Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Árni Sæberg skrifar 21. september 2026 14:28 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra í ræðustól Alþingis. Vísir/Anton Brink Fjármála- og efnahagsráðherra segir boðað verkfall flugvirkja myndu hafa mikil áhrif á ferðaþjónustuna, fjölda annarra atvinnugreina og ferðafrelsi þjóðarinnar. Ríkisstjórnin fylgist vel með stöðunni og muni grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma.
Þetta er meðal þess sem kom fram í svari Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur, þingmanns og formanns Sjálfstæðisflokksins, á þingfundi dagsins. Hafi áhrif á þegar tæpan fjárhag ríkisins Guðrún sagði að á sama tíma og boðaðar væru auknar álögur á ferðaþjónustuna, atvinnugrein sem skilaði gríðarlegum verðmætum og skatttekjum í ríkissjóð, vofði yfir ótímabundið verkfall flugvirkja hjá Icelandair frá og með næsta miðvikudegi. „Samtök ferðaþjónustunnar segja áhrifin þegar farin að koma fram, fyrirtæki um allt land hafa fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um niðurfellingu og frestun ferða. Hér er undir ein stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar, tekjur þúsunda fyrirtækja og þar með auðvitað tekjur ríkissjóðs, sem stendur nú þegar tæpur. Því vil ég spyrja hæstvirtan fjármála- og efnahagsráðherra: Hvernig blasir þessi staða við ríkisstjórninni frá sjónarhóli ríkisfjármálanna? Hvaða sviðsmyndir hefur ráðuneytið dregið upp um áhrif verkfallsins á tekjur ríkissjóðs og afkomu næsta árs?“ spurði Guðrún. Bindur vonir við að samningar náist Daði Már sagði vissulega rétt hjá Guðrúnu að verkfall flugvirkja myndi hafa veruleg áhrif, ekki bara ferðaþjónustuna heldur fjölda atvinnugreina og einnig ferðafrelsi íslensku þjóðarinnar. Fylgjast þyrfti mjög nákvæmlega með hvernig því vindur fram. Aðilar væru enn þá við samningaborðið og það væri þeirra að takast á við það verkefni að finna hljómgrunn og ná niðurstöðu. „Ég bind enn þá vonir við að það takist. Það er hins vegar alveg rétt að þarna er um þjóðhagslega mikilvæga lífæð Íslands að ræða, ekki bara hvað varðar ferðaþjónustu heldur öll okkar tengsl við umheiminn sem og verulegan hluta af flutningum á til dæmis ferskum fiski þannig að með þessari stöðu fylgist ríkisstjórnin nákvæmlega og grípur til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma.“
Flug Stéttarfélög Atvinnurekendur Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Tengdar fréttir Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Þreifingar voru í gær milli samninganefnda flugvirkja og Icelandair um að þoka kjaraviðræðum áfram. Framhaldið hefur ekki verið ákveðið en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september. 21. september 2026 13:03 „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Ásdís Eir Guðmundsdóttir, lögfræðingur Félags atvinnurekenda (FA), segir stjórnvöld verða að skoða hvernig sé hægt að tryggja meiri sanngirni þegar ákveðnar stéttir geti með verkfallsréttinum valdið svo miklum samfélagslegum skaða. Hún segir það ekki samrýmast grundvallarsjónarmiðum samningsréttar að ferðaþjónustuaðilar, sem eigi enda aðild að kjarasamningum flugstétta, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum flugvirkja. 19. september 2026 13:32 Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir þungum áhyggjum af áhrifum boðaðs verkfalls á flugvirkja. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi þegar fengið fjölda afbókana vegna verkfallsins. 19. september 2026 12:25 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira
Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Þreifingar voru í gær milli samninganefnda flugvirkja og Icelandair um að þoka kjaraviðræðum áfram. Framhaldið hefur ekki verið ákveðið en ótímabundið verkfall á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september. 21. september 2026 13:03
„Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Ásdís Eir Guðmundsdóttir, lögfræðingur Félags atvinnurekenda (FA), segir stjórnvöld verða að skoða hvernig sé hægt að tryggja meiri sanngirni þegar ákveðnar stéttir geti með verkfallsréttinum valdið svo miklum samfélagslegum skaða. Hún segir það ekki samrýmast grundvallarsjónarmiðum samningsréttar að ferðaþjónustuaðilar, sem eigi enda aðild að kjarasamningum flugstétta, beri einir óskipta fjárhagslega áhættu af vinnudeilum flugvirkja. 19. september 2026 13:32
Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir þungum áhyggjum af áhrifum boðaðs verkfalls á flugvirkja. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi þegar fengið fjölda afbókana vegna verkfallsins. 19. september 2026 12:25