Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Samúel Karl Ólason skrifar 22. júlí 2026 14:46 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótar árásum á borgaralega innviði í Íran. Slíkar árásir gætu verið stríðsglæpir. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump segir að í hvert sinn sem Íranir ráðist á skip á Hormússundi, hvort sem það er með dróna, eldflaug eða öðrum hætti, muni Bandaríkin svara með eigin árásum. Þær verði gerðar á brýr eða orkuver. Einni brú eða orkuveri verði rústað fyrir hverja árás Írana.
Ekkert lát er á árásum Bandaríkjanna í Íran né á árásum Írana á nágrannaríki sín, bæði herstöðvar Bandaríkjanna þar og borgaralega innviði eins og vatnshreinsistöðvar og orkuver. Alþjóðasamþykktir meina slíkar árásir, nema umræddir innviðir séu notaðir í hernaðarlegum tilgangi. Bandaríkjamenn gerðu umfangsmiklar árásir á Íran í nótt og þar á meðal á skotmörk nærri Tehran. Íranir skutu eldflaugum að skotmörkum í Jórdaníu og þá voru einnig gefnar út viðvaranir við árásum í Bahrain og Sádi-Arabíu, samkvæmt AP fréttaveitunni. Í færslu á Truth Social segir Trump að brýr og orkuver nærri Tehran verði ekki undanskilin þessum hefndarárásum sem hann talar um. Færsla Trumps á Truth Social. Frá því stríð Bandaríkjanna og Íran fór aftur á skrið fyrir um tveimur vikum hefur ekkert gengið að hefja viðræður á nýjan leik. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf til kynna í dag að viðræður væru ekki líklegar á næstunni og sagði hann að klerkastjórnin í Íran hefði ekki áhuga á viðræðum af nokkurri alvöru. Rubio sagði að árásirnar myndu halda áfram á meðan Íranir gerðu árásir á skip á Hormússundi. Bandaríkjamenn myndu heldur ekki sætta sig við áframhaldandi árásir á hermenn. Átján bandarískir hermenn hafa fallið vegna árása Írana. Dýrt og óvinsælt stríð Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom. Flestir Bandaríkjamenn eru verulega á móti því hvernig Trump hefur haldið á spöðunum hvað varðar stríðið gegn Íran, samkvæmt könnunum. Ný könnun sýnir að um 65 prósent Bandaríkjamanna segja Trump hafa staðið sig illa. Trump sjálfur sagði í samtali við blaðamenn í dag að Bandaríkjamenn væru ekki mótfallnir stríðinu, sem er rangt. Þeir vildu ekki hátt eldsneytisverð, sem er að stórum hluta afleiðing stríðsins, en þeir væru ekki mótfallnir stríðinu sjálfu. Trump:Americans aren't against the war. Americans don't want high gasoline prices, but they're not against the war. pic.twitter.com/yjkqUzNNov— Clash Report (@clashreport) July 22, 2026 Olíuverð hefur hækkað töluvert á undanförnum tveimur vikum og hélt sú hækkun áfram í dag. Hútar í Jemen hafa lýst því yfir að þeir muni gera árásir á olíuflutningaskip Sádi-Arabíu á Rauðahafi, sem hefur ýtt enn frekar undir óvissuna. Verulega hefur dregið úr olíuflutningi frá bæði Hormússundi og Rauðahafi á undanförnum dögum. Olíuverð á Brent-olíu, fór upp fyrir 93 dali á tunnu i dag. Það verð hefur samkvæmt New York Times hækkað um rúma tíu dali á einni viku. Heilt yfir hefur það hækkað um sirka þriðjung frá því stríðið hófst.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Bensín og olía Tengdar fréttir Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Bandaríkjastjórn mun greina frá því í dag að hún hafi komist að samkomulagi við stjórnvöld í Sádi Arabíu um samvinnu á sviði kjarnorkumála. Það er sagt geta leitt til úranauðgunar í Sádi Arabíu. 22. júlí 2026 07:51 Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur. 22. júlí 2026 06:56 Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið. 21. júlí 2026 08:25 Skoða að auka umfang árása enn frekar Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina. 20. júlí 2026 14:38 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira
Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Bandaríkjastjórn mun greina frá því í dag að hún hafi komist að samkomulagi við stjórnvöld í Sádi Arabíu um samvinnu á sviði kjarnorkumála. Það er sagt geta leitt til úranauðgunar í Sádi Arabíu. 22. júlí 2026 07:51
Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur. 22. júlí 2026 06:56
Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið. 21. júlí 2026 08:25
Skoða að auka umfang árása enn frekar Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina. 20. júlí 2026 14:38