Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Agnar Már Másson skrifar 3. október 2026 17:52 Þotu sem notuð er í leitina hefur verið flogið í kringum það svæði þar sem staðsetningamerki sjúkraflugvélarinnar datt út. FlightRadar Bandaríska strandgæslan leitar nú að sjúkraflugvél sem týndist á flugi milli Bermúda og Boston í dag. Sex voru um borð í flugvélinni, að sögn yfirvalda.
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan sex að íslenskum tíma en um er að ræða þotu af tegundinni Gulfstream G100. Leit hefur staðið yfir við strendur Nantucket og stóð enn yfir klukkan 15.45 að því er New York Times hefur eftir strandgæslunni. Gæslan hafi ræst út flugvélar, þyrlu og tvo báta frá Þorskhöfða í Massachusetts. Týnda vélin er á vegum kanadíska sjúkraflugfélagsins Latitude Air Ambulance, að því er Clarence Togeretz, talsmaður fyrirtækisins, segir við fjölmiðilinn. Vélin tók á loft frá flugvellinum á Bermuda um klukkan 2.41 í nótt að íslenskum tíma samkvæmt flugkorti. Svo virðist sem vélin hafi flogið í 24 þúsund feta hæð áður en flugið lækkaði um nokkur þúsund fet um klukkan 4.05 að íslenskum tíma. Sérfræðingar telja lækkunina óvenjulega. „Ég myndi segja að þetta sé til marks um verulegt vandamál,“ er haft eftir Brad Wheeler, sem starfaði sem flugmaður í 40 ár, í umfjöllun Times. „Það er ljóst að eitthvað hafi farið úrskeiðis vegna þess að þeir breyttu hraðanum rétt áður en þeir lækkuðu,“ segir Mary Chiavo, lögmaður sem sérhæfir sig í flugmálum og fyrrverandi ráðamaður hjá samgöngustofu Bandaríkjanna. „Þeir voru að bregðast við einhverju.“ Flugvélin var á ferð nokkuð norður af Bermúdaþríhyrningnum svokallaða, sem er margumtalað svæði á Atlantshafi þar sem flugvélar og skip eru sögð hafa horfið áður. Um 65 þúsund manns búa á Bermúda, sem er sjálfstjórnarsvæði sem heyrir undir bresku krúnuna. Vélin hefur á síðustu vikum farið fjölda ferða, þar á meðal eina á milli Bermúda og Boston hinn 24. september, en um er að ræða um 1.255 kílómetra leið. Vélin var framleidd í Ísrael árið 1996 og samkvæmt opinberum skjölum virðist hún áður hafa verið nýtt sem einkaþota áður en hún gar tekin í gagnið sem sjúkraflugvél.
Samgönguslys Flug Bandaríkin Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira