Henderson í stuði í stórsigri Valur Páll Eiríksson skrifar 10. október 2026 15:55 Henderson og Pedro með tvö hvor í dag. Getty Chelsea vann öruggan 5-1 sigur á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Aðeins þrjár mínútur voru liðnar á leikinn þegar Chelsea var komið 2-0 yfir þar sem nýi gamli maðurinn í liði þeirra bláklæddi, Jordan Henderson, hafði skorað fyrst og lagt svo upp fyrir Morgan Rogers. 2-0 eftir þrjár mínútur og þannig stóð í hálfleik. Aftur byrjuðu bláklæddir af krafti eftir hlé og í það sinn tók minna en mínútu fyrir þá að skora og Joao Pedro gerði sitt fjórða mark í deildinni til að breyta stöðunni í 3-0. Evanilson svaraði með marki fyrir Bournemouth á 51. mínútu en Pedro og Henderson voru ekki hættir. Þeir skoruðu eitt markið hvor um miðjan síðari hálfleikinn og skoruðu því báðir tvö mörk í dag. Chelsea vann 5-1 og er með tíu stig eftir sex leiki í fimmta sæti. Bournemouth er með þrjú stig í átjánda sæti og leitar enn fyrsta sigursins. Fótbolti Enski boltinn Chelsea FC AFC Bournemouth