar fólks, vöru, þjónustu og fjármagns. Við tökum þátt í umfangsmiklu samstarfi á sviði menntunar, rannsókna, neytendaverndar, vinnumarkaðar og umhverfismála. Á sama tíma standa ákveðin svið utan EES-samningsins, þar á meðal sameiginleg landbúnaðar- og sjávarútvegsstefna ESB, tollabandalagið, sameiginleg viðskiptastefna og myntbandalagið. Við höfum því nú þegar tryggt okkur stóran hluta þess aðgangs sem almenningi er gjarnan sagt að fylgi ESB-aðild en að sama skapi stöndum við ekki jöfnum fæti við fullgild aðildarríki þegar kemur að því að hafa sæti við borðið í samtali um mótun margra þeirra reglna sem við tökum upp í gegnum EES. En spurningin er hvort full aðild, með öllum þeim skuldbindingum og valdaframsali sem henni fylgir, sé besta lausnin fyrir íslensk heimili og hvort smáþjóðin Ísland muni hafa eitthvað vægi í samtalinu þrátt fyrir að vera fullgild aðildarþjóð. Hvað situr eftir um mánaðamótin? Ég vil að umræðan næstu vikur snúist ekki eingöngu um útgerðarfyrirtæki, tollkvóta, stofnanir eða fræðilegar hagspár. Hún þarf líka að snúast um tvítuga parið sem vill eignast sína fyrstu íbúð. Einstæða foreldrið sem þarf að greiða rafmagns- og hitaveitureikninginn. Fjölskylduna sem vill hafa ráð á að eignast heimili, reka bíl og leyfa börnunum að stunda íþróttir. Við getum ekki bara spurt: Hversu háir (eða lágir) gætu vextirnir orðið? Við verðum líka að spyrja: Hversu há verða launin? Hvað kostar að hita heimilið? Hversu stór hluti teknanna fer í húsnæði? Getur ungt fólk eignast eitthvað sjálft? og hvað ætlum við að gera þegar við höfum ekki vald til að bregðast við þegar aðstæður á Íslandi eru aðrar en annars staðar í Evrópu? Því vaxtaprósentan skiptir í raun og veru engu máli ef hún skilar ekki fleiri krónum í vasann. Ég er ekki á móti Evrópu. Ég er ekki á móti samstarfi, viðskiptum eða því að Íslendingar geti búið, starfað og menntað sig um alla álfuna. Ég hef sjálf notið góðs af því. En reynsla mín af því að búa innan Evrópusambandsins kenndi mér að lífið verður ekki sjálfkrafa auðveldara þótt vextir séu lægri og gjaldmiðillinn stærri. Fólk getur haft aðgang að lágum vöxtum en samt engan raunhæfan möguleika á að eignast heimili. Það getur búið við stöðugri mynt en samt átt lítið eftir af laununum um hver mánaðamót. Evrópusambandið er ekki töfralausn á íslenskum húsnæðisvanda, verðbólgu eða erfiðum rekstri heimilanna. Þau vandamál verðum við fyrst og fremst að hafa kjark og getu til að leysa sjálf. Og í mínum huga er það kýrskýrt að þessi vandamál leysast ekki á meðan öll stjórnsýslan er undirlögð í viðræðum og aðlögun fyrir Evrópusambandsaðild Þess vegna mun ég segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust. Höfundur er verkfræðingur, formaður menntaráðs Reykjanesbæjar og bjó og starfaði um árabil í Svíþjóð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun