Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Samúel Karl Ólason skrifar 11. ágúst 2026 18:16 Donald Trump og systkinin Robert Gilman og Lexie Hudson. AP Yfirvöld í Rússlandi hafa sleppt bandarískum uppgjafarhermanni úr fangelsi. Robert Gilman hafði setið inni í meira en fjögur ár á grunni umdeildra ákæra og við slæmar aðstæður. Donald Trump segir Vladimír Pútín hafa samþykkt að sleppa honum í mannúðarskyni en Gilman er sagður vera mjög heilsulítill.
Trump segir Pútín ekki hafa beðið um neitt í staðinn. Engum Rússa hafi verið sleppt úr haldi í Bandaríkjunum eða annars staðar, eins og áður hefur þurft að gera til að fá Bandaríkjamenn og aðra úr haldi í Rússlandi á undanförnum árum. Bandaríkjamenn hafa reglulega verið handteknir í Rússlandi og dæmdir í fangelsi á veikum grunni. Þeir hafa svo ítrekað verið notaðir til að skipta fyrir Rússa og rússneska njósnara í haldi á Vesturlöndum. Sjá einnig: Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Gilman og móðir hans, sem var að reyna að heimsækja hann á sjúkrahúsi í Rússlandi, eru nú sögð á leið til Bandaríkjanna og eiga að lenda þar í kvöld. Þá stendur til að flytja Gilman til aðhlynningar. Færsla Trumps um Gilman á Truth Social. Trump segist hafa rætt við Gilman í dag og að sá síðarnefndi hafi beðið um að fá bandarískan ostborgara við lendinguna. Því segist Trump ætla að redda. Dómurinn ítrekað lengdur Gilmann er 32 ára gamall kennari en starfaði á árum áður sem landgönguliði. Hann var handtekinn í Rússlandi árið 2022 og dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að ráðast á lögregluþjón eftir að hann var fjarlægður úr lest. Samkvæmt AP fréttaveitunni var hann svo aftur dæmdur fyrir að ráðast á starfsmenn fangelsisins árið 2024 og dómur hans þyngdur. Í fyrra var dómurinn svo þyngdur enn eina ferðina og hann dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir að ráðast á fangaverði. Fjölskylda Gilmans hefur ætíð þrætt fyrir ákærurnar gegn honum og sagt þær rangar. Það hafa yfirvöld í Bandaríkjunum einnig gert. Foreldrar Gilmans fluttust frá Rússlandi til Bandaríkjanna á árum áður. Árið 2022 ferðaðist Gilman til Moldóvu í leit að vinnu við kennslu, sem gekk ekki eftir, samkvæmt föður hans. Gilman mun hafa orðið veikur á ferð um Rússland og var hann færður úr lest og fluttur á lögreglustöð þegar hann veiktist. Faðir hans segir að þar hafi hann óvart sparkað í lögregluþjón. Við eðlilegar kringumstæður myndi hann vera dæmdur til að greiða sekt, ef eitthvað, og segir faðir Gilmans að eina ástæða þess að hann hafi verið dæmdur í fangelsi hafi verið sú að hann sé Bandaríkjamaður. Lexie Hudson, systir Gilmans, segir í samtali við AP að Trump og Ed Markey, öldungadeildarþingmaður, eigi heiðurinn að því að bróður hennar hafi verið sleppt úr fangelsi. Hún segir einu ástæðuna fyrir því að Gilman sé ekki dáinn vera að Trump hafi talað máli hans. „Rússarnir komu svo illa fram við bróður minn. Þeir meiddu hann af engri annarri ástæðu en þeirri að hann er bandarískur og var landgönguliði. Hvað græddu þeir á þessu? Af hverju komu þeir svona fram við þessa yndislegu manneskju?“ Fleiri í fangelsi í Rússlandi Fleiri Bandaríkjamenn sitja í fangelsi í Rússlandi, eins og Stephen Hubbard. Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segir að Trump muni ekki hvílast fyrr en allir ranglega fangelsaðir Bandaríkjamenn verði komnir aftur heim. Í samtali við rússnesku fréttaveituna Interfax sagði lögmaður Gilmans að hann hefði verið fluttur á sjúkrahús snemma í síðasta mánuði. Hvorki lögmenn hans né fjölskyldumeðlimir fengu að heimsækja hann. AP hefur svo eftir Eric Lebson, einum af stjórnendum samtakanna Global Reach, sem unnið höfðu að því að frelsa Gilman, að Gilman hafi verið í lífshættu á sjúkrahúsi vegna misþyrminga sem hann varð fyrir í fangelsinu í Rússlandi. Markey, áðurnefndur þingmaður, segir einnig að Gilman hafi verið pyntaður í fangelsi. Hann hafi verið barinn og lyf hafi verið þvinguð ofan í hann. „Það er enginn vafi á því að misþyrmingar hans af höndum yfirvalda í Rússlandi eru ástæðan fyrir ástandi hans í dag,“ sagði Markey.
Bandaríkin Rússland Donald Trump Vladimír Pútín Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira