Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. október 2026 12:21 Vilborg Ása telur samkomulagið fela í sér mikil tíðindi. Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um samkomulagið við Rússa á samfélagsmiðli sínum Truth Social í gærkvöldi. Samkomulagið felur meðal annars í sér að Rússar geti flutt út þrjú hundruð þúsund tonn af díselolíu á alþjóðamarkaði þegar í stað, fimm hundruð þúsund lítra í nóvember og aftur milljón tonn af olíu í desember. Fullyrti Bandaríkjaforseti að eldsneytisverð á heimsvísu myndi með þessu lækka en stutt er í þingkosningar í Bandaríkjunum þar sem útlit hefur verið fyrir að Repúblikanar missi meirihluta sinn í báðum deildum þingsins. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir samkomulagið fela í sér mikil tíðindi. „Þetta er ákveðið áfall fyrir Evrópu. Þarna er bara beinlínis verið að grafa undan refsiaðgerðum Evrópu og Bandaríkin voru hluti af því. En núna fara þau svona á móti, móti hagsmunum Evrópu og Úkraínu.“ Ljóst sé að markmið Bandaríkjaforseta sé að hafa áhrif á eldsneytisverð og verðbólgu í Bandaríkjunum fyrir miðannakosningar í nóvember. Sérfræðingar telji hinsvegar að aðgerðirnar muni ekki skipta eins miklu í efnahagslegu tilliti líkt og Bandaríkjaforseti bindi vonir við. „Þetta er einfaldlega enn eitt dæmið um það að Evrópulönd standa ein með Úkraínu, að það er ekki hægt að treysta á Bandaríkin þegar kemur að stríðinu í Úkraínu.“ Þannig sé samkomulagið enn eitt dæmið um það núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum meti vestræna samvinnu ekki eins mikils og fyrri stjórnvöld hafi gert frá lokum síðari heimsstyrjaldar. „Eins og er er stærsta ógnin sem steðjar að Evrópu Rússland, aðgerðir Rússlands í Úkraínu og víðar um alla Evrópu, fjölþáttaógnir sem beinast gegn Evrópuríkjum og þetta er enn eitt dæmið um það að við þurfum að finna út úr því sjálf.“ Rússar hafi undanfarna mánuði fært sig upp á skaftið með fjölþáttaaðgerðum í Evrópu, meðal annars í Þýskalandi og Póllandi. Hvaða áhrif heldurðu að þetta samkomulag muni hafa á hegðun Rússa? „Þetta gefur Pútín byr undir báða vængi. Þetta er ekki líklegt til að draga úr vilja Pútíns til að halda áfram sínum undirgrafningi í Evrópu, að grafa undan öryggi Evrópuríkja.“
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Úkraína Efnahagsmál Þýskaland Pólland Bensín og olía Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Sjá meira