Segir ótímabært að ræða undanþágur Agnar Már Másson skrifar 20. júlí 2026 18:52 Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, er í heimsókn á Íslandi. Vísir/Lýður Valberg Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Hann átti í dag fund með utanríkisráðherra Íslands, sem segir slíkar undanþágur ekki hafa borið á góma í samræðum þeirra.
Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakka, var í dag í opinberri heimsókn á Íslandi þar sem þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, undirrituðu viljayfirlýsingu um aukið samstarf ríkjanna í ýmsum málaflokkum. Á blaðamannafundi nefndi Barrot að Íslendingar hefðu engu að tapa við að ganga aftur til viðræðna við Evrópusambandið, en hann vildi engu svara um hugsanlegar undanþágur fyrir Ísland frá sjávarútvegsstefnu sambandsins, sem hefur verið eitt helsta deilumál í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar sem haldin verður 29. ágúst um aðildarviðræður við ESB. „Þetta er ekki spurningin í dag. Spurningin í dag – sú sem Íslendingar munu sem fullvalda þjóð taka ákvörðun um – snýst um það hvort hefja eigi viðræður. Þetta snýst ekki um aðild, ekki undanþágur, heldur snýst þetta um tækifæri.“ Þorgerður Katrín segir að hugsanlegar undanþágur hafi ekki borið á góma á fundi sínum með Barrot í morgun. „Nei, við ræddum ekki undanþágur eða neitt slíkt, en hann dró mjög vel fram á þessum blaðamannafundi að þetta snýst fyrst og fremst um viðræður.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.Vísir/Lýður Valberg Samkvæmt könnun sem Maskína gerði fyrir DV í júní eru fleiri eru hlynntir en andvígir því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið. 44,5 prósent svarenda sögðust vera hlynntir viðræðum en 39,4 prósent andvígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 prósent veit ekki og 1,5 prósent vildu ekki svara. Ef einungis er horft til þeirra sem tóku afstöðu sögðust 53,1 prósent vera jákvæðir en 46,9 prósent andvígir. Spurður hvort það kæmi sér á óvart hversu mikil andstaða væri á Íslandi gegn því að hefja aðildarviðræður að nýju svaraði Barrot að eðlilegt væri að fólk hefði skiptar skoðanir. „En það sem ég get sagt er: Að hvert sinn sem Íslendingar hafa tekið ákvörðun um alþjóðasamvinnu, svo sem að gerast stofnaðili NATO eða að ganga í Evrópska efnahagssvæðið, hefur það að miklu leyti hagnast íslensku þjóðinni.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Frakkland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira