Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. júlí 2026 15:43 Campbell skellti sér í sund og í Stjórnarráðið í dag. Breski spunameistarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Alastair Campbell, sem var lengi vel talsmaður Tony Blair, er staddur á Íslandi til að taka viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Campbell er feginn að komast undan hitanum á Bretlandi í kuldann og rigninguna á Íslandi.
Alastair Campbell er breskur blaðamaður sem var um margra ára bil ritstjóri yfir stjórnmálafréttum Daily Mirror áður en gekk til liðs við Tony Blair, nýkjörinn leiðtoga Verkamannaflokksins, árið 1994. Campbell var lykilmaður í mótun „Nýja Verkamannaflokksins“ á tíunda áratugnum og starfaði sem blaðafulltrúi Downing-strætis og talsmaður forsætisráðuneytisins undir Blair. Síðustu tvo áratugi hefur Campbell starfað sjálfstætt sem pólitískur ráðgjafi en hefur á síðustu árum verið þekktastur fyrir að stýra hinu geysivinsæla hlaðvarpi The Rest Is Politics með Rory Stewart sem þeir stofnuðu saman árið 2022. Ástæðan fyrir veru Campbell á landinu tengist hlaðvarpinu en hann tók í morgun viðtal við Kristrúnu Frostadóttur sem birtist í næstu viku. Hótaði því að dýfa sér ofan í Tjörnina „Þetta er frábært, það er kalt, það rignir og það er enga hitabylgju að sjá. Og þarna er smá kalt vatn sem er hægt að dýfa sér ofan í, sennilega í fyrramálið. Þvílíkur léttir að vera fjarri hitanum. Þið þurfið að giska hvar ég er,“ sagði Alastair meðan hann gekk meðfram Tjörninni síðdegis í gær. „Alsæla! Engin hitabylgja. Rigning og kuldi,“ skrifaði hann við færsluna. View this post on Instagram A post shared by Alastair Campbell (@alastaircampbell) Campbell birti síðan annað myndband á Instagram-síðu sinni í morgun af kríum úti á Seltjarnarnesi. Í myndbandinu mátti heyra hann ræða við Íslending um kríurnar og neita því að fara út úr bílnum. „Einn af þessum dögum þar sem þögul kyrrðin er nauðsynleg innan um fjölmiðlafabrikkuna (e. media blah factory). Þetta færði mér það á leið minni í morgunsundið á Íslandi. Get ekki sagt ykkur hvað það er gott að vera kaldur og blautur!!!!!“ skrifaði Campbell við myndbandið. View this post on Instagram A post shared by Alastair Campbell (@alastaircampbell) Campbell birti loks myndaröð af sér með Kristrúnu í ráðherrabústaðnum, styttunni af óþekkta embættismanninum og loftmynd af Vesturbæjarlaug upp úr hádeginu í dag. „Meðan nýr forsætisráðherra tekur við embætti í Bretlandi með mínum bestu kveðjum er ég mjög glaður að vera á Íslandi með forsætisráðherra landsins, Kristrúnu Frostadóttur, fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður seinni hluta ágústmánaðar. Einn af snjöllustu núverandi leiðtogunum í dag, svo fylgist með leiðtogaviðtalinu í The Rest is Politics næsta mánudag,“ skrifaði Campbell við myndina. Viðtalsins má því vænta mánudaginn 27. júlí næstkomandi. View this post on Instagram A post shared by Alastair Campbell (@alastaircampbell) Þá nefndi Alastair hvað það hefði verið gaman að heyra að Kristrún hefði notað strategísk úrræði hans úr bókinni Winners: And How They Succeed þegar hún vann sigur í Alþingiskosningunum haustið 2024. Loks birti Campbell mynd af sér með Birni Malmquist, fréttamanni á Ríkisútvarpinu, sem skutlaði honum í sund í morgun og tók við hann viðtal fyrir kvöldfréttirnar. View this post on Instagram A post shared by Alastair Campbell (@alastaircampbell)
Fjölmiðlar Frægir á ferð Bretland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Sahara Ray látin Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira