Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Lovísa Arnardóttir skrifar 16. september 2026 06:47 Ljósastýringin hefur uppfærð á Hringbraut allt frá Framnesvegi að Birkimel. Vísir/Vilhelm Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavík segir tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar. Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa síðustu vikur innleitt nýtt ljósastýringakerfi, rauntímastýringu umferðarljósa, á Hringbraut.
Fréttastofa hefur fengið ábendingar um lengri biðtíma við gönguljós á Hringbraut og umferðartafir í kjölfar breytinga. Samkvæmt svari Reykjavíkurborgar er búið að innleiða nýja rauntímastýringu fyrir öll umferðarljósin milli Framnesvegar og Birkimels að báðum gatnamótum meðtöldum. Hin nýja rauntímastýring (e. adaptive traffic control) kallast Fusion og er frá framleiðandandum Yunex Traffic og á að virka þannig að umferðarljósunum á öllum Hringbrautarkaflanum er stýrt út frá raunumferðarflæði hverju sinni, í stað þess að kerfið treysti á fyrir fram skilgreindar tímasetningar. „Kerfið notar upplýsingar frá skynjurum til að meta stöðuna á hverjum tíma og stillir græntíma, lotulengdir og samstillingu ljósa þannig að umferð flæði sem best fyrir alla vegfarendur, þar á meðal gangandi, hjólandi, almenningssamgöngur og bíla,“ segir Bjarni Rúnar Ingvarsson, deildarstjóri samgangna, í svarinu. Þannig sé markmið kerfisins að halda biðtíma í lágmarki, stytta ferðatíma og bæta nýtingu á innviðum með sveigjanlegri og markvissari stýringu. Kerfið geti jafnframt verið stillt þannig að það styðji ákveðna stefnumörkun, til dæmis að gefa strætisvögnum eða virkum ferðamátum aukinn forgang á tilteknum svæðum. Bjarni Rúnar segir undirbúning að innleiðingu hafa hafist vorið 2026 og meðan á henni stendur þurfi að samstilla einstök gatnamót, tengja búnað, prófa stýringar og fínstilla reiknilíkönin. Á því tímabili geti því borið á tímabundnum töfum eða því að ljósin hegði sér ekki eins og vegfarendur eiga að venjast. „Því má ætla að tafirnar sem hafa komið fram við Hringbraut tengist ekki bilun í hefðbundnum skilningi heldur því að verið er að taka í notkun nýtt stýrikerfi sem þarf ákveðinn aðlögunartíma áður en það nær fullum árangri. Aðallega er um að ræða aukinn meðalbiðtíma fyrir gangandi vegfarendur, en enn þá er verið að vinna við að stilla kerfið til að reyna að minnka þann biðtíma,“ segir að lokum í svarinu. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur tekist að stytta biðtíma frá því kerfið var fyrst innleitt undir 30 sekúndur í þessari viku.
Reykjavík Umferð Umferðaröryggi Hjólreiðar Börn og uppeldi Tengdar fréttir Unnið að uppfærslu umferðarljósa Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. 14. september 2026 17:41 Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Ljósastýring á höfuðborgarsvæðinu er ekki fullnýtt þrátt fyrir að flest umferðarljós séu tengd miðlægu kerfi. Nýr meirihluti vill flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa á fyrsta ári sínu. 27. júní 2026 07:33 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Unnið að uppfærslu umferðarljósa Á næstu dögum verður unnið að uppfærslu á umferðarljósastýringu á gatnamótum Miklubrautar og Klambratúns annars vegar og Miklubraut og Stakkahlíðar hins vegar. Slökkt verður á ljósunum hluta miðvikudagsins og fimmtudagsins næstkomandi. 14. september 2026 17:41
Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Ljósastýring á höfuðborgarsvæðinu er ekki fullnýtt þrátt fyrir að flest umferðarljós séu tengd miðlægu kerfi. Nýr meirihluti vill flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa á fyrsta ári sínu. 27. júní 2026 07:33