Erlent

Selenskí kíkti á klakann

Samúel Karl Ólason skrifar
Vólódímír Selenskí og Þorgerður Katrín á Keflavíkurflugvelli í dag.
Vólódímír Selenskí og Þorgerður Katrín á Keflavíkurflugvelli í dag. Forsetaembætti Úkraínu

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kom til Íslands í dag. Hann lenti á Keflavíkurflugvelli þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, tók á móti honum og fundaði með honum og teymi hans.

„Við áttum upplýsandi og einlægt samtal um stöðu mála og ég undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu gegn landvinningastríði Rússlands,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

„Við hlustum á óskir Úkraínu um stuðning og íslensk stjórnvöld munu halda ótrauð áfram að veita þeim nauðsynlegan varnar-, efnahags – og mannúðarstuðning, einkum sem lýtur að loftvörnum og á sviði orkumála enda horfir úkraínska þjóðin því miður fram á harðan vetur.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tekur á móti Volodómír Selenskí Úkraínuforseta við komuna til landsins.Forsetaskrifstofa Úkraínu

Í tilkynningunni segir einnig að Denys Shmyhal, orkumálaráðherra Úkraínu, og Rustem Umerov, yfirmaður Leyniþjónustu Úkraínu, hafi einnig verið á fundinum. Hann sótti einnig Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi.

Sjá einnig: Spjallað í Reykja­vík á meðan drónarnir dynja á Kænu­garði

Selenskí og teymi hans voru í Noregi þar sem forsetinn sótti jarðarför Haralds Noregskonungs.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×