Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Kolbeinn Tumi Daðason og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 2. september 2026 07:01 Bíllinn kom akandi úr Hafnarfirði og var í aflíðandi beygjunni á Krýsuvíkurvegi þegar slysið varð. Bíllinn á myndinni er að beygja af Leiðarendavegi inn á Krýsuvíkurveg. Vísir/Anton Brink Bíllinn sem þrjú ungmenni voru í þegar hann hafnaði utan vegar á Krýsuvíkurvegi með þeim afleiðingum að öll þrjú létust var á yfir tvö hundruð kílómetra hraða þegar slysið varð. Eldur kviknaði í bílnum þar sem hann lenti í hrauninu. Þrír bílar til viðbótar voru á vettvangi þegar slysið varð, en eitt ungmennanna var erlendur ríkisborgari.
Lögreglu barst tilkynning um slysið eftir miðnætti aðfaranótt mánudags. Bíll hafnaði utan vegar og á hraunkletti við veginn rétt sunnan við gatnamót Krýsuvíkurvegar og Leiðarendavegar. Tvær stúlkur og ungur karlmaður létust í slysinu. Ungi maðurinn var fæddur árið 2005 en stúlkurnar árin 2007 og 2009. Minningarstundir um manninn og yngri stelpuna fara fram í Háteigskirkju og Lágafellskirkju í dag. Stúlkan, sem er fædd árið 2007, er samkvæmt upplýsingum fréttastofu erlendur ríkisborgari. Frá slysstað við Krýsuvíkurveg.Vísir/Viktor Freyr Lögregla hefur meðal annars til skoðunar hvort um hraðaakstur hafi verið að ræða í aðdraganda þess að bíllinn fór út af veginum. Samkvæmt heimildum fréttastofu benda gögn sem lögregla hefur undir höndum og hafa verið í dreifingu meðal almennings til þess að bíllinn hafi verið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða augnablikum áður en hann lenti á klettinum. Bíllinn varð alelda eftir áreksturinn. Fram hefur komið að rannsókn á tildrögum slyssins sé skammt á veg komin. Lögregla hefur rætt við nokkurn fjölda vitna sem voru á svæðinu um nóttina. Samkvæmt heimildum Vísis voru þrír bílar með ungmennum á ferðinni til viðbótar við þann sem hafnaði utan vegar. Lögregla hefur ekki viljað gefa upp fjölda vitna. Íslenska stúlkan sem lést hét Arndís Halla Guðlaugsdóttir en hún var sextán ára. Minningarstund fyrir hana fer fram í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ og hefst klukkan hálf sex. Ungi maðurinn sem lést hét Benjamín Guðmundsson og var á 21. aldursári. Þriðja stúlkan, fædd árið 2007, var erlendur ríkisborgari í námi hér á landi. Sautján ára piltur lést í banaslysi á Miklubraut í Reykjavík í febrúar. Hann var farþegi í bíl sem hafnaði á stólpa hæðarrár við götuna. Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglu og er einn með stöðu sakbornings í málinu. Hraðakstur er meðal þess sem lögregla hefur haft til skoðunar í því máli.
Lögreglumál Umferðaröryggi Hafnarfjörður Samgönguslys Þrír létust í banaslysi á Krýsuvíkurvegi Tengdar fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Minningarstund verður haldin í Lágafellskirkju vegna andláts Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur. Einnig verður minningarstund um Benjamín Guðmundsson í Háteigskirkju. Þau létust bæði í umferðarslysi á Krísuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. 1. september 2026 16:05 Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við vitni vegna banaslyssins á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létust. Önnur stúlkan var nemandi í Menntaskólanum við Sund og í gærkvöldi fór fram kyrrðarstund í Langholtskirkju fyrir nemendur. 1. september 2026 11:32 „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Halla Tómasdóttir forseti vottar aðstandendum ungmennanna sem létust í umferðarslysi við Krýsuvíkurveg í nótt samúð sína. Guðrún Karls Helgudóttir biskup biður fyrir þeim sem eiga um sárt að binda. 31. ágúst 2026 23:31 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira
Minningarstundir vegna andlátanna Minningarstund verður haldin í Lágafellskirkju vegna andláts Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur. Einnig verður minningarstund um Benjamín Guðmundsson í Háteigskirkju. Þau létust bæði í umferðarslysi á Krísuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. 1. september 2026 16:05
Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við vitni vegna banaslyssins á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létust. Önnur stúlkan var nemandi í Menntaskólanum við Sund og í gærkvöldi fór fram kyrrðarstund í Langholtskirkju fyrir nemendur. 1. september 2026 11:32
„Engin orð ná utan um slíkan missi“ Halla Tómasdóttir forseti vottar aðstandendum ungmennanna sem létust í umferðarslysi við Krýsuvíkurveg í nótt samúð sína. Guðrún Karls Helgudóttir biskup biður fyrir þeim sem eiga um sárt að binda. 31. ágúst 2026 23:31