Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. september 2026 11:59 Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. vísir/lýður valberg Mikið áhyggjumál er að börn allt niður í ellefu ára bruni um á allt að hundrað kílómetra hraða um götur og holt og hæðir víða á höfuðborgarsvæðinu að mati lögreglunnar. Börnum á rafmagnskrossurum bregður oftar fyrir en áður sem sé foreldravandamál að mati aðstoðaryfirlögregluþjóns umferðardeildar.
Lögreglu barst tilkynning um glæfralegan akstur bifhjóls í Mosfellsbæ í gær. Ungur ökumaður ók þar um á rafmagnskrossara án skráningarnúmers. Lögreglan greip inn í þar sem ökumanninum var ekki leyfilegt að aka á akbraut og foreldrar piltsins komu að sækja hann. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en þetta er langt frá því að vera fyrsta atvikið sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnir vegna barns á rafmagnskrossara. Einfalt mál að eiga við hjólin Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir það hafa aukist verulega undanfarið að börn allt niður í ellefu ára bruni um á rafmagnskrossurum. „Þetta er klárlega vandamál og við höfum orðið var við þetta. Við erum að fá mikið af ábendingum hérna á Reykjavíkursvæðinu um akstur þessara, já, barna vil ég meina. Þessi hjól eru þannig að þau eru seld í dag, þú mátt vera á 25 kílómetra hraða á þeim. Þá mega þau vera á göngustígum og á gangstéttum en þau eru framleidd til að ná allt að 100 kílómetra hraða. Þessi hópur sem er á þessum hjólum, hefur hvorki getu né reynslu að vera á þessum hraða.“ Hann segir um mikið áhyggjuefni að ræða fyrir lögregluna. Einfalt mál sé fyrir börnin að breyta hjólunum þannig að þau nái ofsahraða. „Við horfum á þetta sem foreldravandamál. Ábyrgð foreldra er náttúrulega gríðarleg í þessu tilfelli að kaupa tæki sem komast á allt að hundrað kílómetra hraða. Okkur skilst að það sé jafnvel hægt að breyta þessu bara í símanum í appi.“ Fjöldi hjóla í umferð hlaupi á hundruðum Brýnt sé að grípa inn í þróunina áður en það verður um seinan. „Vandamálið er að regluverkið sem við vinnum eftir nær illa utan um þetta. Krökkum, sem sagt undir 15 ára aldri, er ekki gerð refsing. Það er til skoðunar hvað er hægt að gera í þessum málum. Við erum búin að vekja athygli á þessu bæði til Samgöngustofu og innviðaráðuneytisins. Þannig að ég vona að okkur beri gæfa til að finna eitthvað út úr þessum málum áður en eitthvað alvarlegt gerist.“ Að hans mati sé um sameiginlegt verkefni skóla, sveitarfélaga, foreldra og yfirvalda. „Það eru einhver hundruð hjóla sem falla undir þennan flokk og við höfum verið að fá tilkynningar bæði í Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og í Reykjavík. Þetta veldur okkur verulegum áhyggjum,“ segir hann og heldur áfram: „Það sem ég vil koma á framfæri er eiginlega að foreldrar setjist niður með krökkunum og ræði þetta, því það er stór ábyrgðarhluti hjá foreldrum að láta ungmenni vera á þessum hjólum á göngustígum, bæði gangandi vegfarendur og önnur börn. Þetta getur leitt til alvarlegra slysa.“
Lögreglumál Umferðaröryggi Garðabær Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira