Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Samúel Karl Ólason skrifar 22. júlí 2026 08:49 Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, deildi mjög við þingmenn á fundi í gær en hann sagði þá að stríðið gegn Íran hefði kostað Bandaríkin um það bil 37,5 milljarða dala og ráðuneytið þyrfti tuga milljarða dala aukafjárveitingu. AP/Jacquelyn Martin Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom.
37,5 milljarðar dala samsvara um 4,7 billjónum króna og 95 milljarðar tæplega tólf billjónum. Landsframleiðsla Íslands árið 2025 var tæpar fimm billjónir króna. Hegseth og Hvíta húsið höfðu áður farið fram á að þingið verji 1,5 billjón dala til varnarmála á næsta ári, 2027, en það samsvarar tæplega tvö hundruð billjónum króna (200.000.000.000.000). Sjá einnig: Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Á fundinum í gær sagði Hegseth að herafli Bandaríkjanna þyrfti nauðsynlega þessa peninga og 95 milljarða dala aukafjárveitinguna. Annars stæði heraflinn frammi fyrir skorti á mikilvægum hergögnum og öðrum sviðum. Sjá einnig: Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Um tíu milljarðar af aukafjárveitingunni eiga að fara í aðstoðarpakka handa bændum og um tíu eiga að fara í breytingar á lögum um kosningar í Bandaríkjunum. 67 milljarðar eiga að fara til hersins. New York Times segir að um 46 milljarðar eigi að fara í framleiðslu hergagna eins og nákvæmra sprengja, ofurhljóðfrárra eldflauga og í kerfi til að verjast sjálfsprengidrónum. Reifst við þingmenn Hegseth gaf síðast upp hvað stríðið gegn Íran hefði kostað í apríl og var upphæðin þá um 25 milljarðar dala. Það var skömmu áður en Donald Trump, forseti, samdi við klerkastjórnina í Íran um vopnahlé en stríðið virðist nú komið á fullt skrið á nýjan leik. Árásir á báða bóga hafa nú staðið yfir nánast linnulaust í tæpar tvær vikur, þrátt fyrir að bæði Trump og Hegseth hafi ítrekað frá því átökin hófust fyrir um fimm mánuðum síðan lýst því yfir að Bandaríkjamenn hefðu í raun gersigrað Íran og að samkomulag væri nærri. Bæði Demókratar og Repúblikanar lýstu yfir efasemdum um aukafjárveitinguna á fundinum í gær. Gary Peters gagnrýndi Hegseth harðlega.AP/Jacquelyn Martin Patty Murray, æðsti þingmaður Demókrata í fjármálanefndinni, sagði að henni virtist ríkisstjórn Trumps reyna að komast hjá hefðbundnu fjárlagaferli með því að fara fram á þessa peninga með neyðarbeiðni. Hegseth kenndi ríkisstjórn Joes Biden um ástandið. Öldungadeildarþingmaðurinn Jon Ossoff gagnrýndi Hegseth einnig harðlega og spurði hann ítrekað út í fjölmargar yfirlýsingar ráðherrans um sigur í Íran. Vísaði hann meðal annars til ummæla Hegseths frá því þegar um tvær vikur voru liðnar af stríðinu um að herafli Íran hefði verið svo gott sem þurrkaður út. Gary Peters, sem er einnig Demókrati, gagnrýndi Hegseth harðlega og sagði að hvorki hann né Trump hefðu hugmynd um hvernig þeir ætluðu að binda enda á stríðið gegn Íran. Hegseth varð reiður og sakaði Peters um að gagnrýna almenna hermenn og að þjást af því sem Trump-liðar kalla „Trump derangement syndrome“. Peters: You, sir, are the failure… Hegseth: You have Trump Derangement Syndrome. pic.twitter.com/s1AvsYRR8g— Acyn (@Acyn) July 21, 2026 Repúblikaninn John Kennedy var einnig gagnrýninn á stríðið gegn Íran og gagnrýndi bæði Hegseth og herforingjann John Caine, formann herforingjaráðs Bandaríkjanna, fyrir að veita þingmönnum ekki skýr svör. GOP Sen. Kennedy cuts off Hegseth as he rambles and says, "Guys, we need straight answers! We need straight answers" pic.twitter.com/LfmJqV8eER— Aaron Rupar (@atrupar) July 21, 2026 Flestir Bandaríkjamenn eru verulega á móti því hvernig Trump hefur haldið á spöðunum hvað varðar stríðið gegn Íran, samkvæmt könnunum. Ný könnun sýnir að um 65 prósent Bandaríkjamanna segja Trump hafa staðið sig illa. Áhugasamir geta horft á allan fundinn í gær, sem stóð yfir í meira en þrjá tíma, í spilaranum hér að neðan.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira